Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 Þar sem verðbólgubálið brennur: í verkfall vegna vangoldinna launa Tel Avi», 5. desember. AP. Borgarstarfsmenn í Tel Aviv, 10.000 talsins og 60.000 kennarar víðsvegar í ísrael, lögðu í dag niður vinnu vegna þess, að enn hafa þeir ekki fengið launin fyrir nóv- embermánuð í hendur. Sömu sögu er að segja af starfsfólki á sjúkra- húsum, sem aðeins heldur uppi neyðarþjónustu. Husqvarna Saumavélar, með áratuga reynslu meðal íslenskra hús- mæðra. Verð frá kr. 12.000,- stgr. Micranett örbylgjuofninn Verð kr. 19.788,- stgr. SHG Sjálfvirkar kaffikönnur. Verð frá kr. 1.313,-. Sjálfvirkir eggjasjóðarar fyrir 1—7 egg. Verð kr. 1.571,-. Shlomo Lahat, borgarstjóri i Tel Aviv, 300.000 manna borgar og þeirrar stærstu í ísrael, segir, að ástæðan fyrir launaleysinu sé ein- faldlega sú að ríkið sé hætt að standa í skilum við borgina. Helmingur af árlegum útgjöldum borgarinnar kemur frá ríkinu og þegar allt er með felldu berast 30 manns hröpuðu í fjallapríli Nýju Delhí. 5. desember. AP. Fjallgönguvertíðinni í Himalaya- fjöllum er nú lokið, en landeigendur þeirra hafa jafnan talsverðar gjald- eyristekjur af klifurfíkn þúsunda auðmanna. Jafnan eru þetta mannskæðar fjallgöngur, að þessu sinni létust að minnsta kosti 30 fjallgöngugarpar. Þúsundir göngugarpa leggja til atlögu við Himalayafjöllin á hverri vertíð, en svo tíð hafa slys verið, að ríkisstjórn Indlands hef- ur sent dreifibréf til allra helstu fjallgönguklúbba þar sem þess er farið á leit að „aðeins vel búnir fjallamenn fái leyfi", þ.e.a.s. göngumenn verða að fá meðmæli klúbba áður en þeir fá leyfi við- komandi yfirvalda til að príla á fjöllin. Everest er vinsælastur, en fjöldi annarra álitlegra tinda er á svæðinu. 9 hinna látnu létust í indverska hluta Himalaya, 13 í Nepal og 8 í Pakistan. Gunrvar Asgeirsson hf. StiAirt.MxJsbr.uil 16 Strrn 9135200 ! Persaflóastríðið: Ný árás á olíuskip Manama, Bahrain, 5. desember. AP. ÍRAKAR greindu frá því í dag, að orrustuþotur þeirra hefðu ráðist á „stórt skotmark" skammt frá Kharg-eyju á Persaflóa, annan dag- inn í röð, en í fyrradag kom eldur upp í stóru olíuflutningaskipi frá Kýpur eftir að írösk þota hafði hæft það með Exocet-skeyti. A hinn bóg- inn greindu íranir og skipatrygging- arfélög ekki frá neinni slíkri árás og er nú beðið átekta. Árásir íraka eru þær fyrstu í 6 vikur og sögðust þeir jafnframt búast við því að íranir svari í sömu mynt, en það hafa þeir alloft gert síðan „kaupskipahernaður- inn“ hófst í janúar á þessu ári. Ef nýjasta árás íraka er ekki talin með, því hún er enn í móðu, þá hafa alls 58 skip laskast eða sokk- ið eftir loftárásir. frakar hafa meirihlutann á samviskunni, en franir einnig sinn skammt. Jafntefli hjá Karpov og Kasparov Moskvu, 5. desember. AH. JAFNTEFLI varð í 30. einvígis- skák Karpovs og Kasparovs í ein- vígi þeirra um heimsmeistaratitil- inn í skák. Kasparov lék hvítu mönnunum og bauð Karpov jafn- tefli eftir 30 leiki, sem Kasparov þáði. Leikin var Petroff-vörn. Er þetta 25. jafnteflið í einvíginu. greiðslurnar mánaðarlega. „Borgarstjórinn átti fund með Peres, forsætisráðherra, í síðustu viku og sagði þá Peres honum, að hann yrði að bjargast eftir bestu getu, það er að segja upp á eigin spýtur,“ sagði Freida Strauss tals- maður borgarinnar. Málum er þó þannig komið í Tel Aviv, að þótt ríkið standi við sitt stefnir í vand- ræði vegna fyrirsjáanlegs stór- halla á fjárlögum. í fsrael er sannkallað efnahags- öngþveiti. Verðbólgan er um 800% og erlendar skuldir þjóðarinnar 23,8 milljarðar dollara, einhverjar