Morgunblaðið - 09.08.1984, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984
+ Jaröarför ÁSU STEINUNNAR SVERRISDÓTTUR, Mjóuhlíö 12, fer fram í dag, fimmtudaginn 9. ágúst, frá Dómkirkjunni og hefst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarfélög. Ómar Skúlason, Þóröur Sverrisson, Ásgsir Svsrrisson, Patra G. Ásgeirsdóttir, Sverrir Þóröarson.
+ KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR Irá Öndveröarnesi til heimilis aö Hólsvegi 11, Reykjavík, andaöist þriöjudaginn 7. þ.m. Börnin.
+ Eiginmaöur minn, EINAR SIGURÐSSON, fyrrum skipstjóri, Álfheimum 23, Reykjavík, lést aöfaranótt þriöjudagsins 7. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Margrét Pétursdóttir.
+ Maöurinn minn, GARDAR HÓLM PÁLSSON, Sogavegi 218, lést 31. júlí sl. í Landakotsspítalanum. Jarðarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Guöríöur Pálmadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+ Móöir mín, SVAVA THORARENSEN, andaöist i Landspítalanum 3. ágúst. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskapellu, föstudaginn 10. ágúst kl. 10.30 f.h. Fyrir hönd vandamanna, Páimi Thorarensen.
+ Móöir okkar, ELÍSABET STEFÁNSDÓTTIR KEMP, sem andaöist í Vífilsstaöaspitala 1. ágúst sl. veröur jarösett frá Sauðárkrókskirkju, laugardaginn 11. ágúst nk. kl. 11 f.h. Böm hinnar látnu.
+ Systir mín, ÞURÍÐUR ÞORVALDSDÓTTIR, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 10. ágúst kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd vandamanna, Arndís Þorvaldsdóttir.
t
Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUÐLAUGARJÓNSDÓTTUR
fré Duötakaholti,
sem lést á Elliheimilinu Grund 5. ágúst, fer fram frá Fossvogskap-
ellu föstudaglnn 10. ágúst kl. 15.00.
Jónína Báröardóttir,
Steinunn J. Báröardóttir, Níels Marteinsson,
Margrét Báröardóttir,
Bergur Bárðarson,
Einar Báröarson, Rannveig Eiriksdóttir,
Sumarliöi Báröarson, Svana Jóhannsdóttir,
Ingólfur Báröarson, Lúlla Ólafsdóttir
og barnabörn.
Matthías Sigfússon
listmálari — Minning
Fæddur 2. maí 1904
Dáinn 2. ágúst 1984
í dag 9. ágúst verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni minn ást-
kæri tengdafaðir, Matthías Sig-
fússon listmálari, en hann lést í
Borgarspítalanum 2. ágúst sl.
Matthías fæddist 1 Egilsstað-
arkoti í Villingaholtshreppi 2. maí
1904. Foreldrar hans voru Gróa
Gestsdóttir frá Húsatóftum á
Skeiðum og Sigfús Vigfússon
bóndi ættaður úr Skaftafellssýslu.
Þau hjón eignuðust 11 bðrn, en
eitt dó í frumbernsku, og var
Matthías næstelstur. Baðstofan i
Egilsstaðarkoti var lítil, aðeins 4
rúm. Mun mörgum nú á tímum
finnast furðulegt hvað fólk varð
að láta sér nægja hér áður fyrr, í
þeirri fátækt og umkomuleysi sem
lá i landinu.
Matthías var 6 ára gamall er
hann fór í fóstur til föðurömmu
sinnar, Sesselju Sigmundsdóttir,
og manns hennar, Einars Matthí-
assonar, er bjuggu að Nýlendu i
Garði. Líkaði honum dvölin vel.
En enginn vafi er að hann hefur
saknað foreldra sinna og systkina.
12 ára fór hann aftur heim í
Egilsstaðarkot og var þar til 16
ára aldurs. Eftir það fór hann að
vinna fyrir sér bæði til sjós og
lands.
Matthías var listamaður af guðs
náð, hann fékk listagáfuna i
vöggugjöf og naut hennar til
hinstu stundar.
Veturna 1934 og ’35 stundaði
hann nám hjá Tryggva Magnús-
syni og Jóhanni Briem en að öðru
leyti var hann sjálfmenntaður.
Eftir það helgaði hann sig listinni.
Mörg verka hans gleðja lands-
menn og þó viðar væri leitað.
Hann hélt margar málverkasýn-
ingar, bæði hér í Reykjavik og úti
á landi. Hann tók þátt i samsýn-
ingum erlendis og fékk viðurkenn-
ingu fyrir litameðferð.
Ég man hér fyrr á árum er
menn sátu fyrir hjá honum. Hann
var snillingur í andlitsmyndum.
Enginn íslendingur hefur gert
eins mikið af eftirmyndum af
frægum listaverkum og hann
gerði. Altaristöflur hefur hann
málað sem m.a. prýða Laugar-
neskirkju, Raufarhafnarkirkju og
kirkjuna í Holti undir Eyjafjöll-
um. Og ekki voru þeir ófáir, sem
dáðust að myndum Matthíasar í
Tryggvaskála við Ölfusárbrú yfir
kaffibolla.
