Morgunblaðið - 09.08.1984, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Pizza er ítalska orðid fyrir pie, þaö
er brauðbotn með fyllingu. Pizza var
í fyrstu búin til þegar nýta þurfti
afganga af brauðdeigi. ftalir nota
sem fyllingu m.a. bragðsterka tóm-
atsósu, Pepperoni (bragðsterkt
kjötbjúga) og Mozzarella sem er
mjúkur mildur ostur. Við sem ekki
búum á Ítalíu, notum það hráefni
sem fáanlegt er í landinu. Árangur
er oft góður.
Pizza
214—3 bollar hveiti (1 bolli = 125
gr.)
1V4 tsk. sykur
1—2 tsk. salt
1 xk matsk. þurrger (DCL)
1 bolli volgt vatn
2 matsk. matarolía
2 bollar rifinn ostur
2 til 3 bollar tómatsósa i fyllingu
(uppskrift fylgir)
eða önnur fylling
Brauðbotn:
1. Setjið xh bolla af ylvolgu vatni í
skál (volga). Bætið síðan þurr-
geri og sykri í vatnið og látið
standa í 15 mín. eða þar til ger-
ið hefur „vaknað" og tvöfaldast
í vatninu. Sykurinn flýtur því,
enda nærist gerið á sykrinum.
2. Brauðið er síðan búið til á
venjulegan hátt. Hveitið bland-
að salti er sett í skál. Gerið,
vatnið og matarolían sett í
miðju og hveitið unnið upp í
það með sleif. Síðan er það
hnoðað létt og mjúkt.
3. Setjið 1 matsk. matarolíu í
djúpa skál, veltið deiginu í olí-
unni (þá festist það ekki við
skálina) og látið það síðan lyfta
sér í 30 mín.
Uppskriftin er fyrir 2 hringlaga
pizzur eða 5 litlar bakaðar í tertu-
botnum.
Deiginu er þrýst saman (það er
ekki hnoðað aftur) og því er síðan
skipt í hluta. Á plöturnar er fyrst
sett örlítil matarolía og deiginu
þrýst frá miðju að rönd formsins
og mótaður kantur. Tómatsósan er
sett á botnana og ostinum dreift
yfir. Pizzurnar eru síðan bakaðar
við meðalhita í 30 mín.
Tómatsósan
V4 laukur saxaður smátt
1 hvítlauksrif — pressað eða sax-
að örsmátt
2 matsk. mataroiía
!4 bolli paprika söxuð smátt
1 lftil gulrót niðurrifin
1 lárberjablað
1 tsk. oregano
V* tsk. basil
V4 tsk. timian
2 bollar niðurskornir tómatar eða
2 dósir niðursoðnir tómatar niður-
skornir
2 dósir (litlar) tómatkraftur
(puree)
1 tsk. salt
V4 tsk. pipar
Laukurinn og hvítlaukurinn eru
látnir linast í heitri matarolíunni
smá stund. Þá er gulrót, papriku
og kryddi bætt út í og blandað vel.
Síðan er tómatpuree, tómatar, salt
og pipar sett saman við og soðið
við vægan hita í 30 mín. Lárberja-
blaðið er fjarlægt og sósan kæld.
Sveppa og
laukfylling:
Fyrir 1 pizzu
1 bolli laukur saxaður
1 tsk. salt
1 tsk. oregano
V* bolli matarolía
paprika
1 dós sveppir (lítil)
1 bolli rifinn ostur (Gouda 26%)
Laukur, salt og oregano er soðið
i feitinni þar til laukurinn er
ljósbrúnn orðinn, nokkrar mín.
Látið á pizzabotn, niðursneiddum
sveppum dreift þar yfir og að síð-
ustu ostinum. Paprikudufti er
stráð yfir ostinn áður en pizzan er
bökuð.
Verð á hráefni:
Ostur 350 gr. kr.70.00
Tómatpuree (2) kr 11.20
Tómatar niðursoðnir
(2 dósir) kr. 71.80
Samtals kr. 153.00
Áætla má, að hráefni í
tvær heimatilbúnar pizz-
ur kosti um kr. 190.00.
Þeir félagar, Eirfkur (t.v.) og Jón, útbjuggu kort til þess að auðvelda sér leitina að hlutnum og takmarka það
svæði sem leitin færi fram á.
