Morgunblaðið - 06.12.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
ÚTVARP / SJÓN VARP
Reilly
Ég get ekki hugsað mér að
missa af þriðjudagsþáttunum með
honum Reilly, jafnvel þótt þætt-
irnir séu nú farnir að þynnast
nokkuð i annan endann. Þrátt
fyrir það er þar enn brugðið upp
merkilegri svipmynd af njósna-
heimi áranna í kringum rússnesku
byltinguna og um leið fáum við
hér færi á, að skyggnast nokkuð
inní hugarheim þeirra, sem áttu
um sárt að binda af völdum bylt-
ingarinnar. En vissulega er Reilly
(Sigmund Rosenblaum) einn
þeirra er afneitar bólsévíkum og á
þar með ekki afturkvæmt á
heimaslóðir. Er raunar villandi að
telja Reilly eingöngu njósnara, því
hann kemur svo víða við sögu, að
undrun sætir. Má eiiis telja hann í
hópi „andófsmanna" slíkra er nú
stynja undan ofríki bolsévíka. Sá
er þó munurinn, að Reilly er ein-
lægur auðvaldssinni, fremur en
hann berjist fyrir einskonar svía-
sósíalisma, einsog flestir andófs-
menn austantjalds virðast nú
gera. Þó vitum við eigi svo gjörla,
hvað léynist í hugskoti þessa land-
flótta Rússa, né allra hinna sem
ekki pössuöu inní sæluríkið. Þeir
voru reyndar aldrei spurðir álits.
Hinn harðsnúni
byltingarflokkur
Það er raunar næsta furðulegt,
hve miklu hinn harðsnúni bylt-
ingarflokkur Leníns kom til leiðar, í
hinu víðfeðma Rússlandi. Við sjá-
um í þáttunum um Reilly hve
ótryggt ástandið var í raun og veru
á þessum tíma. Allt gat gerst, en á
endanum sigraði sá, sem beitti fyrir
sig afdráttarlausustu hugmynda-
fræðinni og lét kne fylgja kviði þar
sem við átti. í þáttunum af Reilly,
er eingöngu vikið að, þeim miklu
átökum er áttu sér stað milli hinna
byltingarsinnuðu skjólstæðinga
Leníns, og hinna er trúðu á borg-
aralegt þjóðskipulag. En myndin er
ekki svona einföld. Það var ekki
bara Lenín, sem vildi breyta til í
Rússlandi og færa það í átt til nú-
tímans, en hann barði niður af full-
kominni hörku allar aðrar stjórn-
málastefnur en þær, er sameinuðu
bolsévíka í einn flokk. Þessi
„stefnufesta" Leníns fól í raun í sér
sáðkorn þeirrar hugmyndalegu ein-
stefnu, er nú bitnar svo hart á öllu
hugsandi fólki í A-Evrópu.
Stóri sannleikur
Leníns
Sannleikurinn er nefnilega sá að
sú stjórnarstefna, sem varð ofan á í
Rússlandi, og enn er fylgt þar í
landi í höfuðatriðum, var alls ekki
samhljóða skoðunum allra aðstand-
enda byltingarinnar. Það má
kannski með nokkrum rétti segja að
„lögmál frumskógarins" hafi ráðið
því að stefna Leníns varð allsráð-
andi í Sovét, fremur en stefna
„þjóðvakningarmanna" eða „ökon-
ímista" svo dæmi séu tekin. En sum
sé, Lenín einn vissi hvað var öreig-
unum var fyrir bestu og brást hann
ætíð við allri „gagnrýni" á Marx
eins og sá sem hefir höndlað stóra-
sannleik. Þannig farast honum orð
á bls. 345 í ritinu: „Efnishyggja og
gagnrýn reynsluspeki, (Moskva ’35)
um fyrrum samherja er voguðu sér
að endurskoða fræðikennninguna
„Endurskoðunarmenn gerast nú æ
slóttugri í aðferðum sínum til þess
að falsa marxismann og smygla
undir merki hans kenningum, sem
eru efnishyggjunni með öllu and-
stæðar." Já, svo sannarlega hefir
Iænín verið harður í horn að taka,
og það kann ekki góðri lukku að
stýra þegar slíkir menn komast til
áhrifa í pólitískum hreyfingum,
hvort sem er á vinstri eða hægri
vængnum. Kannski sá Reilly fyrir
hina miskunnarlausu framgöngu
bolsévísmans, þá hann hófst handa
gegn Lenín og félögum. Hver veit?
