Morgunblaðið - 09.08.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984
23
arinnar og torskilni textans á
meistaralegan hátt“. — Hér kem-
ur sem sé berlega fram, að tónlist-
ar (óperu) smekkur Breta og
Skandinava er mjög mismunandi.
Persónulega leið mér eins og ég
væri þjófur í Paradís. Mér fannst
tónlist Sallinens góð nútfmatón-
list, en einhvern veginn var hún
hvorki hreinræktuð nútímalist né
klassísk tónlist. Það var eins og
skáldið hefði reynt að finna
eitthvað handa öllum og þess
vegna blandað saman mismunandi
stíl í stuttum þáttum. En þó
fannst manni, að e.t.v. væri hér
ekki alveg nóg fyrir neinn.
í leikstjórn Kalle Holmberg,
sem Svíar höfðu verið svo hrifnir
af, sá ég ekkert meira en ég hafði
séð í leikstjórn hans fyrir tíu ár-
um. Þá hafði leikstjórn Holm-
bergs komið nýstárlega fyrir sjón-
ir og var eitthvað mjög frábrugðið
því, sem fram að því hafði sést.
Holmberg notar sviðið á snilldar-
legan hátt, en þegar snillingurinn
fer að endurtaka sig, þá verða
áhorfendur vonsviknir. Ef ég hefði
aldrei séð neitt eftir Holmberg,
hefði ég einnig verið stórhrifin.
Nú var ég bara sæmilega ánægð.
Jorma Hynninen baritonsöngvari.
Veisla fyrir
fínnska söngvara
Óperuhátíðin i Savonlinna hefði
varla orðið það sem hún er nú,
hefði hún ekki fengið helstu
finnska söngvara sér til liðs.
Martti Talvela, fæddur og uppalinn
í Savonlinna, söng í mörg ár aðal-
hlutverkin í óperunum þar, m.a.
Sarastro í „Töfraflautunni“ og Fil-
ippus II í „Don Carlos“ eftir Verdi.
Nú er annar Finni, Matti Salminen,
tekinn við. Þeir starfa báðir aðal-
lega í Þýskalandi, en halda tryggð
við heimabyggð sína. — Auk
Salminens eru skærustu stjörnur
þessa sumars án efa þeir Jorma
Hynninen, baritonsöngvari, sem
m.a. syngur aðalhlutverkið í óper-
unni „Konungurinn fer af stað til
Frakklands", og Jaakko Ryhánen,
sem syngur hlutverk forsætis-
ráðherrans i sömu óperu. Sænska
blaðið Dagens Nyheter lýsti
Ryhánen, sem er bassarödd, sem
„stórsöngvara framtíðarinnar".
Þó að meirihluti söngvaranna
séu Finnar, eru margir útlend-
ingar einnig með. En ennþá fleiri
útlendingar eru í áheyrendahópn-
um. Þær þrjár vikur sem óperu-
hátiðin stendur yfir, er hvert
gistiheimili í Savonlinna og ná-
grenni troðfullt. Einnig er hægt
að fá gistingu á einkaheimilum
eða í versta falli gista á tjald-
stæði, sem er á litlu nesi andspæn-
is kastalanum.
Hvernig svo sem menn líta á
tónlistina, þá dregur hún að sér.
Sumar eftir sumar eru áhorfenda-
pallar Olavinlinna-kastalans, sem
rúma um 2.000 manns, þéttsetnir.
I stuttan tíma á sumri hverju
breytist smábærinn Savonlinna í
menningarmiðpunkt þar sem allir
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Marjatía ísberg er fil. mag. Hún
skrifar reglulega greinar fri ís-
landi í Hnnsk blöð.