Ratleik Seiko lokið:
Hluturinn fannst eft-
ir vel skipulagða leit
Ratleiknum, sem Þýsk-íslenska
verslunarfélagið, Auglýsingastöðin
Örkin og Gunnar Gestsson stóðu
fyrir, er lokið. Tveir vaskir sveinar,
þeir Eiríkur Eiríksson og Jón Aðal-
björn Jónsson, fundu hlutinn sem
komið hafði verið fyrir í beinni
stefnu vestur af Arnarfelli hinu litla í
Hofsjökli í um 33ja km fjarlægð frá
því.
í sumar kom upp sú hugmynd að
koma fyrir einhverjum hlut á að-
gengilegu svæði sem næst miðju
landsins i því skyni að ratvísir
ferðamenn gætu spreytt sig á að
reyna að hafa uppi á hlutnum.
Margir munu hafa reynt að finna
hlutinn en ekki haft erindi sem
erfiði fyrr en þeir sjónfráu sveinar,
Eiríkur og Jón, komu til sögunnar.
Þeir sögðu að Jón hefði átt
hugmyndina að því að taka þátt í
leiknum og hefði hann skundað á
fund Eiríks, þar sem hann var að
störfum uppi í Kerlingarfjöllum,
og fengið hann i lið með sér. Þeir
kváðust síðan hafa farið á vett-
vang til að leita að hlutnum. Einu
upplýsingarnar sem þeir höfðu var
að hluturinn væri í u.þ.b. 33,5 km
beinni stefnu vestur af Arnarfelli
og á svæði sem hefði um 0,5 km
radíus. Þeir sögðust hafa hafist
handa við að skipta svæðinu niður
í sex jafna hluta og einsett sér að
fínkemba hvert svæði fyrir sig.
Skipulagða leit hófu þeir síðan
23. júlí í þoku og og varð það til
þess að þeir könnuðu fyrsta hlut-
ann af mikilli nákvæmni. Leituðu
þeir að hlutnum í um 9 klukku-
stundir í fyrsta hlutanum en ekk-
ert fannst. Daginn eftir könnuðu
þeir næsta hluta án árangurs. Þá
höfðu þeir kannað um xh af svæð-
inu og fóru heim við svo búið.
Þeir hófu síðan leit aftur þann
31. júli og eftir um sex klukku-
stunda leit fundu þeir hlutinn. Jón
sagði að þeir hefðu fyrst komið
auga á eitthvað hvítt í um 30
metra fjarlægð en haldið í fyrstu
að um plastpoka væri að ræða eða
snjóhrafl. Þeir hefðu því haldið
áfram að leita á því svæði sem var
á milli þeirra og hlutarins. Það var
síðan er þeir voru í um fjögurra
metra fjarlægð frá hlutnum að
þeir áttuðu sig á hvað það var sem
fyrir framan þá lá og þeir hefðu
því ekki verið lengi að stökkva á
hann.
Þegar þeir voru að því spurðir
hverju þessi ratvísi sætti svöruðu
þeir því til að sá sem væri einu
sinni skáti væri ávallt skáti og
skátar yrðu að kunna á áttavita.
Þeir hefðu fyrst kynnst þeim
merka hlut i skátunum og slðan
hefðu þeir aukið kynni sín við hann
er þeir gengu í Björgunarsveitina
Ingólf, því ekki væri til neins að
ætla sér að leita að týndum
mönnum upp til fjalla og víðar ef
ekki væri til staðar næg kunnátta
á áttavita.
Að launum fyrir fundvísina
verðlaunaði umboðsaðili Seiko á
íslandi, Þýsk-íslenska verslunarfé-
lagið, þá félaga fyrir fundvísina og
færði þeim vandað karlmannsúr af
gerðinni Seiko Quartz.
Þrír ungir ítalir sem unnu í hugmyndasamkeppni Renault-bflaverksmidjunnar á Ítalíu: S^ín^iígfSm^ð'&í
eina viku til að skoða okkur um. Þá
förum við einnig til Vestmanna-
eyja.“
Sögðust þeir félagar lítið sem ekk-
ert hafa vitað um landið áður en
þeir sendu ferðatillöguna inn. Luca
og Luigi leggja stund á landafræði-
nám í háskóla í Mílanó, en Michele
er auglýsingahönnuður. „Það var
töluvert erfitt að safna upplýsingum
um Island," segja þeir. „Við reynd-
um að ná sambandi við sem flesta
ítali sem við vissum að hefðu komið
til landsins og einnig fengum við
bæklinga og bækur á ensku og
frönsku.