Ólafur M.
Jóhannesson
„Sagt hefur
það
verið“
UB-40 kynnt í morgun-
þætti rásar 2
■I Morgunþáttur-
00 inn á rás 2 í dag
er í umsjá
þeirra Sigurðar Sverris-
sonar og Kristjáns Sigur-
jónssonar.
Að sögn Kristjáns hefst
þátturinn á því að fyrstu
þrjátíu mínúturnar eru
helgaðar íslenskri tónlist
eingöngu. Um kl. 11.00
hefst hljómsveitarkynn-
ing og að þessu sinni verð-
ur tekin fyrir hljómsveit-
in UB-40. Hún er frá
Birmingham og flytur
svokallaða reggae-tónlist.
Textar hennar eru að
mestu leyti ádeila á
breskt þjóðfélag, en þrátt
fyrir það tekst hljóm-
sveitarmeðlimum að
halda léttri stemmningu,
sem einkennir þessa teg-
und tónlistar.
Þekktasta lag hljóm-
sveitarinnar hingað til er
vafalaust lagið Red Red
Wine frá því í fyrra. Ný-
lega var lagið If It Happ-
ens Again á breska vin-
sældalistanum, en féll út
fljótlega. En nú er nýtt
lag frá UB-40 að skríða
upp listann og nefnist það
Riddle Me.
íslensk bókaútgáfa
M Á dagskrá út-
30 varps í dag er
þátturinn „Sagt
hefur það verið". Umsjón-
armenn þáttarins eru þeir
Hjálmar Árnason og
Magnús Gíslason.
Hjálmar Árnason sagði
að í þættinum í dag yrði
fjallað um lögregluna.
Rætt verður við fyrstu
konuna, sem gegnir starfi
lögregluþjóns utan höfuð-
borgarsvæðisins. Einnig
verður rætt við sam-
starfsmenn hennar og yf-
irmenn. „Við ræðum við
konuna um tildrög þess að
hún sótti um starfið og
hvernig henni hafi orðið
við að koma á vakt. Einn-
ig verður samstarfsmenn-
irnir spurðir að því hvern-
ig þeim litist á að fá konu
í þetta karlaveldi," sagði
Hjálmar.
„Þessír þættir verða
vikulega til áramóta og
hálfsmánaðarlega eftir
áramót. Við munum reyna
að taka fyrir efni, sem við
teljum að eigi erindi til
landsmanna. Þættirnir
byggjast mikið upp á sam-
tölum við fólk á Suður-
nesjum."
■■ Fimmtudags-
35 umræðan í
kvöld fjallar
um íslenska bókaútgáfu.
Að sögn Þorgríms
Gestssonar, umsjónar-
manns þáttarins, verður
rætt vítt og breitt um
bókaútgáfu á íslandi.
Gengið verður út frá þeim
samdrætti, sem varð í
bókaútgáfu í fyrra.
Þátturinn hefst á því að
Gunnar Maack frá Hag-
vangi rifjar upp niður-
stöður könnunar, sem
gerð var árið 1979 á lestr-
arvenjum íslendinga.
Aðrir gestir þáttarins
verða Eyjólfur Sigurðs-
son, formaður Félags ís-
ienskra bókaútgefenda,
Jón Kristjánsson, í bóka-
búðinni Emblu, Þorgeir
Baldursson, í Odda og Sig-
urður Pálsson formaður
Rithöfundasambandsins.
Þorgrímur sagði að víða
yrði komið við og reynt að
fára inn á flest svið bóka-
útgáfu. Rætt verður um
samdráttinn og álit gest-
anna á því hvað hafi vald-
ið honum. Einnig verður
rætt um stöðu bókaútgáf-
unnar og kostnaðarhlut-
föll, verð bóka og framtíð-
ina.
ÚTVARP
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Siguröar G.
