Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 íslenskri uppfinningu tekið vel erlendis — „þörfin er segir Össur Krístinsson, stoötækjasmiður ÖSSUR Kristinsson hefur gert merka uppfinningu á sviði gervilimasmíði og er þessi uppfinning Össurar að ryðja sér til rúms víða um heim. Festing gervifótar við lærstúf hefur verið eitt erfiðasta vanda- mál gervilimasmíði frá upphafi. Lengi vel var hulsan um stúfinn gerð úr hertu leðri, þá úr tré og því næst úr léttmálmi. Fyrir um 14 árum hóf Össur Kristinsson að vinna að hugmynd sinni um hulsu úr mjúku efni til tengingar á gervilimum og síðustu fimm ár- in hefur harjn haft samstarf við gervilimasmiðju í Stokkhólmi. Ritgerð Össurar um þessa nýj- ung, er var birt í tímariti sam- taka stoðtækjaframleiðenda Bandaríkjanna, var i ágúst kjörin ritgerð ársins. Hulsa sú, er Össur fann upp, er úr mýkra efni en þær hulsur sem hingað til hafa verið notaðar og lagar sig betur að lærstúfnum. Hulsunni er haldið uppi með koltrefjagrind, sem þekur aðeins um 25% hulsunnar. Hulsa þessi er miklu auðgerðari en harðar hulsur og nefndi Össur sem dæmi, að hann gæti, á skömmum tíma, búið til nýjar hulsur eftir því sem lærstúfurinn breytist. Nú er stefnt að því að framleiða stoðgrindurnar í stöðluðum stærðum, og verða þær þá í tveimur hlutum. Með því móti væri alltaf hægt að finna stoð- grind fyrir hvern og einn, en þyrfti ekki að smíða hverja grind fyrir sig. „Þessari uppfinningu winni hefur verið mjög vel tekið alls staðar erlendis, þar sem ég hef kynnt hana,“ sagði Össur. „Það hafa þegar verið haldin 11 nám- skeið í New York um notkun hennar og það hefur gengið ótrú- lega vel að koma henni á markað. Nú þegar hafa verið framleiddar um 2—3 þúsund hulsur. Þetta er þeim mun ánægjulegra að oft tekur um 5—10 ár að koma slíku á markað, en þörfin er svo mikil, að allir taka hulsunni opnum örmum. Nú þegar ganga um 800 Svíar á gervifótum með mjúku hulsunni. Það er búist við, að þessi hulsa komi alveg í stað þeirra sem nú eru notaðar og þá verður framleiðslan tugir þús- unda stykkja á ári.“ Össur sagði, að margir hefðu velt því fyrir sér hvernig á því stæði, að þróun þessi yrði á iitlu landi eins og íslandi, en ekki t.d. i Bandaríkjunum. Hann kvaðst halda, að fólk hér væri miklu móttækilegra fyrir nýjungum og óhrætt að prófa sig áfram, en í Bandaríkjunum væri því öfugt farið. „Það er einnig miklu meiri hætta á því þar að fólk fari fram á gífurlegar skaðabætur, ef ekki fer allt að óskum," sagði hann. Össur kvaðst að lokum vera að vinna að fleiri uppfinningum en hulsunni og vonaðist hann til að þær nýjungar kæmu að jafn góð- um notum. iniernuiu»nell information frán Jönköping Ny benproteshylsa som kan ;;v ge ”friare muskelaktivitet wmt D* llrWnUm,ol'r«lf dru* hrl»r prðvu I Jonkæ r«l (.r»du»U h»r rttl rtl brMUnl hj»l|> ptn*. N» >k»ll den ny» Ufe- Sf hool orh mrórl OfilbU proUshflior nlkrn l*r Ny protesteknik lárs ut i Jönköping - ,.kd.k>*>« Au«rA«'Och l.nhflM (&*» — ****?