Morgunblaðið - 09.08.1984, Page 51

Morgunblaðið - 09.08.1984, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1984 51 M ' í Mannlífsmynd frá Sovétríkjunum. Sýnið líf almennings í Sovétríkjunum Húsmódir skrifar: Kæri Velvakandi! Mætti maður fá fleiri sovéskar myndir á skjáinn sem sýna manni svolítið af lífi almennings f Sovétríkjunum eins og þessi sem sýnd var í sjónvarpi 28. júlí sl. og beini ég f þvf sambandi spurningu minni til forráða- manna sjónvarps? Ég læt öðrum eftir að meta listagildi myndarinnar, en hitt er víst, að fróðleg var hún hvað sem öðru líður. Hún hófst með því að verið var að telja mann- skapinn f fangabúðum einum, en þannig lagað sést ekki nema f kommúnistaríkjunum. í dag eru jafnmargir fangar f þrælabúðum Rússlands og allir íbúar Dan- merkur og írlands til samans. Fangarnir áttu að ganga um nótt, tíu kílómetra leið í stórhríð og byl og urðu að vera komnir aftur fyrir tilsettan tima, annars yrði þeim refsað fyrir tilraun til flótta. Myndi þetta teljast all- ströng ganga fyrir fanga á Litla-Hrauni. Mér kemur i hug gömul saga af Ólafi Hanssyni sagnfræðingi. Hann var eitt sinn við kennslu og var að segja frá þjóðum þar sem talið var að ólæsi fyrirfynd- ist ekki. Veittu menn því athygli að Sovétríkin voru hvergi nefnd f þessu sambandi. Þetta gerðist á mestu almættisdögum Stalins, löngu fyrir sænsku menningar- byltinguna hér, þegar enn var lftið af félagsfræðingum og börn lærðu í skólum sögu, landafræði og íslensku. Allir þekktu Skúla fógeta og baráttu hans við einok- unarkaupmennina en núna veit fólk varla hver var fyrsti forseti íslands. Allt í einu spyr einn af nem- endum ólafs hvort hann viti ekki að Stalfn hafi fyrirskipað að allir Sovétmenn skyldu mennta sig til stúdents. Vafðist þá ólafi tunga um tönn og held ég að það hafi aldrei komið fyrir hann áður. Nú hefur Stalín fengið sín eft- irmæli og Berfa útþurrkaður úr alfræðibókum Sovétríkjanna, en ennþá er „trúboðsherferð" marx- istanna f fullum gangi og alls staðar geta KGB-menn beitt fólki fyrir áróðursvagna sína. Jafnvel norður á Melrakkasléttu þar sem ekki má koma fyrir ratsjárstöðvum, sem þó eru hentugar til öryggis fyrir sjó- menn. En hvað eru íslenskir sjó- menn i augum kommúnistanna samanborið við KGB? Mannlegt að gera mistök 1031-7738 skrifar: Kæri Velvakandi! Ekki alls fyrir löngu sendi ég bréf til DV og var í því að koma að smáleiðréttingu í sambandi við frétt blaðsins úr poppheiminum. Ég sagði þeim hjá DV að ráðlegt væri að kynna sér fleiri en eitt blað, áður en þeir færu út í að skrifa slúðurdálka sfna. Hvorki hef ég séð leiðréttingu á þessu né bréfið mitt f blaðinu og er mér skapi næst að ætla að DV skammist sín fyrir mistök sín. í því sambandi er það eitt að segja, að það er einungis mannlegt að gera mistök og heiðarlegt að viðurkenna þau. ekki þangað til allt er búið Hótel Valhöll Lipur þjénusta Himnabréfíð Á.S. skrifar: Kæri Velvakandi! Þannig er mál með vexti að fyrir stuttu fann ég í gömlu dóti bréf nokkurt sem ber heitið „Himnabréfið". Það hefur verið ritað í apríl árið 1882, en þar sem bréfið er mjög velkt og rithöndin ólæsileg get ég ekki séð hver skrif- aði það. Nú langar mig til að fá nánari deili á þessu bréfi og upplýsingar um, í hvaða tilgangi það er skrif- að. Einnig langar mig til að vita hvort til eru fleiri slík bréf og vona, að ef einhver getur hjálpað mér, þá komi hann vitneskju sinni á framfæri hér í dálkum Velvak- anda. Með fyrirfram þökk. Betty Gumundsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: „Um sfðustu helgi var ég stödd á Valhöll á Þingvöllum, þar sem mér var haldin afmælisveisla. Maturinn þar var svo góður og þjónustan til svo mikillar fyrir- myndar að ég hef aldrei kynnst öðru eins. Þjónustufólkið var svo elskulegt og liðlegt að ég átti bágt með að trúa mínum eigin augum. Flyt ég þeim öllum minar bestu þakkir." af Fyrland-svefnsófum. Lengd 220 cm. Svefnbreidd 115 cm, lengd 200 cm. Rúmfatageymsla undir. Fyrirliggjandi pantanir veröa afgreiddar í dag og Ath. tökum heim síöustu send- inguna af Bobby 3+1+1 furu sófa- settum sem kosta aöeins 9.530 Viö bjóöum þau einstöku kjör aö taka greiöslukort sem útborgun HUS6&6NAH0LLIN BlLDSHÖFOA 20 -110 REYKJAVlK S 91-61199 og 81410 a2P SlGeA V/öga £ d[tivt9A'u

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.