Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
Bókaútgáfa
á Akureyri
Akureyri, 1. desember.
BÓKAÚTGÁFAN á Akureyri hefur alla jafna verið mikil og allt frá miðri
síðustu öld verið rekinn gróskumikill prentiðnaður. Um þessar mundir
eru rekin tvö bókarforlög á Akureyri, Skjaldborg og Bókaforlag Odds
Björnssonar. Þessi forlög gefa út nú fyrir jólin samtals 29 bækur,
Skjaldborg 20 og BOB 9. Blm. Mbl. leitaði frétta af útgáfunni hjá þessum
tveim aðilum og ræddi jafnframt lítillega við tvo höfunda.
Skjaldborg:
Áhersla lögð á útgáfu
norðlenskra höfunda
Akureyri, 1. desember.
„VIÐ HÖFUM allt frá upphafi lagt á það höfuðáherslu að gefa út verk
norðlenskra höfunda, og þegar litið er yfir farinn veg, má víst fullyrða að
við höfum staðið við þetta markmið,** sögðu Björn Eiríksson og Svavar
Ottesen hjá bókaútgáfunni Skjaldborg á Akureyri þegar Mbl. ræddi við
þá.
Bókaútgáfan var stofnuð 1967
og hefur frá þeim tíma gefið út
alls 195 titla og er þannig með
stærri bókaútgáfum landsins.
Á þessu ári gefur Skjaldborg
alls út 20 bækur, en þær eru:
Andi, þýdd saga eftir Kai Her-
mann, höfund metsölubókarinnar
„Dýragarðsbörn", Kyneðli og
kynmök, fræðslubók um mann-
legt kyneðli; Súrt regn, skáldsaga
eftir Vigfús Björnsson; Háski á
Hveravöllum, skáldsaga eftir
Birgittu H. Halldórsdóttur;
Sumar í Sildarfirði, skáldsaga
eftir Eyjólf Kárason, sem mun
vera dulnefni höfundar; Villt af
vegi, skáldsaga eftir Aðalheiði
Karlsdóttur frá Garði; skáldsag-
an Sigrún eftir ísól Karlsdóttur.
Af barnabókum útgáfunnar má
nefna: Flækings-Jói, eftir Indriða
(Jlfsson; Strákarnir sem struku
til Skotlands, eftir Marinó L.
Stefánsson; Símon Pétur, eftir
Færeyinginn Martin Næs, en út-
gáfan gefur einnig þá bók út á
færeysku og dreifir henni í Fær-
eyjum; þá má geta tveggja lit-
myndabóka fyrir yngstu börnin,
Binni vill eignast hund og Binni
fer út í rigningu. Þá sendir útgáf-
an frá sér 13. bindi bókaflokksins
Aldnir hafa orðið, sem Erlingur
Davíðsson skráði, og 2. bindi rit-
safnsins Göngur og réttir, sem
Bragi Sigurjónsson skráði og hef-
ur endurbætt, þá sendir Erlingur
Davíðsson frá sér 4. bindi rit-
safnsins Með reistan makka, sög-
ur af hestum. Kristján frá Djúpa-
læk skrifar bernskuminningar
frá Langanesströndum, sem hann
nefnir Á varinhellunni, og Ólafur
Halldórsson, læknir, sendir frá
sér bókina Læknabrandarar.
Guðmundur L. Friðfinnsson
sendir frá sér fyrra bindi ævi-
þátta, munnmæla og minninga-
þátta, sem hann nefnir Örlög og
ævintýri, og út kemur 3. bindi af
ritsafni Eiðs Guðmundssonar frá
Þúfnavöllum, Búskaparsaga í
Skriðuhreppi forna. Loks má geta
bókar eftir Jón Bjarnason frá
Garðsvík, sem hann nefnir Gott
fólk.
GBerg
Forráðamenn Skjaldborgar ásamt höfundum nokkurra bóka, sem forlagið gefur út í ár: Talið frá vinstri: Björn Eiríksson, framkv.stj. Skjaldborgar, Vigfús
Björnsson, Kristján frá Djúpalæk, Indriði lllfsson, Bragi Sigurjónsson, Martin Næs, Erlingur Davíðsson, Ólafur Halldórsson, Jón Bjarnason frá Garðsvík
og Svavar Ottesen, framkv.stj. Ljósm. GBerg
Tveir rithöfundar að norðan
Akureyri, I. desember.
SKJALDBORG sendir frá sér nú á
þessu ári aðra skáldsögu Vigfúsar
Björnssonar, Súrt regn, en áður
hefur Vigfús sent frá sér skáldsög-
una Skógarkofinn, auk þess sem
hann skrifaði niður hinar vinsælu
„Strákabækur** sínar í kringum
1960.
„Fram að þessu hef ég nú ekki
tekið mig mjög hátíðlega sem
rithöfund, en það hefur óneitan-
lega glatt mig að komast að því
að ég á marga góða vini í gegn-
um Stráka-bækurnar og Skóg-
arkofanum var hlýlega og vel
tekið. Líklega er ég óþarflega
spaugsamur, fólk tekur gaman-
semi mína oft á tíðum sem fúl-
ustu alvöru. Það getur verið
kostulegt að sjá það sem var tal-
að í gamansömum dúr sett fram
með hátignarlegum alvörusvip á
prenti. Sagt er að öllu gamni
fylgi nokkur alvara, þó held ég
að gamansemi mín sé oft saklaus
af slíku. Sannleikurinn mun
vera, að bak við gárungann leyn-
ist alvarlega þenkjandi maður,
og ég vona ábyrgur. Menn skrifa
ekki nema þeim liggi eitthvað á
hjarta, það er áreiðanlegt. Og
þegar búið er að hafa fyrir því að
koma bók á þrykk vonast maður
að sjálfsögðu til að henni verði
vel tekið, engu síður en fyrri
bókum mínum, þó ég fari auðvit-
að ekki fram á að hún nái eyrum
þeirra sem í kölkuðum gröfum
búa,“ sagði Vigfús Björnsson.
