Morgunblaðið - 06.12.1984, Síða 65

Morgunblaðið - 06.12.1984, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1984 65 Keisarinn í Kína — nýr veitingastaður NÚ ER enginn Dreki við Laugaveginn lengur, en í hans stað er kontinn Keis- arinn í Kína. Hjónin Sigurður Tómasson og Kristbjörg Þórarinsdóttir keyptu í vor veitingastaðinu Drekann við Laugaveg og hafa nú gert á honum ýmsar breytingar, m.a. breytt nafni staðarins í Keisarinn í Kína. „Við erum búin að stækka staðinn um heiming og opna aðra hæð, sem í raun er allt annar staður," sagði Sigurður. „Efri hæðina köllum við Ölkelduna og þar seljum við m.a. bjórlíki, auk þess sem við bjóðum þar upp á mat. Fyrst í stað verður bjórlíkið aðeins á boðstólum fyrir matargesti, hvað sem síðar verður. Kínversk matargerðarlist er enn í hávegum höfð á neðri hæðinni og vonandi fáum við kínverskan kokk til liðs við okkur. Allar innréttingar eru nýjar og hér komast nú 100 manns fyrir án þess að þurfa að þrengja að sér.“ Sigurður og Kristbjörg sögðust alls ekki óttast samkeppnina í veit- ingahúsarekstrinum, því hún væri af hinu góða. „Við ætlum okkur að veita það góða þjónustu að engin hætta verði á að við verðum undir," sögðu þau. „Við erum meira að segja svo fylgjandi samkeppni, að efri hæð Keisarans verður eiginlega rek- in í samkeppni við þá neðri, enda getur fólk farið upp á efri hæðina um sérinngang, ef það óskar þess.“ Kristbjörg Þórarinsdóttir og Sigurður Tómasson i efri hæð veitingahússins Keisarinn í Kína, sem áður hét Drekinn. Okkormenn í Varbera, vOO'9 ,daíO pim ,da93 jóa9a P"ö'l,r,da9a ■SSS-i. .•.-JtfSj GdV°'a Símínner 904634083085 (ef þú hringir beint) Hafskip hf. hefur opnaö eigin skrifstofu í Varberg, Svíþjóö. Þaö er liður í flutningi markaösstarfsemi til stærstu samgönguhafnanna félagsins erlendis. Hagræöi af þessu er ótvírætt. Þú getur verið í beinu sambandi við þann stað sem þér hentar þegar þér hentar. Okkar menn hafa sérþekkingu á flutningum hver á sínu sviði. Þaö sparartíma og eykur öryggi. Slíkt er ómetanlegt því tíminn í vöruflutningum er dýrmætur. Þá er mikilvægt að vita að íslenskir aðilar gæta íslenskra hagsmuna erlendis. Þurfir þú að afla þér nákvæmra upplýsinga samstundis um vöruflutninga milli staða á meginlandi Evrópu og áframhaldandi flutninga til íslands (eða öfugt) er einfaldast og áhrifaríkast að nýta sér símatæknina og ofangreinda þjónustu Hafskips. Starfsfólk Svíþjóðar skrifstofunnar mun svara spurningum þínum og leysa málin. Viljirðu frekar nota telex er númerið 054-3488. Telefax númer er 0340 18256. Þessi þjónusta er til þæginda fyrir þig. Notfærðu þér hana. Okkar menn-þinir menn HAFSKIP HF.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.