Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
244. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gíslarnir úr helju heimtir í Teheran:
„Böröu mig, brenndu
eða buðu ávaxtasafa“
Teberan o* Nikóelu. 10. desember. AP.
ÍRÖNSKUM ÖRYGGISVÖRÐUM tókst að frelsa sídustu gíslana sem
fjórir herskáir flugrœningjar höfðu í haldi, en alls stóð flugránið yfir í
sex daga og í upphafi voru um 170 manns uro borð. Ræningjarnir slepptu
gíslum jafnt og þétt, en sjö voru eftir um borð er íranir létu til skarar
skríða. Þá kom í Ijós, að ræningjarnir höfðu einungis drepið tvo Banda-
ríkjamenn, en tveir farþegar frá Kuwait, sem taldir voru dánir, fundust
keflaðir og særðir um borð. Ástandið um borð var lengst af skelfilegt
fyrir gíslana og atburðarásin öll martröð líkust.
Hin opinbera fréttastofa Iran,
Irna, greindi frá því í dag, að írönsk
stjórnvöld hefðu vísvitandi dregið í
sex daga að láta til skarar skríða til
þess að ræningjarnir myndu í senn
þreytast, missa móðinn, en jafn-
framt fá falska öryggiskennd og
trúa því að íranir myndu ekki þora
að leggja til atlögu við þá. „Þetta
hafði þau áhrif meðal annars, að
ræningjarnir siepptu fleiri og fleiri
gíslum dag hvern og á endanum
komu aðgerðirnar þeim í opna
skjöldu,” sagði í tilkynningu Irna.
Þar sagði ennfremur, að ákvörðun
hefði verið tekin um að láta til
skarar skríða seint á sunnudags-
kvöldið er ræningjarnir hefðu byrj-
að að láta ófriðlega á ný. Dofnaði
æsingur þeirra síðan um hríð og
óskuðu þeir eftir að fá lækni um
borð og aðstoðarmenn til að hlúa að
særðum manni. Þá duibjuggu ör-
yggisverðir sig sem hið umbeðna
fólk og tókst þeim að yfirbuga ræn-
ingjana án þess að nokkurn mann
sakaði.
Bandaríkjamennirnir
illa Ieiknir
1 hópi farþega voru tveir Banda-
ríkjamenn, John Costa og Charles
Kaper. Þeir voru manna verst
leiknir, höfðu verið barðir og
brenndir með vindlingum. Costa
sagði í samtali við Irna: „Þeir
reyndu að pína mig til að segjast
vera í CIA og yfirheyrðu mig oft.
Þeir voru alveg vitfirrtir og ég vissi
aldrei hvað myndi gerast næst. Þeir
áttu það til að kýla mig og brenna,
svo komu þeir kannski og klöppuðu
mér á öxlina og gáfu mér ávaxta-
safa.“ Flugmaðurinn, John Henry
Clarke, var f hópi síðustu gíslanna
um borð. Hann sagði: „Ég hafði gef-
ið upp alla von um að sleppa lifandi,
þeir reyrðu menn niður í sætin með
sprengiefni í beltum, börðu fólk,
skutu í allar áttir og voru gersam-
lega vitfirrtir allan tímann. Höfuð-
paurinn var viti sínu fjær, þeir voru
allir viti sínu fjær. Þetta var hreint
helvíti."
Stjórnvöld í Kuwait sendu stjórn-
völdum í Teheran þakkarskeyti f
dag fyrir vasklega framgöngu, en
Ali Khameini, forseti íran, sagði á
móti að ef ekki hefði komið til
„áhugaleysis sendifulltrúa Kuwait,
hefði mátt binda endi á flugránið
þrem dögum fyrr.“ Hann útskýrði
það ekki nánar. Hann sagði það
jafnframt rakalausan þvætting, að
írönsk yfirvöld hefðu verið í ráðum
með flugræningjunum, en ýmsir
hafa haldið því fram og kallað að-
gerðir frönsku öryggisvarðanna
„leiksýningu, skrípaleik". Flugmað-
urinn og gíslarnir hældu trönum
hins vegar í hástert fyrir góða
frammistöðu og „rétt hugarfar".
Slmamynd AP.
Úr helju heimtur, Bandaríkjamaðurinn Charles Kaper. íranskur læknir hug-
ar að meiðslum hans, en maðurinn er greinilega illa leikinn.
REAGAN
CHERNENKO
Hittast for-
setarnir í
Berlín á
næsta ári?
Bodb, 10. dearmber. AP.
