Morgunblaðið - 09.08.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984
37
Þorkatla Bjarna-
dóttir áttræð
Áttatíu ára er í dag, 9. ágúst,
Þorkatla Bjarnadóttir, Grundar-
götu 28, Grundarfirði. Þorkatla er
fædd að Hellnafelli í Eyrarsveit 9.
ágúst 1904. Hún hefur alið allan
sinn aldur við Grundarfjörð.
Þorkatla eignaðist eina dóttur
með Páli Runólfssyni og heitir
hún Petrína Guðný, gift Elíasi
Finnbogasyni og búa þau í Grund-
arfirði.
Á árinu milli '28—’29 hóf Þor-
katla búskap með Jónasi ólafssyni
og eignuðust þau átta börn og eru
sjö þeirra á lífi, en son sinn missti
hún fyrir nokkrum árum og hét
hann Ólafur Björn og átti hann
við vanheilsu að stríða megnið af
sinni lífsbraut. Hin börnin eru
Sigríður Inga, gift undirrituðum,
Ragnheiður Salbjörg, gift Þorleifi
Arlington, Knglandi. 3. ágúst AP.
104 ÁRA gamalli konu, sera neitað
var um hækkun ellilífeyris vegna
þess að hún væri „of hress“, hefur
nú tekist að sigrast i veldi „möppu-
dýranna" í heilbrigðisráöuneytinu.
Gamla konan, sem heitir Eve
Greenway, fór fram á vikulega
fjárhagsaðstoð að upphæð 18 pund
til þess að geta greitt heimahjúkr-
unarkonu, þar sem 78 ára gömul
dóttir hennar var orðin svo slæm
af liðagigt, að hún gat ekki lengur
aðstoðað móður sina við að halda i
horfinu heima við.
Þorsteinssyni, Þorbjörg Stefania,
er í sambúð með Jens Hanssen,
Bjarni Hinrik, ógiftur, Erla, gift
Þórarni Guðjónssyni, Helga, gift
Emil Wilhelmssyni og yngstur,
Ragnar Þór giftur Sigríði Sigur-
geirsdóttur. Mann sinn missti
Þorkatla árið 1952 og voru þrjú
yngstu börnin enn í ómegð. Þyngri
varð róðurinn á meðan þau uxu úr
grasi, en það tókst að halda fjöl-
skyldunni saman með guðshjálp
og góðra manna.
Þorkatla er ennþá létt á fæti og
fer allra sinna ferða og mættu
margir taka hana sér til fyrir-
myndar sem yngri eru, því þótt
lífið hafi ekki alltaf fært henni
hamingju þá heyrir hana enginn
kvarta. En aumt má hún ekki sjá.
Þá er hún boðin og búin til að
„Þeir sögðu okkur fyrst, að
mamma væri of hress til að fá
aðstoð. Hún getur enn klætt sig og
komist um, en ræður ekki við hús-
verkin," sagði dóttirin.
Eftir að gamla konan hafði bor-
ið fram mótmæli, lét ráðuneytið
undan og samþykkti að veita
henni umbeðna fjárhagsaðstoð.
„Mamma er fegin því, að þeir hafa
skipt um skoðun," sagði dóttirin
enn, „og peningarnir munu koma í
góðar þarfir."
hjálpa, þó lítil séu efnin önnur en
ellilaunin til að spila úr.
Ég kynntist Þorkötlu og Jónasi
er ég giftist dóttur þeirra. Ég fann
strax við fyrstu kynni að þar var
gott fólk. Én því miður voru sam-
verustundirnar með tengdaföður
mínum alltof fáar, því hann lést á
öðru hjúskaparári okkar hjóna.
En þeim mun sterkari urðu þau
bönd sem ég bast tengdamóður
minni og hefur sú vinátta haldist
síðan. Nú þegar Þorkatla stendur
á þessum tímamótum eru afkom-
endur hennar orðnir 70. Og er það
stór hópur sem nú gleðst með
henni og þakkar henni alla þá
hlýju sem hún hefur sýnt þeim.
Þorkatla býr nú hjá syni sínum
Ragnari í Grundarfirði, en ætlar
að taka á móti vinum og ættingj-
um á veitingahúsinu Gaflinum i
Hafnarfirði 11/8 kl. 15—17. Að
endingu vona ég að góður Guð
blessi henni ævikvöldið og að við
megum sem lengst njóta samvista
hennar.
Lifðu heil tengdamamma.
Árni Markússon
104 ára gömul kona
sigraði möppudýrin
meö innbyggöu hleöslutæki
(80 AMP) og startstraum (250 AMP)
Ótrúlega hagstætt verð - hafið
samband strax.
J3-ENGII BEFOS
Armúla 36. simi 82424. Pósthólf 4180. 104Reyk|avík
MHIAI.1 Oli ÞÆGII.ta
Fyrir aðeins 98 kr.+ 54 kr. í burðargjald færð þú nýja Freemans pöntunarlistann sendan beint heim til þín.
Yfir 700 síður af nýju hausttýskunni frá London París og Mílanó