Tómassonar frá kvöldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð —
Esra Pétursson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Músin I Sunnuhllð og vinir.
hennar" eftir Margréti Jðns-
dóttur. Siguröur Skúlason les
(4).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. lO.IOveöurfregn-
ir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar.
11.00 „Eg man þá tlö"
Lög frá liönum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11J0 „Sagt hefur það verið"
Hjálmar Arnason og Magnús
Glslason sjá um þátt af Suð-
urnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Barnagaman
Umsjón: Helgi Már Baröa-
son.
13JO Tónleikar.
14.00 A bókamarkaöinum
Andrés Bjðrnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 A frlvaktinni
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
1530 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
16^0 Slödegistónleikar
a. Rómansa op. 67 fyrir
horn og planó eftir Camille
Saint-Saéns; Barry Tuckwell
og Vladimir Ashkenazy leika.
b. Sónata I A-dúr eftir Nicc-
olo Paganini. Julian Bream
leikur á gitar.
c. „Duo" I A-dúr fyrir fiðlu
og planó eftir Franz Schu-
bert. Arthur Grumiaux og
Robert Veyron-Lacroix leika.
FIMMTUDAGUR
6. desember
17.10 Síðdegistútvarp
Tilkynningar.
18^45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19J0 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Hvlskur
Umsjón: Höröur Sigurðar-
son.
20.30 Dagbókarbréf frá Islandi
Hrafnhildur Schram les þýö-
ingu slna á dagbókarbréfum
sænsku listakonunnar Siri
Derkert. (Aður útvarpað I
aprll 1982.)
214)5 Gestur I útvarpssal
Einar Steen-Nökleberg leikur
á planó „Peer Gynt-svltu"
eftir Harald Sæverud og
Ballööu op. 24 eftir Edvard
Grieg.
2140 Erlendar skáldkonur frá
ýmsum öldum
Fyrri hluti. Umsjón?6igurlaug
Bjðrnsdóttir. Lesari Herdls
Þorvaldsdóttir.
22.05 Tónleikar.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
SJÓNVARP
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Veröld Busters
Fimmti þáttur.
Danskur framhaldsmynda-
flokkur I sex þáttum. Þýð-
andi Ölafur Haukur Slmon-
arson. (Nordvision —
Danska sjónvarpiö)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Augiýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
FÖSTUDAGUR
7. desember
21.20 Skonrokk
Umsjónarmenn: Anna Hln-
riksdóttir og Anna Kristln
Hjartardóttir.
22.00 Hláturinn lengir llfiö
Fimmti þáttur.
Breskur myndaflokkur I
þrettán þáttum um gaman-
semi og gamanleikara I fjöl-
miðlum fyrr og slðar. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
22.35 Húsiö viö 92. stræti
(The House on 92nd Street)
Bandarisk blómynd frá
1945. S/h.
Leikstjóri Henry Hathaway.
Aöalhlutverk: William Eythe,
Lloyd Nolan, Signe Hasso
og Leo G. Carroll.
Myndin gerist I New York á
strlðsárunum.
Ungur maöur leikur tveim
skjöldum I þjónustu njósnara
Þjóðverja I Bandarlkjunum
sem meðal annars eru á
höttunum eftir kjarnorku-
leyndarmálum.
00.00 Fréttir I dagskrárlok
22.35 Fimmtudagsumræðan
Um Islenska bókaútgáfu.
Umsjón: Þorgrlmur Gests-
son.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS2
FIMMTUDAGUR
6. desember
10.00—12.00 Morgunþátt-
ur
Fyrstu þrjátlu mlnúturnar
helgaðar Islenskri tónlist.
Kynning á hljómsveit eöa
tónlistarmanni. Viötöl ef svo
ber undir.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Siguröur Sverr-
isson.
14.00 15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leopold Sveins-
son.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög aö
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Jazzþáttur
Þjóðleg lög og jazzsöngvar.
Stjórnandi: Vernharöur Linn-
et.
17.00—18.00 Gullöldin — Iðg
frá 7. áratugnum
Vinsæl lög frá árunum
1962—1974 — Bltlatlmabil-
iö.
Stjórnandi: Þorgeir Astvalds-
son.