Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
21
Borgarráð samþykkir smábátahöfn Snarfara:
Hafnarsvæðið leigt til 25 ára
LEIGUSAMNINGUR og úthlutun-
arskilmálar varðandi smábátahöfn í
Elliðavogi hafa verið samþykktir í
borgarráði. Er hér um að ræða hafn-
arsvæði vestan vesturáls Elliðaáa,
land á fyllingu ásamt hafnarkví til
rekstrar sportbátahafnar, sem Snar-
fari, félag sportbátaeigenda, hefur
fengið til umráða.
1 úthlutunarskilmálum er meðal
annars kveðið á um að félagið
Snarfari skuli öllum Reykvíking-
um opið og að félagið setji sér
samþykktir, sem háðar eru sam-
þykki borgarráðs. Hafnarsvæðið
er leigt til 25 ára og eru lóðarleiga
og fasteignagjöld miðuð við álagn-
ingu á íbúðarhúsnæði. Hafnar-
svæðið skal vera almenningi opið
til umferðar á meðan höfnin er
starfrækt og varsla á svæðinu.
Leigutaki skal hindra umferð á
hafnargarðinum sem skilur á milli
hafnarinnar og EUiðaánna á tíma-
bilinu frá 15. maí til 15. september
svo að göngur fiska í EUiðaánum
truflist ekki. Um umferð á sjó
gildir hafnarreglugerð Reykjavík-
urhafnar og almennar siglinga-
reglur. Til að fyrirbyggja hugsan-
lega truflun á laxagengd skal um-
ferð vélknúinna báta vera með-
fram vesturlandinu. Þá eru
ákvæði í úthlutunarskilmálum um
almenna umgengni og að leigutaki
skuli fjarlægja öll mannvirki, sem
honum tilheyra á landinu, að
leigutíma loknum. Þá er borgar-
verkfræðingi heimilt að setja
frekari skilmála.
UMÖRYGGI
INNLÁNSREIKNINGS MEÐÁBÚT
ÁBÓT Á ÁBÓT OFAN
Fé þitt er öruggt á Innlánsreikningi með Abót.
Ábótin vex 1 samræmi við verðbólgustig hvers mánaðar
og reikningurinn ber 3% vexti að auki.
Þetta eru sömu vextir og bjóðast á verðtryggðum
inn/ánsreikningum með 5ja mánaða bindingu.
SÉRSTAÐAN HELST
bérstaða Innlánsreiknings með Abót hebt, því þrátt fyrir
þessa tryggingu getur þú teHið út af reiHningnum þegar þú wilt
og haldið ósHertum öllum wöxtum sem þú hefur safnað.
Enn skarar ÁJbótin tram úr.
V_____/
ABOT
Á VEXTI
GULLS l'GILDI
ÚTVEGSBANKINN
BHN BANN • ðU. UÓNUSTA