Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
15
Refaskinii kembd. Það er Cristjan Brokvist frá Finnlandi sem kennir ís-
lenskum refabændum til verka.
Frá skinnaverkunarnámskeiði SÍL: Fitulagið skrapað af innra lagi skinn-
anna. Ágúst Gíslason verkstjóri á námskeiðinu til hægri og Snæbjörn
Sigurgeirason í Þórormstungu ( Vatnsdal.
uppboðsverði skinnanna. SAGA er
með 8 skrifstofur á helstu mark-
aðssvæðunum úti um allan heim.
Þar er unnið að því að auka eftir-
spurn eftir skinnum frá Norður-
löndunum. Ég held að flestir geti
verið sammála um það að fyrir-
tækið hefur beinlínis unnið upp
markaði fyrir skinnin og er mark-
aðurinn nú orðinn stærri fyrir
bragðið. Við eigum ennþá aukaað-
ild að SAGA-fyrirtækinu en
reiknum með að fá þar fulla aðild
þegar fram í sækir.“
„Vel settir í sam-
starfinu við Dani“
„Við höfum samstarfssamning
við danska loðdýraræktarsam-
bandið og eru því öll skinn sem
seld eru fyrir milligöngu SÍL seld í
danska uppboðshúsinu i Glostrup.
Allur hagnaður uppboðshúsanna
af sölustarfsemi helst hjá bænd-
unum sjálfum og er notaður til að
auka framfarir í greininni. Með
þessari samvinnu fáum við aðgang
að allri þeirri þekkingu sem við
óskum eftir frá Norðurlöndunum.
öll Norðurlöndin hafa lýst því yfir
að við værum meira en velkomnir
í þetta samstarf og að þau væru
tilbúin til að aðstoða okkur eftir
mætti. En á móti ætlast þeir til að
við aukum veltuna í norrænu upp-
boðshúsunum, það er að okkar
skinn fari þangað í sölu. Við get-
um auðvitað ekki vænst þess að fá
aðstoð frá þeim við uppbygging-
una nema við sendum þeim megin-
hluta okkar framleiðslu.
Núna fer meirihluti minka-
skinnaframleiðslu okkar til sölu á
Norðurlöndunum og í fyrra fór
tæpur helmingur refaskinnanna
þangað. Við höfum verið í þessu
samstarfi í þrjú ár. Fyrsta árið
fóru 20% skinnanna í gegn hjá
okkur, annað árið 35% og f fyrra
tæp 50%. Það sem bændur hafa
ekki selt fyrir milligöngu SlL hef-
ur farið á vegum umboðsmanns
Hudson Bay-uppboðshússins hér á
landi til sölu á uppboðum þeirra í
London. Nokkur óvissa rfkir með
þessi hlutföll í ár. Menn hafa verið
hræddir með því að það sé selt svo
lítið af refaskinnum á uppboðun-
um í Danmörku að ekki fáist það
verð fyrir framleiðsluna sem hún
gefi tilefni til. Ég fæ ekki séð ann-
að en að uppboðshúsið í Dan-
mörku hafi staðið sig fyllilega
samanborið við önnur uppboðshús
og tel að engin ástæða sé til að
hræðast árangurinn þar. Það er þó
auðvitað alltaf nauðsynlegt að
skoða forsendur samstarfs sem
þessa. Við gerðum það einmitt sfð-
astliðinn vetur en sáum enga
ástæðu til að breyta um á þessu
stigi. Ég tel að við séum mjög vel
settir í samstarfinu við Danina."
SÍL rekur fyrirtækið „Hagfeld
— sölusamtök íslenskra loðdýra-
ræktenda". Jón Ragnar var spurð-
ur um starfsemi þess fyrirtækis.
„Hagfeldur hefur starfað í eitt
og hálft ár. Sala skinnanna hefur
farið um þetta fyrirtæki auk þess
sem við höfum farið út í innflutn-
ing fyrir bændur. Innflutnings-
starfsemin hefur vaxið óhemju-
lega hratt, þannig að við höfum
ekki komist hjá ýmsum vaxta-
verkjum. Við flytjum inn hvers-
konar vörur til loðdýraræktarinn-
ar, net og allt í búr og vélar til
fóðurstöðva og skinnaverkunar,
svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Jón
Ragnar Björnsson.
HBj.
OPEL.KADETT . .
þyskur og þrumugoður
Frumsýning
ef tir 2 daga
Sjáumst!
BILVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
c
1
c
=3
o
meiríháttar
/’TIGÞ.
BRUNSLEDI
tryffitækn
með stýri og öryggisbremsum og þú
getur sveigt, beygt og bremsað að vild. Stiga
brunsleðinn er níðsterkur: Hann ber jafnt börn
sem fullorðna.
Með stýrisskíðinu nærðu krappri beygju. örugg handbremsa við
Skiðin eru úr þrælsterku Etan-plasti og allar aðstæður og varn-
renna því mjög vel. argrind fyrir framan
fæturna.
Með sérhönnuðum útbúnaði
sveigir sleðinn til hliðar og
stöðvast sjalfkrafa ef þú missir
hann.
ÖRNINN
Spitalasrig 8 við Oðinstong símar: 14661,26888