Matthías giftist 1936 eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Sigurborgu
Sveinsdóttur frá Borgarfirði
eystra, og reyndist hann henni
tryggur förunautur. Þeim var 2
sona auðið, þeir eru Sveinn f. 1936,
verslunarstjóri hjá búvörudeild
SÍS og er giftur undirritaðri og
eiga þau fjögur börn, og Rúnar f.
1939, strætisvagnastjóri og á hann
tvö börn með fyrrverandi eigin-
konu sinni Maríu Einarsdóttur.
Það er þung raun fyrir tengda-
móður mína að sjá á bak elskuðum
eiginmanni sínum. Guð styrki
hana.
Að lokum vil ég þakka mínum
kæra fyrir þau 27 ár er ég fékk að
njóta vináttu hans. Barnabörnin
munu sakna afa á Hjalló, sem allt-
af var boðinn og búinn til að að-
stoða þau ef þurfti.
Far þú í friði. Minningin mun
geymast í hjörtum barnanna.
Marín
Sólveig Sigmunds-
dóttir —
Fædd 16. október 1888
Dáin 1. ágúst 1984
Þegar ég nú kveð hinztu kveðju
kæra vinkonu mína, Sólveigu,
hrannast upp ótal ljúfar minn-
ingar liðinna ára. Kynni okkar
hófust er þau hjónin Sólveig og
Þórður Jóhannesson frá Viðey,
fluttu frá Viðey í bæinn 1939 og
mennirnir okkar urðu sam-
starfsmenn. Þau kynni urðu að
traustri vináttu, er aldrei bar
skugga á. Þórður og Sólveig eign-
uðust fimm börn. Sigrúnu, Sig-
Minning
mund, Kristjönu, Sigríði og Sig-
urð, allt var þetta myndar- og
dugnaðarfólk. Sólveig bjó fjöl-
skyldu sinni yndislegt heimili og
bar hún hag fjölskyldunnar mjög
fyrir brjósti. Hún gladdist yfir
velgengi barna sinna og bar með
þeim byrðar ef þörf krafðist, enda
launuðu þau það er hún þurfti á að
halda.
Margar ánægjustundir áttum
við saman, hvort sem var á heimil-
um okkar kvöldrabb yfir kaffi-
bolla eða í gleðskap meðal kunn-
ingja við öll möguleg tækifæri.
+
Moöir okkar og tengdamóöir,
SÓLVEIG SIGMUNDSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 9. ágúst
kl. 15.00.
Siguröur Þóröarson,
Sigrföur Þóröardóttir Smith, Magnús Smith,
Kristjana Þóröardóttir, Ásgeröur Kristjánsdóttir.
Eiginkona mín og móöir okkar,
SÓLVEIG KOLBEINSDÓTTIR,
Bollagöröum 9, Seltjarnarnesi,
sem lést 5. ágúst verður jarösungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn
10. ágúst kl. 10.30. Blóm og kransar afbeðið, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagiö.
Hafþór Guömundsson,
Anna B. Hafþórsdóttir,
Kristfn R. Hafþórsdóttir,
Siguröur Hafþórsson.
+
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
ÞORVARÐUR ARINBJARNARSON,
tollvörður,
Hlföarvegi 32, Njarövfk,
veröur jarösunginn frá Ytri-Njarövíkurkirkju, föstudaginn 10. ágúst
kl. 14.00.
Rannveig Filippusdóttir,
Rannveig Þorvaröardóttir, Þórarinn Arnórsson,
Gunnar Þorvaröarson, Hrafnhildur Hilmarsdóttir,
barnabörn.
Þar naut Sólveig sín sannarlega,
því að hún var félagslynd, hafði
yndi af söng og að gleðjast með
glöðum.
En lífið er ekki bara tími gleð-
innar, sorgin knýr einnig dyra,
það fékk vinkona mín svo sannar-
lega að reyna eins og flestir er
komast á hennar aldur, en hún tók
mótlæti með stillingu. Fyrir um 16
árum missti Sólveig mann sinn, og
fannst mér þá sem tómarúm
myndaðist í huga hennar, en
æðruleysi sýndi hún alla tíð, en
svo kom tími er skammt varð
stórra högga á milli. Fimm árum
eftir að hún missir mann sinn lést
sonur hennar Sigmundur og svo
nokkru síðar missir hún tengda-
dóttur er var henni einkar kær,
siðan lést elsta dóttirin og síðast
fyrir nokkrum árum deyr tengda-
sonur hennar. öll þessi áföll
mörkuðu djúp spor á heilsu henn-
ar, en þó stóð hún þetta allt af sér
og gladdist enn með glöðum, ef svo
bar undir.
En brátt voru kraftarnir þrotn-
ir og síðustu árin voru henni lítt
til gleði, hún æðraðist ekki en
lífslöngun virtist horfin. Sólveig
átti marga kunningja, er litu til
hennar og styttu henni stundir, en
þó get ég ekki annað en minnst
sérstaklega elskulegra hjóna,
Guðfinnu og Óskars, er fylgdust
alltaf með henni og reyndust
henni sannir vinir allt til hins síð-
asta.
Og nú kveð ég elsku Sólveigu
mína eins og ég hef svo oft gert
áður og þakka allar samveru-
stundirnar.
Börnum og venslafólki votta ég
mina dýpstu samúð og bið þeim
blessunar Guðs.
H.E.