Island er búið að koma okkur
skemmtilega á óvart og við höfum
haft samband við Háskóla íslands
til að grennslast fyrir um upplýs-
ingar um land og þjóð, bækur, bækl-
inga og ýmiskonar kort sem nota
mætti í háskólanum í Mílanó.“
Hvernig leist fjölskyldum ykkar á
hugmyndina um að fara til íslands?
„Það eru ekki margir Italir, utan
þeirra sem vinna á ferðamannastöð-
um, sem vita eitthvað um landið, svo
óneitanlega þótti fjölskyldum okkar
þetta undarlegt. Þær höfðu ekki
óhyggjur af ferðalaginu sem slíku,
heldur fremur af náminu hjá okkur
Luca og Luigi, en við ættum að vera
að lesa núna... En eftir að við fór-
um að vinna að undirbúningi ferðar-
innar urðum við enn spenntari en
áður að koma hingað. Þetta er of
gott tækifæri til að sleppa því,“
sögðu þremenningarnir itölsku að
lokum.
Btom.
skemmtilega á
óvart
í samtali við blaðamann Mbl.
sögðu mennirnir að alls hefðu borist
800 ferðatillögur til ítölsku dóm-
nefndarinnar, en fimm þeirra hefðu
verið valdar úr, þar á meðal þessi
ferð til íslands. Verksmiðjan leggur
til bifreið, bifvélavirkja, greiðir
bensinkostnað, filmukostnað og
fleira þess háttar, en fyrirtæki sem
fá auglýsingar límdar á bílinn leggja
til ýmiskonar viðlegubúnað, svo sem
tjöld, svefnpoka, fatnað og fleira.
Þremenningarnir lögðu af stað frá
Ítalíu í byrjun júlí og óku um Evr-
ópu. Síðan komu þeir með Norröna
frá Danmörku til Seyðisfjarðar.
Sögðust þeir hafa áætlað að tveir
mánuðir væri nægur tími til að aka
um landið og skoða náttúru þess, en
nú hefðu þeir komist að því að til að
kynnast landinu að einhverju marki
þyrfti miklu lengri tíma til, og
hyggjast þeir allir koma aftur til
landsins í vetur. Einn þeirra. Mich-
Luigi, Luca og Micheli við Renault 4, bifreiðina sem Renault bílaverksmiðjan i Italíu lét þeim í té fyrir ferðina til
Islands. Ljósm. Mbl. Bjarni.
ele Costantino, kveðst jafnvel hafa
áhuga á að setjast hér að.
En hvernig datt þeim í hug að
ferðast um ísland?
„Okkur datt nú fyrst í hug að fara
til Kína, en við nánari athugun kom
í ljós að það yrði erfitt að koma
bílnum þangað og þar að auki yrði
ferðalagið tímafrekara.
Við erum afskaplega hrifnir af
náttúru landsins, hún vekur alveg
sérstaka tilfinningu upp í manni.
Við lögðum af stað frá Seyðisfirði
sama daginn og við komum og höf-
um nú ferðast um Norður- og Aust-
urland og miðbik landsins. Við kom-
um meðal annars við á Vatnajökli
og skoðuðum okkur um þar. Það var
ótrúleg sión. og áhrifamikil Við
ætlum að fara aftur að Vatnajökli í
lok ferðarinnar og skoða okkur bet-
ur um.
Við verðum í Reykjavík í þrjá eða
fjóra daga og höldum svo til Vestur-
lands og höfum í hyggju að ganga á
Snæfellsjökul og einnig ætlum við
að ganga á Drangajökul á Vestfjörð-
um. Við höfum heyrt að landslagið á
ÞRÍR ítalir, Luca Navarra, Luigi Pagli-
aro og Micbele Costantino eru nú í
hringferð um landið á vegura Renault
bílaverksmiðjunnar á Ítalíu.
Mennirnir þrír, sem eru allir um tví-
tugt, unnu hugmyndasamkeppni um
ferðalög á Renault bifreiðum, en sam-
keppnin var haldin á Ítalíu í vetur á
vegum bílaverksmiðjunnar. Var þetta í
fyrsta sinn sem slík keppni var haldin
þar í landi, en hún er haldin árlega í
Frakklandi.
ísland kom