Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
41
Stóriðjuver sem vinnustaður
— eftir Eyjólf
Sœmundsson
Þann 19. síðasta mánaðar birt-
ist í DV grein eftir Baldur Her-
mannsson undir heitinu „staður
konunnar er í eldhúsinu". Hún
fjallar um stóriðju og var kjarni
hennar einnig birtur í stakstein-
um Morgunblaðsins 21. nóvember.
í greininni ávarpar höfundur
Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur,
alþingismann, og segir að hún viti
t.d. ekki „að stóriðjuver eru eftir-
sóttir vinnustaðir og þykja að
mörgu leyti betri en gengur og
gerist í þjóðfélaginu þó að kvenna-
listakonur og Steingrímur Her-
mannsson haldi annað (sbr. yfirlýs-
ingar forstöðumanns Vinnueftirlits
ríkísins). (Leturbr. undirritaðs).
enda var strax við hönnun verk-
smiðjunnar gert ráð fyrir ýmsum
ráðstöfunum til að takmarka
mengun á vinnustöðum þar. Þrátt
fyrir þetta er mengun of mikil við
nokkur störf og í nokkrum tilvik-
um er það ryk í verksmiðjunni,
sem hættulegast er talið, yfir
hættumörkum. Nauðsynlegt er
talið að gera úrbætur á mengun-
arvörnum á vinnustöðum verk-
smiðjunnar.
Meginniðurstöður úttektar á
mengun í kerskálum álversins,
eftir að kerjum hafði verið lokað
og hreinsibúnaður settur upp,
urðu þær að rykmengun væri allt
of mikil og flúormengun of mikil
við sum störf. Nauðsynlegt er talið
að gera verulegar úrbætur til að
draga úr mengun og tryggja að
lokun kerja skili þeim árangri sem
að var stefnt í upphafi.
„Það er hlutverk Vinnu-
eftirlits ríkisins, sem ég
veiti forstöðu, að fjalla á
hlutlausan hátt um að-
búnað, hollustuhætti og
öryggi starfsmanna á
vinnustöðum.“
Skýrslur, þar sem ofangreindar
ályktanir komu fram, voru gerðar
opinberar, og um þær fjallað í
fjölmiðlum.
2. Við mat á því hvort vinnu-
umhverfi í nýjum stóriðjuverum
teliast fullnægjandi með hliðsjón
af fyrrgreindum markmiðum laga
hefur Vinnueftirlitið lagt til
grundvallar upplýsingar um stöðu
tækniþróunar við slíka fram-
leiðslu í öðrum löndum og upplýs-
ingar um áhrif mengunarefna sem
fyrir liggja. Þeirri málmvinnslu-
stóriðju, sem hér hefur einkum
verið talin koma til álita, fylgir
óhjákvæmilega nokkur mengun í
andrúmslofti starfsmanna og
henni er samfara nokkur hætta á
atvinnusjúkdómum sem við þekkj-
um ekki úr okkar hefðbundnu at-
vinnuvegum. Því þarf að gæta
fyllstu varúðar. Ekki hefur verið
tekin formleg afstaða til þeirra
áætlana sem nú eru uppi um stór-
iðju, en almennt má segja að
Vinnueftirlitið telji unnt að skapa
fullnægjandi vinnuumhverfi í
slikum fyrirtækjum, svo fremi
beitt verði þeirri tækni sem völ er
á í dag að ná slíkum markmiðum
og að í áætlunum um byggingu
Eyjólfur Sæmundsson
fyrirtækjanna og í rekstri þeirra
síðar verði lögð þung áhersla á
gott vinnuumhverfi.
Eyjóltur Sæmundsson er forstjóri
Yinnueftirlits ríkisins.
Þegar ég spurði Baldur Her-
mannsson að því hvaða yfirlýs-
ingar það væri sem hann vitnar til
í áðurnefndri grein sagðist hann
hafa í huga ummæli mín í sjón-
varpsþáttum sem hann gerði fyrir
nokkrum árum um stóriðju. Seint
um síðir tókst mér að fá hljóð-
upptöku af því sem ég sagði þar og
fékk staðfest að þar hef ég hvorki
kallað stóriðjuver eftirsótta
vinnustaði eða betri en gengur og
gerist i þjóðfélaginu. Vel má vera
að stóriðjuver séu eftirsóttir
vinnustaðir, m.a. vegna launa-
kjara, en það er einkum síðari
hluti þess sem haldið var fram að
ég hafi lýst yfir sem máli skiptir
og knýr mig til þess að óska eftir
birtingu á þessari athugasemd.
Það er hlutverk Vinnueftirlits
ríkisins, sem ég veiti forstöðu, að
fjalla á hlutlausan hátt um aðbún-
að, hollustuhætti og öryggi
starfsmanna á vinnustöðum. Við
mat á þessum þáttum eru höfð til
hliðsjónar þau markmið sem sett
eru í lögum um þessi mál nr.
46/1980, en í fyrstu grein þeirra
segir að markmið þeirra sé m.a. að
ntryggja öruggt og heilsusamlegt
starfsumhverfi sem jafnan sé í
samræmi við félagslega og tækni-
lega þróun í þjóðfélaginu." Meðal
verkefna Vinnueftirlitsins er að
fara yfir og meta áætlanir um ný
stóriðjufyrirtæki með hliðsjón af
þessu markmiði, og hafa eftirlit
með starfandi iðjuverum.
Vegna fyrrgreindra ummæla
Baldurs Hermannssonar þykir
rétt að upplýsa nánar um afstöðu
Vinnueftirlitsins til þessara mála,
en hún er byggð á reynslu af
rekstri þeirra verksmiðja sem nú
starfa hérlendis og upplýsingum
um stöðu tækniþróunar á þessu
sviði í nýjum og gömlum verk-
smiðjum:
1. Á árinu 1983 var gerð úttekt á
mengun í andrúmslofti starfs-
manna í stærstu stóriðjuverum
sem hér starfa nú, það er járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga og kerskálum álversins í
Straumsvík. Slíkar mælingar eru
mjög umfangsmiklar og ekki ein-
falt að túlka niðurstöður. Megin-
niðurstaða úttektarinnar í járn-
blendiverksmiðjunni varð sú að
aðstæður eru að mörgu leyti tald-
ar góðar hvað mengun varðar
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
TVEIR, FJÓRTÁN, ÞRJÁTÍU ?
Fjölmargir hópar og félagasamtök hafa notfært sér hina
einstöku aðstöðu á efri hæð Torfunnar til funda og einka-
samkvæma— og ekki að ástæðulausu. Þar eru 2 skemmtilegir
salir undir súð, sem rúma 14 og 30 gesti hvor. Matseðillinn er
fjölbreyttur, starfsfólkið lipurt og húsakynnin notaleg. Stefna
okkar er og verður að veita góða þjónustu og bjóða aðeins það
besta fáanlegt í mat og drykk.
Leitið tilboða hjá yfirþjóni - verðið kemur á óvart.
Opið alla daga frá kl. 11:00-23:30.
VEITINGAHÚS
AMTMANNSSTÍG 1 REYKJAVÍK SÍMl 91-13303