STÆRSTU tímarit og dagblöð
Vestur-Þýskalands, Der Spiegel og
Bild Zeitung, greindu frá því í dag,
að þau hefðu fyrir því heimildir að
Ronald Reagan og Konstantin
Chernenko, forsetar Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna, myndu hittast að
máli í Berlín í maí á næsta ári.
t samtali við umrædd blöð sagði
Peter Bönisch, aðaltalsmaður
vestur þýsku stjórnarinnar, að
hann vildi ekkert segja um fyrir-
hugaðan fund, en sagði: „Vestur-
Þjóðverja hafa áhuga á slíkum
fundi, og er til betri fundarstaður
en Berlín, þar sem kalda stríðið er
hvað svalast og mest áberandi.“
Hann gat þess einnig að utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, George
Shulz, myndi sækja Helmut Kohl
kanslara heim á laugardaginn, en
þó er nokkur leynd yfir heimsókn-
inni. Þá hafði Bild Zeitung eftir
Gunter Van Well, sendiherra
Vestur Þýskalands í Washington,
að Bandaríkjamenn hefðu áhuga á
því að tengja leiðtogafundinn há-
tiðahöldum sem verða í maí á
næsta ári í því tilefni að þá eru 40
ár liðin frá því síðari heimsstyrj-
öldinni lauk. Van Well sagði að
bandarísk stjórnvöld hefðu spurt
hin vestur-þýsku hvernig þeim lit-
ist á Berlín sem fundarstað.
Bandari.sk stjórnvöld vildu ekki
tjá sig um fréttirnar.
Papandreou.
Papandreou
afneitar NATO
Aþenu ojj Madrid, 10. desember. AP.
,ANI)REAS Papandreou forsætis-
ráðherra Grikklands sagði í ræðu,
sem hann las yfir alþjóðlegum fundi
friðarhreynnga í Aþenu I dag, að á
síðustu þremur árunum hefði hann
gerbreytt utanríkisstefnu Grikklands
og nú væri Ijóst að landið fylgdi ekki
NATO að lögum þó enn sé landið I
Atlantshafsbandalaginu.
Fulltrúar friðarhreyfinga 28
landa, þar á meðal hinna opinberu
friðarhreyfinga kommúnistaland-
anna, taka þátt í þinginu i Aþenu
og lýstu fulltrúar ánægju með um-
mæli ráðherrans. Hann sagði m.a.:
„Við getum ekki og munum ekki
vera hallir undir eitt stórveldi og
andvígir öðru, það myndi þýða að
við yrðum undirokaðir. Ýmsir hafa
gagnrýnt okkur fyrir mótsagna-
kennda utanríkisstefnu en gleyma
því að smáþjóðir eiga að eiga sem
fæsta óvini.“
Sprengjuhótun er Tutu fékk friöarverðlaun Nóbels:
„Sýnir örvæntingu þeirra
sem berjast gegn friði“
Oiló, 10. deaember. AP.
DESMOND M. Tutu, biskup frá Suður-Afríku, tók á móti friðarverðlaun-
um Nóbels í Osló í gær, en Ijótan blett á athöfnina setti sprengjuhótun
sem varð til þess að rýma varð hátíðarsal háskólans í Osló og seinka
athöfninni. „Þetta sýnir best hvað þeir sem vinna gegn friði eru örvænt-
ingarfulHr,“ sagði Tutu í samtali við fréttamenn er hann beið þess að
lögreglan lyki sprengjuleit sinni.
Desmond Tutu, lengst til hægri, heilsar Ólafi Noregskonungi. Sín“mr— AK
Ólafur Noregskonungur var
meðal gesta á afhendingunni og
var honum lýst sem „sárum og
reiðum“ vegna sprengjuhótunar-
innar. Éngin sprengja fannst
þrátt fyrir mikla leit. Desmond
Tutu tók öllu með jafnaðargeði.
Hann sagði m.a. í þakkarræðu
sinni: „Að ég skuli fá verðlaunin
sýnir betur en nokkuð annað, að
guð drottnar enn í heimi hér. Ég
veit að við verðum frjáls. Barátta
okkar blökkumanna fyrir mann-
réttindum í Suður-Afríku er
góðra gjalda verð og verðugt inn-
legg í baráttu fyrir bættum
mannréttindum víða um heim.“
Nóbelsverðlaun voru einnig veitt
fyrir bókmenntir og vísindi í gær, en
lesa má nánar um það á blaðsíðu 34.
Á bls. 4 er frásögn íslendinga sem
voru í Osló í gær.