Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 61 væri hann ríkjandi þjóðhöfðingi. Með brögðum tókst honum að sannfæra bændahöfðingja og aðra ráðandi menn að svo væri. Hann lék hlutverk konungs í meira en mánuð, þá var leikurinn búinn. Hann var sendur úr landi og hafði lítinn heiður af sínu valdabrölti. Dátar formanns Kristjáns voru ekki af verra taginu. Sumir eru í miklum embættum í íslenska rík- inu, þeir voru að vinna að kjarab- ótum sínun en margir vissu ekki, frekar en undirrituð um hið pólit- íska valdabrölt. Menn í sextíu manna samninganefnd Bandal- agsins, sem komu til höfuðborgar- innar utan af landsbyggðinni, tók ákvörðun ásamt félögum sínum í borginni með að hefja verkfall. Þeir eru hinir eiginlegu ábyrgð- armenn, skipverjar á skútu form- annsins. Sagan er ekki öll sögð. Formað- ur Alþýðubandalagsins, Svavar Gestsson, gefur til kynna að eftir sigurinn hjá BSRB, sé kvenna- hreyfingin farin að láta til sín taka í enn ríkari mæli. Á hann von á að Samtök um kvennalista sem nýlega var á mínum heimaslóðum á Hornafirði til að stofna félög til styrktar starfsemi kvenna, með miðstýringarvaldi í Reykjavík, að þau félagasamtök muni dragast á laun til hans flokks? Ég vara kynsystur mínar í Iandinu við slíku laumuspili. Hér kemur brot af annál 1984. Hinn 1. október sl. yfirgáfu út- varps- og sjónvarpsmenn vinnust- aði sína. Sagt var manna á meðal að nú væri þessir menn farnir í verkfall. Þeir lofuðu samt veður- fræðingunum að starfa I útvarp- inu, veðurfregnir bárust á sínum tíma. Tilkynnt var að útvarpsþul- ur myndi koma á hverjum heila tímanum til að annast nauðsynl- egar fréttir. Það var kölluð neyð- arþjónusta. Neyðaróp frá hlust- endum varð að vera á heila tíman- um, eftir því að dæma. Sjónvarpið var lokað í þrjátíu daga og mun hafa komið sér verst fyrir sjúka, aldraða og fatlaða. Hinn 3. október skall á allsherj- arverkfall á íslandi. Þeim degi munu fæstir gleyma. Formaður BSRB tók við stjórninni. Verk- fallsverðir voru settir á sína staði. Kristján formaður stóð vörð um skipin á höfninni. Þennan dag fór allt úr skorðum í íslenska þjóðfél- aginu. Menn óttuðust mest að vatn og rafmagn yrði tekið af þeim. Það var ekki gert. Starfsmenn ríkis og bæja máttu nú ekki vinna sfn verk, nema þau sem BSRB skipaði fyrir um. Svo hófst stöðvunin og lokunin, ásamt truflunum. Skip í höfninni áttu að halda sér þar. önnur sem voru að koma að landi máttu ekki leggjast upp að. Þeim var sagt að liggja úti fyrir. Sjó- menn máttu ekki fara í land að sjá fjölskyldu sína. Hafrannsóknarsk- ipin lágu í höfninni, þeim var sem öðrum bannað að sigla frá landi. Olíuskip og bensínskip fengu ekki að lesta. Eimskip bar fram kröfu á hend- ur verkfallsmönnum. Siglingar Herjólfs frá Vestmannaeyjum tepptust. Misjafnlega gekk með allar undanþágurnar. Samgöngur á láði, legi og lofti tepptust eða trufluðust. Atvinnufyrirtæki stöð- vuðust. Skólum var lokað. Háskóli íslands kærði. Kennarar og nem- endur máttu ekki fara inn í skól- ann til sinna starfa. Dyraverðir máttu ekki opna. Undanþága fékkst. Heilsugæsla truflaðist. Meads School í Eastbourne. Frábær skóli við suður- ströndina. Námskeið hefjast 7. janúar, 25. marz og 28. júní. Bessíe, Sólvallagata 28, s. 25149. Ferðir flugvéla innanlands rösk- uðust. Tollverðir og lögregluþjónar voru í verkfalli. Undanþágur voru veittar við þeirra störf. Sími og talsamband við útlönd trufluðust. Eitt blað, það var verkfallspésinn BSRB-tíðindi sáust meðan á verk- faltinu stóð. Önnur blaðaútgáfa stöðvaðist að mestu. Þrjár ólögl- egar útvarpsstöðvar voru settar í gang. Þær voru kærðar og rifnar niður. Lögreglumenn á neyðarvakt sáu um að fjarlægja þessi örygg- istæki