þær mestu á mann, sem þekkist. Ríkisstjórnin hefur gripið til ým- issa ráða til að hamla gegn þessu, t.d. dregið að inna af hendi lög- bundnar greiðslur, en það þýðir, að þær skerðast verulega að raun- gildi þótt drátturinn sé ekki nema nokkrir dagar. f síðasta mánuði lögðu borg- arstarfsmenn í Tel Aviv niður vinnu í þrjá daga vegna þess, að þá vantaði októberlaunin, og hlóðst þá sorpið upp á strætunum. Á þyrlupallinum um borð í strandgæsluskipinu Andenes skömmu áður en lagt var úr höfn í Osló á leið til Suðurskautslandsins: Skipherrann, Torstein Myhre sjóliðsforingi, Olav Orheim leiðangursstjóri, Magnus Stene sjóliðsfor- ingi og Odd Rogne. Norskur leiðangur til Suðurskautslandsins FYRIR helgina lögðu Norömenn af stað í stærsta heimskautaleiöangur sinn á seinni tímum, er strandgæslu- skipið Andenes sigldi út úr Oslóar- höfn og stefndi á Suöurskautslandið. Samkvæmt upplýsingum leið- angursstjórans, Olaf Orheim, er aðalmarkmiðið með ferðinni að minna á hlut Noregs í yfirráðum á Suðurskautslandinu. Ennfremur verða stundaðar líffræðirann- sóknir og jarðfræðileg kortagerð. í leiðangrinum, sem standa mun í fjóra mánuði, verða 28 vísinda- menn frá Norsku heimskauta- stofnuninni og fleiri rannsókna- stofnunum. Norðmenn hafa frá árinu 1939 gert kröfu til landsvæðis þar syðra, sem svarar til sjö sinnum stærra lands en heimalandsins. Þar eru ennfremur 16 þjóðir aðrar um hituna og stunda einnig ýmiss konar rannsóknastarfsemi á Suð- urskautslandinu. Eitt af markmiðunum með ferð- inni er að rannsaka möguleika á að draga ísjaka til heitari land- svæða til þess að nota sem fersk- vatnsbirgðir. Af einum slíkum ís- hnullungi mætti að sögn hafa hundraða milljóna króna tekjur, væri hann t.d. dreginn til Ástr- alíu. Rannsóknamennirnir verða síð- ur en svo einir á stjái á Suður- skautslandinu. Á Bouvet-eyju einni búa u.þ.b. 100.000 mörgæsir og 5.000 selir. Eftir að 21 fallbyssuskoti hafði verið hleypt af frá Akershus-virki óskaði Olafur konungur 5. skipherra og skipshöfn og leiðangursmonnum öll- um gæfu og gengis í ferðinni. Látum vesturbakka Jórdans ekki af hendi — segir Shamir, utanríkisráðherra ísraels Jerúsalem, 5. desember. AP. YITZHAK Shamir, utanríkisráð- herra ísraels, sagði í dag á þjóðþingi ísraels, að Jórdaníumenn yrðu að falla frá bandalagi sínu við Þjóð- frelsisfylkingu Palestínu (PLO), ef þeir vildu halda frið við Ísraels- menn. Jórdaníumenn yrðu að láta af þeirri „hættulegu blekkingu", að Israelar muni láta af hendi her- numdu svæðin á vcsturbakka Jórdanfljóts. Shamir sagði þetta í umræðum á þjóðþinginu um þá atburði á meðal Arabaríkjanna að undan- förnu, sem væntanlega eiga eftir að hafa áhrif á deilumál tsraela og Araba á næstunni. Þar ber hæst samvinnu Jórdaníu, Egyptalands og PLO svo og endurnýjað stjórn- málasamband milli Bandaríkj- anna og íraks. Yitzhak Shamir t ræðu sinni fordæmdi Shamir PLO harðlega og sagði þessi sam- tök vera helztu hindrunina í vegi fyrir friðsamlegri lausn deilumál- anna fyrir botni Miðjarðarhafs- ins. Það væri fyrir „neðan virð- ingu Israelsþings" að ræða um PLO eða um þær ákvarðanir, sem þjóðarráð PLO hefði tekið á nýaf- stöðnum fundi sínum í Amman. Shimon Perez forsætisráðherra sagði á mánudag, er þessar um- ræður hófust á ísraelsþingi, að ekki væri unnt að fallast á sam- eiginleg tilmæli Egyptalands, Jórdaníu og PLO um að kalla sam- an alþjóðlega friðarráðstefnu um málefni landanna fyrir botni Miðjarðarhafsins. Mikil hætta væri á, að slík ráðstefna myndi leggja aðaláherzlu á andstöðu við tsrael.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.