Morgunblaðið - 06.12.1984, Síða 27

Morgunblaðið - 06.12.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 27 ASÍ um stöðu kvenna á vinnumarkaði: Karlarnir fá mun hærri yfirborgan- ir en konurnar HVAÐ áttu tnörg börn? Hvaö heitir maöurinn þinn og hvaö starfar hann? Ertu oft veik? Ætlaröu aö eiga fleiri börn? Ertu ólétt? Þetta eru nokkrar þeirra spurn- inga, sem oft eru lagðar fyrir kon- ur þegar þær sækja um störf, að því er segir í ályktun um stöðu kvenna á vinnumarkaði sem sam- þykkt var á nýafstöðnu Alþýðu- sambandsþingi. Segir að hér séu á ferðinni „nærgöngular spurningar um einkahagi sem engu svara um hæfni til starfa“ og séu til skamm- ar. Mótmælti þingið „harðlega því misrétti, sem konur eru oft beittar við ráðningu til starfa" og hvatti allt verkafólk „til virkrar sam- stöðu um jafnrétti á vinnustöðum og í starfi verkalýðsfélaga, ekki aðeins í orði heldur einnig á borði“, eins og segir í ályktuninni. Þar segir einnig að jöfnun að- stöðu' til vinnu og jafnrétti á vinnustöðum til launa og stöðu- hækkana eigi langt í land. Segir að konur vinni erfiðisvinnu ekki síður en karlar og að með aukinni tækni og hraðari vinnu lendi kon- ur oft í erfiðustu störfunum. „Atvinnurekendur og yfirmenn færa sér í nyt eðlislæga skyldu- rækni og misbjóða oft konum með óhæfilegu vinnuálagi. Eftirtekt- arvert er, að bónus t.d. í fiskverk- un og iðnaði, sem stóreykur vinnu- álag, er einkum tíður í kvenna- störfum.“ Þingið sló því föstu, að yfirborg- anir féllu nær alltaf karlmönnum í skaut. „Ef konur og karlar eru yfirborguð á sama vinnustað fá karlmenn mun hærri yfirborgun en konur," segir m.a. í ályktuninni og loks er ítrekuð samþykkt ASÍ- þings frá 1980 um rétt verkafólks í uppsagnartilvikum og minnt er á, að fjöldi fólks, einkum konur, búi við mjög skertan rétt varðandi uppsagnir. Kveiktu á perunni Þriðja bók KVEIKTU á perunni, þriöja bók, er nú komin út. í bókinni eru 50 vísna- gátur og höfundur þeirra og útgef- andi er Ólafur Gíslason. í formála bókarinnar segir höf- undur, að nýmæli sé í þessari bók; samfelld frásögn sé í hverri vísu, þar sem í fyrri bókunum hver hending, með örfáum undantekn- ingum, hefði staðið ein sér óháð hinum að öðru leyti en lykilorðinu, sem þær hefðu átt sameiginlegt. Því nefni hann þessar gátur sagnagátur. Veitt eru verölaun fyrir rétta lausn vísnagátanna. Þaö er orðin hefö á mörgum heimilum aö mála fyrir jólin. Sumir komast ekki í jólaskapiö fyrr en þeir eru komnir meö pensilinn í hendina meö Hörpu-silkinu frá- bæra — auövitaö hvaö annaö. NÚ MÁLUM VIÐ MEÐ HORPUSILKI. Hörpumálning fæst í eftirtöldum Álfhóll, Kópavogi Hamraborg 7 Brynja Laugavegi 29 BYKO, Kópavogi Nýbýlavegi 6 BYKO, Hafnarfirði Dalahrauni 15 Byggingaversl. Tryggva Hannesa. Síóumúla 37 Dröfn, Hafnarfirói Strandgata 75 Dvergur, Hafnarfirói Brekkugata 2 Ellingsen Ánanaustum Gos Nethyl 3 Húsasmiójan Súóarvogi 3 J.L. byggingavörur Hringbraut 119 verslunum á Reykjavíkursvæöinu: Kjörval, Mosfellssveit Þverholti Litaver Grensásvegi 18 Liturinn Síóumúla 15 Málarabúóin Vesturgata 21 Málarinn Grensásvegí 11 Málmur, Hafnarfirói Reykjavíkurvegi 50 Málning og Járnvörur Siðumúla 4 Pátur Hjaltested Suóurl.braut 12 Slippbúóin Mýragata 2 Smiósbúó, Garóabas Smiósbúó 8 Mikligaróur Holtagaróar 108 ERFINGJARNIR eftir William Golding Erfingjarnir er ein stórbrotnasta skáldsaga sem rituð hefur verið á þessari öld - snilldarafrek ímyndunaraflsins, könnun á glötuðum heimi Neanderdalsmannsins. Erfingjarnir er glæsileg uppskera rannsókna í mannfræði, fornleifafræði, aldalangra vangaveltna um frummanninn, hinn náttúrlega mann, - og skáldskapargáfu William Golding. Hvergi hefur hinn frumstæði maður verið raungerður með jafn frjóu ímyndunarafli og í Erfingjunum, bókmenntaverki sem m.a. hefur verið kallað: „ótrúlegt og frumlegt þrekvirki"! Öskubu^11' áráttan U tti kvcnnn ÖSKUBUSKUÁRÁTTAN Er SJÁLFSTÆÐI það sem konur raunverulega vilja? Colette Dowling svarar spurningunni neitandi í Öskubuskuáráttunni, metsölubókinni sem kom konum um allan hinn vestræna heim til að skjálfa af geðshræringu (og reiði). Hún heldur því fram að innst inni vilji konur láta sjá fyrir sér ogfá fullkomna tilfinningalega vernd. Þæróttist sjálfstæðið eins og pestina. „Óttinn felst í því að ef við stöndum raunverulega á eigin fótum, munum við að lokum verða ókvenlegar, óaðlaðandi og án ástar." Öskubuskuáráttan er bókin sem hneykslaði, kom við kaunin á mörgum og flestar konur gátu séð sjálfar sig í. Öskubuskuáráttan er ögrandi, áhugaverð og umdeild - sannkölluð óskabók kvenna. Bókhlaðan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.