Morgunblaðið - 06.12.1984, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984
Nýtt líf
Frú Christine Anne Dart, þrítug ensk húsmóðir, faðmar tveggja ára
dóttur sína, Michelle Louise, á Paoworth-sjúkrahúsinu í Cambridge,
þar sem stúlkan litla er óðum að ná sér eftir aðgerð, þar sem skipt var
um lungu hennar og hjarta 8. nóvember síðastliðinn. Er hún á batavegi
og blasir við henni nvtt líf.
SS-20-eldflaugarnar
tvöfalt fleiri en 1979
Washington, 5. desember. AP.
SOVÉTMENN hafa komið upp
a.m.k. 387 meðaldrægum eldflaug-
um af gerðinni SS-20 og er nú unnið
við um 10 nýjar stöðvar. Kom þetta
fram hjá bandaríska utanríkisráðu-
neytinu í gær.
SS-20-eldfIaugarnar, sem eru
hreyfanlegar og búnar þremur
kjarnaoddum hver, eru nú helm-
ingi fleiri en þær voru árið 1979
þegar Atlantshafsbandalagið
ákvað að bregðast við vígbúnaði
Varsjárbandalagsins með því að
koma upp Pershing 2-eldflaugum
og stýriflaugum í Vestur-Evrópu
en nú er búið að setja upp 91 slíka
flaug.
Við upphaf afvopnunarviðræðn-
anna árið 1981 fóru Bandaríkja-
menn fram á, að Sovétmenn tækju
niður sínar eldflaugar og myndi
þá Atlantshafsbandalagið hætta
við öil áform um að koma upp eld-
flaugum í Vestur-Evrópu. Sovét-
menn neituðu því og slitu viðræð-
unum fyrir ári þegar NATO ákvað
að standa við fyrri ákvarðanir.
Langflestum hernaðarsérfræð-
ingum ber saman um, að Sovét-
menn hafi umtalsverða yfirburði
yfir Atlantshafsbandalagsþjóð-
irnar hvað kjarnorkuvopn snertir.
Frá 1979 hefur kjarnaoddum
Bandaríkjamanna fækkað um
1.000, úr 7.000 í 6.000, en talið er að
Sovétmenn ráði yfir 8.000 kjarna-
oddum.
Scoresbysund:
Sveitarstjórnin sett
undir danska ríkið
Crsnlandi, 3. desember. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Mbl.
SVEITARSTJÓRN Scoresbysunds
á Austur-Grænlandi hefur verið
sett undir yfirstjórn ríkisins, þar
sem sveitarfélagiö hefur ekki stað-
ið danska ríkinu skil á um 5 millj-
ónum d. króna.
Sveitarfélagið hefur það verk-
efni með höndum að innheimta
greiðslu hjá fólki sem leigir hús-
næði í eigu ríkisins, svo og reikn-
inga vegna hitakostnaðar. En
sveitarstjórnin hefur ekki staðið
í skilum við danska ríkið með
þessa peninga, heldur notað þá í
annað.
Grænlenska útvarpið kvað
endurskoðanda sveitarfélagsins
hafa látið málið til sín taka og
vildi hann gera sveitarstjórnar-
mennina ábyrga fyrir peningun-
um. Yrði það um hálf milljón d.
króna á hvern þeirra.
Fram kemur í uppgjöri sem
nær til alls Grænlands, að fólk á
í miklum erfiðleikum með að
standa í skilum með greiðslur
vegna skatta, húsaleigu, raf-
magns, hita og annarra opin-
berra kostnaðarliða. Alls nema
skuldir Grænlendinga við hið
opinbera um 350 milljónum d.
króna, eða um 7.000 d. kr. á
hvern íbúa.
Hver hreppir
FIATUNO?
Sól hf.
Um þessar mundir verður 20.000. SODA STREAM vélin
seld hér á landi.
í tilefni af þessum tímamótum hefur Sól hf. ákveðið að
færa einhverjum SODA STREAM eignda FIAT UNO bíl
að gjöf. Það er ekki ónýtt að fá slíkan farkost í nýársgjöf.
Nafn hins heppna verðurdregið úrábyrgðarskírteinum
allra SODA STREAM eigenda milli jólaog nýárs n.k. og
mun nafn hans birtast í dagblöðunum í byrjun janúar.
EIGIR ÞÚ SODA STREAM VÉL ÁTT ÞÚ
ÓKEYPISBÍL!