Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
Bobby Harrisson
Bobby Harrison:
„RockOla" var að gefa út jólaplötu
Pálmi J. Sigurhjartarson
Morgunblaðið/Arni Sæberg.
Monroe-aödáendur
í Broadway
ÞEIM leiðist ekki i félagsskap fagurrar konu, þessum heiðurs-
mönnum. Þetta eru þeir Jón Hildiberg, kjallarameistari í Broadway,
og Jóhann Steinsson, veitingastjóri sama húss. Myndin var tekin af
þeim — og MariJyn Monroe í fullri líkamsstærð — á skemmtikvöldi í
Broadway á dögunum.
Þaö kannast eflaust margir Íslendingar
við Bobby Harrisson sem var í hljóm-
sveitinni Procol Harum einu sinni. Sagan
varð svo þannig að eitt sinn kom Bobby til
Íslands í heimsókn og hitti þá konu sína,
Margréti, reyndar kynntust þau á Morgun-
blaðinu og þar með var Bobby orðinn fast-
ur á Íslandi. Um þessar mundir er hljóm-
sveitin RockOla að gefa út jólaplötu og
Bobby sem er einn af meðlimum hennar
var tekinn stuttlega tali og spurður nánar
út í þessa hljr'mplötuútgáfu.
— Það má kannski byrja á því að segja
frá því að við erum fjórir hljómsveitar-
meðlimirnir, Ágúst Ragnarsson, Pálmi J.
Sigurhjartarson, Viðar Sigurðsson og ég.
Tildrögin að því að við fórum að spila sam-
an eru að ég hitti Viðar og Ágúst á Akur-
eyri, þar sem við vorum allir að spila í
Sjallanum. Við ákváðum að stofna band og
fengum í lið með okkur Pálma. Þannig
byrjaði þetta ogilú erum við búnir að spila
saman í þrjá mánuði, en þetta er fyrsta
hljómplatan sem við gefum út saman.
— Hvernig hljómpjata er þetta?
— Eins og nafnið „Jólasöngvar" gefur
til kynna, eru þetta jólalög einvörðungu.
Lögin og textarnir eru samdir af Jóni
Magnússyni og Ágústi Ragnarssyni, en
Pöbbinn fjármagnar plötuútgáfuna. Þetta
er íslensk tónlist.
— Hvaðan kemur nafn hljómsveitar-
innar RockOla?
— Þetta nafn fann ég út fyrir nokkru og
var búinn að ganga með þetta í maganum
að skíra hljómsveit þessu nafni. Þetta er
dregið af „Juke-boxum“ svokölluðum sem
tröllriðu öllu á fimmta og sjötta áratugn-
um.
— Hvernig tónlist spilið þið venjulega?
— Við erum aðallega með vinsæla tón-
list frá fimmta og sjötta áratugnum. Það
eru hátt í hundrað lög sem við spilum til
skiptis. Þessi stíll sem við spilum er svo-
kallaður „RockabilIy“-stíll.
— Spilið þið eingöngu á Pöbbinum?
— Já, við leikum þar fimm kvöld vik-
unnar þannig að það er nú eiginlega ekki
tími til annars. Við gerðum við þá samning
út þennan vetur og kannski verðum við
lengur, það er hlutur sem er óráðinn enn
sem komið er. Eitt er þó ákveðið og það er
að við ætlum að spila saman áfram, strák-
arnir.
— Nokkuð nýtt á döfinni hjá þér
Bobby?
Viðar Sigurðsson og Ágúst Ragnarsson.
— í augnabilikinu er meira en nóg að
gera á Pöbbinum eins og ég sagði. Ég skýst
þó alltaf öðru hvoru út til Englands til að
fylgjast með því sem er að gerast í tónlist-
arheiminum þar. Nú er ég að leita mér að
meðlimum í „Blues band“ sem á að koma
saman öðru hvoru og spila skemmtilega
blues-tónlist. Það er það eins sem er í sigt-
inu núna fyrir utan RockOla.
Hann er þrettán en hún er
sextán ára. í dag eru þau
nýbakaðir foreldrar. Hal heitir
faðirinn og er, eftir því sem best
verður að komist, yngsti eigin-
maður og með yngri feðrum í
Bandaríkjunum. Hann sagði í við-
tali við tímarit nýlega. „Hve
margir drengir geta státað sig af
Hal og Wendy eru afskaplega hamingjusöm hjón þó
ung séu.
Yngsti eiginmaður í
Bandaríkjunum 13 ára
þvi að vera giftir og eiga yndis
lega dóttur. Allir mínir draumar
eru uppfylltir." Wendy eiginkona
hans sem var komin fimm mánuði
á leið við brúðkaupið sagði: „Það
halda margir að þetta samband
okkar eigi ekki eftir að endast, en
um leið og ég sá Hal vissi ég að
hann var sá eini sanni og við erum
ákveðin í að sýna heiminum að
þetta samband á eftir að endast.“
Unga fjölskyldan býr i hjólhýsi
eins og tíðkast oft í Bandaríkjun-
um í námunda við foreldra Hals,
sem í byrjun voru á móti hjóna-
bandinu, en hafa sætt sig við það
eftir fæðingu Heather litlu.