Jón Björnsson frá Garðsvík
sendir nú frá sér 8. bók sína, en
hann hóf ekki skriftir fyrr en
hann brá búskap í Garðsvík og
fluttist til Akureyrar. Frá þeim
tíma hefur hann sent frá sér 2
ljóðabækur, 4 minningabækur, 2
viðtals- og frásagnabækur, Fólk
sem ekki má gleymast og nú
Gott fólk.
„Mér leiddist afskaplega þegar
ég brá búskap og fluttist til Ak-
ureyrar, saknaði búskaparins
mikið og fannst ég ekki lengur
vera minn eigin húsbóndi. Þá hóf
ég skriftir, enda alltaf haft afar
gaman af að skrifa og setja sam-
an vísur og kvæði. Fyrir mér eru
skriftir ekki vinna, heldur
skemmtun, skemmtun sem ég
uni mér við í ellinni, enda er ég
nú að gamlast svo sem á grönum
má sjá, en þó varð mér að orði
nýlega.
Ég finn engin ellimörk
enn á sálu minni.
Hún er eins og blaðrík björk
i bjartri vorsólinni.
En bakþankarnir komu svo:
Enginn getur undan vikist
elliglöp sem blasir við.
Sjálfur enn ég þroskast þykist,
það er fyrsta einkennið.
Af þessu má sjá að gamanið og
alvaran eru mér ofarlega í sinni
að jafnaði og ég vona að það hafi
komið fram í bókum mínum,"
sagði Jón Bjarnason frá Garðs-
vík að lokum.
GBerg.
gefin út
1897
Akurejrri, 1. deaember.
BÓKAFORLAG Odds Björnsson-
ar var stofnað árið 1897 af Oddi
Björnssyni, prentmeistara. Var
það stofnað í Kaupmannahöfn, en
árið 1901 fli.tti Oddur til Akureyr-
ar og stofnsetti þar Prentverk
Odds Björnssonar, sem rekið hef-
ur verið óslitið frá þeim tíma og
bókaútgáfan að mestu óslitið
einnig. Núverandi forstjóri bóka-
forlagsins og prentsmiðjunnar er
Geir S. Björnsson, sonarsonur
Odds Björnssonar.
Á þessu ári gefur bókaforlag-
ið ekki út nema 9 bækur og mun
þar einhverju valda prentara-
verkfall, en bækur þessar eru:
Fótatak, minningaþættir Val-
týs Guðmundssonar á Sandi;
Endurminningar Þóris Bergs-
sonar; Depill fer í leikskóla, eft-
ir Eric Hill, bók fyrir yngstu
börnin; barna- og unglingabók-
ina Enn er annríkt í Glaumbæ,
“eftir Guðjón Sveinsson; 2. bindi
bókarinnar í tvísýnum leik, eft-
ir Sidney Sheldon; spennusagan
Skammhlaup, eftir Árthur Hai-
ley; litmyndabókin Akureyri —
blómlegur bær í norðri, sem
getið er sérstaklega annars
staðar á siðunni; 4. árgangur
Árbókar Akureyrar, sem Ólafur
Torfason ritstýrir; og loks 2. ár-
gangur Heimaslóðar, héraðsrits
hreppanna fjögurra í Möðru-
vallaklaustursprestakalli.
GBerg
Morgunblaöið/GBerg.
Helga Bergs bæjarstjóra afhent fyrsta eintak bókarinnar. Talið frá vinstri: Geir S. Björnsson frá Bókafor-
lagi Odds Björnssonar, Tómas Ingi Olric menntaskólakennari, höfundur texta bókarinnar, Helgi Bergs,
bæjarstjóri og Haraldur J. Hamar frá Iceland Review.
Ný litmyndabók:
— blómleg byggð í norðri
bókin
Akureyri, 1. deuember.
BÓKAFORLAG Odds Björns-
sonar á Akureyri og Iceland
Review hafa gefið út glæsilega
litmyndabók um Akureyri.
Gefur BOB bókina út með ís-
lenskum texta en Iceland
Review með enskum.
Á íslensku heitir bókin
Akureyri — blómleg byggð í
norðri, en á ensku Akureyri
— a northern haven. í bók-
inni eru alls 80 myndir allar
í litum, eftir svissneskan
ljósmyndara, Max Schmid,
en texta skrifaði Tómas Ingi
Olrich, menntaskólakennari
og ritstjóri. Max Schmid
kom fjórum sinnum til ís-
lands, á öllum árstíðum, til
þess að taka myndir í þessa
bók og er óhætt að fullyrða
að í þessu tilfelli er „glöggt
gests augað“, því myndirnar
eru allar sérlega fallegar og
mörg sjónarhornin sýnd, sem
flestir bæjarbúar munu oft
hafa séð, án þess að taka eft-
ir fegurð þeirra.
Efni bókarinnar er skipt í
nokkra meginkafla, þar sem
AKUREYRI
fjallað er um Akureyri nútíð-
ar og fortíðar, mannlíf í
bænum, helstu þætti at-
vinnulífsins, gróðurfar og
náttúru, svo og næsta ná-
grenni 1 Eyjafirði.
GBerg.
Bókaforlag
Odds Björnssonar:
Fyrsta