Morgunblaðið - 06.12.1984, Page 35

Morgunblaðið - 06.12.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 35 1000 spurn- ingar og svör — eftir Hermann Gunnarsson og Ósk- ar Ingimarsson Setberg hefur gefur út bókina „1000 spurningar og svör“ eftir Hermann Gunnarsson og Óskar Ingimarsson. „Hér er að finna fjörugar og fræðandi spurningar úr öllum átt- um, léttar, þyngri, heillandi, spennandi... og aftast í bókinni má svo finna öll svörin," segir í frétt frá útgefanda. Bókin skiptist í 29 kafla og í hverjum þeirra eru að meðaltali 35 spumingar. Höfundarnir, Óskar Ingimarsson og Hemmi Gunn, segja m.a. um bókina: „Þessi bók er tekin saman með það í huga að skemmta jafnt og fræða og gefa fólki kost á að spyrja og svara við öll möguleg tækifæri. Hún getur verið hand- hæg jafnt í afmælisveislum, á stórhátíðum eða í sumarleyfinu, eða bara á ósköp venjulegum virk- um degi, þegar menn langar til að breyta eitthvað til. Við höfum val- ið 1000 spurningar úr ýmsum átt- um, sumar léttar, aðrar kannski dálítið erfiðar. En þá skuluö þið ÓSKAR INGIMARSSON OG HERMANN GUNNARSSON SPORNINGAR CGSVÖR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA muna að öllum finnst erfitt að svara því sem þeir vita ekki. Og svo er alveg áreiðanlegt að sumir skemmta sér vel yfir því, þegar svarið stendur í vinum og kunn- ingjum." Bókin er 144 blaðsíður með myndskreytingum eftir Hörð Har- aldsson. Þá eru líka í bókinni margar felumyndir. Fáskrúðsfjörður: 100 tonn af grálúðu á 2 dögum Fáskrátefirði, 4. desember. TOGARINN Hoffell kom hingað inn i laugardagsmorguninn með 100 tonn af grálúðu eftir aðeins tveggja sólarhringa veiðiferð. Hoffellið hefur verið að fiska í siglingartúr og var sendur út í þessa tvo daga inn á milli. Aflinn fékkst norður af Glett- inganesflaki. Landað var í frystihúsið hér á staðnum og lúðan heilfryst fyrir Rússlandsmarkað. Skipstjóri á Hoffellinu er Högni Skaftason. Síðan síldarsöltun lauk hér hef- ur mikið verið unnið að flökun og síldarfrystingu hjá Pólarsíld hf. Síldveiði hefur verið góð í fjörðun- um alveg undir það síðasta. Afli línubáta, sem margir eru að fiska fyrir siglingu fyrir jólin, hef- ur verið góður og mikil vinna á staðnum. Trillukarlar eru þó að vonum óhressir með að hafa þurft að hætta veiðum á meðan veður eru enn sæmileg. Þeir hafa oft áð- ur róið fram undir miðjan desem- ber. — Albert. HERRASKYRTUR Vorum aö taka upp glæsilegt úrval af enskum herraskyrtum. GEíSlP H Framhlaðið tæki á mjög hagstæðu verði, og VC-481 þvi fylgir fjarstýring sem gerir þér kleift að skoða myndefnið hratt í báðar áttir, ogfrysta myndina („pause"). Tækið hefur 7 daga upptökuminni, er útbúið rakaskynjara, og sjálfvirkri endurspólun. Þetta úrvalstæki er umfram allt, einfalt i allri notkun. Aðeins 39.800 Stg. HLJOMBÆR HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI :

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.