fóiksins sem hefðu getað orðið bjargvættur ef eitthvað stór- vægilegt hefði skeð á öðrum tíma en á heila tímanum. Þetta verður að nægja til að sýna að svona verkföll eiga ekki rétt á sér. Undirskrift kjarasamninga átti sér stað 31. október. Við lokaagr- eiðslu þeirra gerði BSRB það að skilyrði að einstaklingum innan BSRB, yrði ekki refsað og að fallið verði frá öllum eftirmálum vegna verkfallsins. Þar er sennilega átt við niðurfellingu lögsóknar og agaviðurlaga. Á þessum degi var yfirvöldum það ljóst að launagr- eiðsla til fólks þurfti að fara fram 1. nóvember, þá var verkfallinu að verða lokið. Þetta notuðu BSRB- menn sér og þvinguðu ríkisstjórn- ina til að skrifa undir eftirgjöf saka. Einn háttsettur embættis- maður skrifar að við þá almennu sakaruppgjöf hafi komið brestur í réttarríkið íslenska. Lýðveldið ha- fi orðið fyrir hyldjúpri niðurlæg- ingu á fjörtíu ára afmælisári. Svona aðfarir heita á íslensku: Að gera skömm af sér. Enn skal lengra haldið. Það vakti undrun manna hversu mikill áhugi var hjá verkfalls- mönnum að breiða út fréttir til útlanda um þetta verkfall. Að lík- indum hefur það átt að stuðla að áhuga útlendinga til að styrkja okkur fátæklinga í Norðurhöfum. Það leið ekki á löngu áður en heyrðist að frændþjóðir okkar Norðmenn og Svíar sendu hvor, eitt hundrað þúsund krónur í verkfallssjóð BSRB. Þessar sænsku og norsku krónur hafa sennilega verið notaðar til eyðil- eggingar í einhverri mynd. Verkfallsbæklingurinn áður- nefndi var auglýsingarit fyrir verkalýðshreyfinguna. Þar er margt skrýtið að sjá, innofið ókurteisu orðbragði. Hafnfirðingur ritar í bækling- inn ábendingu til stjórnar BSRB og minnir á að ef fjárskortur verði hjá verkfallssjóði í löngu verkfalli, þá væri Bandalagið ríkt. Það gæti selt sumarhúsin í Munaðarnesi í Borgarfirði og á Eiðum á Fljótsd- alshéraði. Þetta ætti BSRB að gera. Andvirði rynni í ríkissjóð sem síðan dreifði því til hinna sár- afátæku sem verkfallið átti að hafa snúist um. Sjúkir, aldraðir og fatlaðir ættu að fá sinn skerf. Ekki má heldur gleyma hinum lægst launuðu. Með þessari ráðst- öfun sýndu BSRB-menn að kjar- abótamál eru engin hornreka í starfseminni. Verkfallssjóður er sennilega ríkur eftir sakaruppgj- öfina. Nú vík ég mér að formanni BSRB, Kristjáni Thorlacíus. Hann er deildarstjóri í fjármálaráðun- eytinu, í fríi án launa. Á sínum langa embættisferli hefir hann ekki lært það sem mér var kennt og síaðist inn í huga minn. Stjórn- arráð íslands hefir um langan tíma verið húsbóndi okkar beggja. Húsbóndahollusta er talin með dyggðum. Mér fellur illa að deila hart á son heiðurshjónanna ólafs Thorlacíusar læknis og Ragnhild- ar konu hans á Búlandsnesi v/Djúpavog. Þau voru sérstakir vinir föður míns. Ég hika ekki við að láta allt víkja fyrir föðurlands- ást minni. í talningu minni um starfsheiti, bæti ég í lokin einu við. Söngkonuheitið hefir ávallt fylgt nafni mínu. Það mun fylgja mér frá vöggu til grafar og hefir söngurinn verið mitt aðal lífsstarf í áttatíu ár. Anna ÞórhallsdóUir er fyrrv. starfsmadur hjá símanum og söngkona. TVEIR, FJÓRTÁN, ÞRJÁTÍU ? Fjölmargir hópar og félagasamtök hafa notfært sér hina einstöku aðstöðu á efri hæð Torfunnar til funda og einka- samkvæma— og ekki að ástæðulausu. Þar eru 2 skemmtilegir salir undir súð, sem rúma 14 og 30 gesti hvor. Matseðillinn er fjölbreyttur, starfsfólkið lipurt og húsakynnin notaleg. Stefna okkar er og verður að veita góða þjónustu og bjóða aðeins það besta fáanlegt í mat og drykk. Leitið tilboða hjá yfirþjóni - verðið kemur á óvart. Opið alla daga frá kl. 11:00-23:30. VEITINGAHÚS AMTMANNSSTÍG 1 REYKJAVÍK SÍMl 91-13303
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.