Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
Nú klæðast börnin
köflóttu um jólin
Nýtt frá Ítalíu:
* Köflóttir kjólar
* Pils + blússur
* Buxur + skyrtur
* Kápur meö
köflóttu fódri
Sendum EN&lABÖRNÍN
ípóstkröfu LAUGAVEGI28, SÍMI22201.
Hjálparsveit skáta í
Hveragerði með bingó
Hveragerði 3. desember.
HJÁLPARSVEIT skáta í Hveragerði
gengst fyrir bingói fimmtudaginn 6.
desember kl. 20.30 í Hótel Ljósbrá.
Spilaðar verða 10 til 12 umferðir og
eru góðir vinningar í boði.
1 fjáröflunarnefnd eru nú þrjár
ungar stúlkur, þær Guðrún Guð-
mundsdóttir, Þórdís Geirsdóttir og
Steinunn Gísladóttir. Kváðu þær
þetta vera í fyrsta sinn sem hjálp-
arsveitin reyndi þessa fjáröflunar-
leið og hefðu þær leitað til félaga
og fyrirtækja í þorpinu um stuðn-
ing og alls staðar verið vel tekið og
þeim gefnar munir eða gjafabréf
með ávísunum á vöruúttektir o.fl.
Formaður sveitarinnar, Alfreð
G. Maríasson, kvaðst vilja koma á
framfæri kæru þakklæti til allra
sem hafa styrkt sveitina með gjöf-
um og fyrirgreiðslu.
Sérstakar kveðjur sendir hann
Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra
Grundar og Áss og Ásbyrgis fyrir
höfðinglegar gjafir og styrk í
starfi, en hann lætur sér annt um
hag sveitarinnar.
Sveitin er sífellt að reyna að
auka búnað sinn og hefur nýverið
eignast vélsleða sem útbúinn er til
sjúkraflutninga og hefur Lions-
klúbbur Hveragerðis heitið stuðn-
ingi við þau kaup.
Hjálparsveitin hefur sinnt ýms-
um útköllum á þessu starfsári og
heldur hún uppi reglulegum æfing-
um. Þá mun sveitin taka að sér um-
sjón með neyðarskýli sem rísa mun
innan tíðar á Hellisheiði. Sveitin er
nú til húsa í litlu húsi sem Hvera-
gerðishreppur á og í eina tíð var
slökkvistöð, þar er nú orðið ansi
þröngt og háir það starfinu mikið,
því búnaðurinn tekur mikið pláss.
Að lokum sögðu þau félagarnir að
þau vonuðust eftir góðri aðsókn á
bingóið, en bingóstjóri verður Gísli
Garðarsson og er hann manna lík-
legastur til að halda þar uppi fjör-
inu.
Sigrún
Barnaskíðagallar — heilir og tví-
skiptir. Litir: Dökk- og Ijósblátt.
Verð frá kr. 2.030,-
Barnaúlpur.
Verð kr. 2.585,-
Unglingaúlpur.
Verð kr. 4.115,-
JÓLATILBOÐ
Hjá okkur byrjar nýtt úttektartímabil hjá greiöslukortahöfum 8.
desember. Vörur sem eru greiddar meö greiöslukortum eftir 7.
des. koma til greiöslu 2. og 5. febrúar 1985
Don Cano-glanshettu-
gallarnir koma í vikunni
Glæsilegir barnajogg-
ing-gallar.
Stæröir 6—14. Verð frá
kr. 1.998.- Litir: Grátt og
svart.
ADIDAS: CONCORD
Stæröir 31/2—91/2.
Verð kr. 2.550,-
Adidas: Top Ten
Stærðir 31/2—91/2.
Verð kr. 2.585,-
Adidas: Handball Special
Stæröir 31/2—11V2.
Verö kr. 1.795.-
Adidas: Hot Shot High
Stærðir 35—39.
Verð kr. 1.204,-
Póstkröfursími 17015