* SVENSKA DAGBLADET Fredagen den 23 nuj 1984 Ldttare gá och sitta S med ny smidig protes ÉkÉ£ KEVOLUTIONEKANDE PROTESHYLSA , v5S»Jl'et f £ I ■ v,enamfu“'“áe Œ JONKÖnNG prrunrr frfen felta I*n4»r Munk.|o.hol»i - HyManferUt ruulan k»n kl.a » Bara Ivfe »kulur ■ v ,1 íur -n Udimferr fW«.l»-M mrd-n rn W>. orh fr*« Kevolutionerande ... - , . , | Att <M bWv Sverigf ar inl« Iden frán Island ll..n»t,l<i Hnrh-rnv«n«r.»v lövn t,ll nylndvn kotnmvr d, b»>t» ul l»tdnm«»m» p* drt har umrfedvt , varldm ,«-h dcn ifea vpnd»» Muiik^o»k,4ai> t >t»rk r»m, k,.lfilar J..nk,.p,n>t .h h N,*w Y.»rfe Un> M lo, ' vt-rvtly Ptnl Graditatr M«d>c«l duvtrai t. S>h,«4 ' »v>fel*n ud • -feaf - PatMT. _________ o«-h dvl hvla burjadv for ,»t..la-dt,-kn,vfe« Ittifrn p* hw rymdm- IjurUin fer ~-d»n „ar h»n ,<ch Munk^u»k<4»» «r drn viwis , I »m krupp- feollrtp.*rn» P* W»nd lo« h«nd hrU Sv.-nfe.- och Damn.uk .m hadv ,1,1 In-w.rllfel 1 (SQgffl SchOO _ m Inm, mll U-l., ,feat»rni. Sprengjuhótun við afhendingu friðarverðlauna Nóbels: Trúarsöngvar á tröppunum en sprengjuleit í salnum — rætt við íslendinga, sem viðstaddir voru athöfnina í Oslóarháskóla í gær „ÞAÐ MYNDADIST mjög sérkennileg og hjartnæm stemmning i tröpp- unum utan við hátíöarsalinn, þar sem Tutu biskup, kona hans, dætur og suöur-afrískir vinir þeirra sungu trúarlög og sálma á sínu eigin tungumáli á meðan beöiö var eftir því aö hægt yröi að fara aftur inn í salinn og Ijúka athöfninni," sagði Börkur Karlsson, starfsmaöur í sendiráöi fslands í Osló, í samtali við blaöamann Mbl. í gær. Börkur var ásamt Páli Ásgeiri Tryggvasyni, sendiherra, og prestshjónunum í Kaupmannahöfn, síra Ág- úst Sigurðssyni og Guörúnu L. Ásgeirsdóttur, viöstaddur þegar friðar- verölaun Nóbels voni afhent IJesmond Tutu, biskup frá S-Afríku í gær. Athöfnin var trufluö þegar tilkynning barst um aö sprengju hefði verið komið fyrir í þéttsetnum hátíöarsal Oslóarháskóla. Var öllum skipað út úr salnum, þar á meðal Ólafi V Noregskonungi og Haraldi ríkisarfa. Guðrún Ásgeirsdóttir sagði í samtali við blaðamann Mbl., að athöfnin hefði verið um það bil hálfnuð þegar starfsmaður há- skólans hefði skyndilega komið í salinn og fengið með sér út hátt- settan foringja úr konungslög- reglunni. „Þeir komu aftur inn eftir stutta stund, um það bil sem Egil Arvik, formaður Nób- elsnefndarinnar, var að ljúka máli sínu. Þeir báðu þá, sem sátu aftast i salnum, að ganga út og síðan var tilkynnt frá sviðinu að tilkynnt hefði að sprengju hefði verið komið fyrir í salnum. Yrðu því allir að fara út á meðan leit- aðyrði. Olafur konungur og fleiri neit- uðu í fyrstu að fara út úr salnum en eftir stutta stund hlýddu allir og gengu út í hægðum sínum, friðarverðlaunahafinn sem aðr- ir. Allt þetta gerðist í beinni út- sendingu í norska sjónvarpinu. Fólkið stóð á tröppunum framan við bygginguna í glaðasólskini, logni og 6 gráðu hita, og þar byrjaði fólkið að syngja „We shall overcome" og fleiri lög með trúarlegu yfirbragði undir for- söng vina og samstarfsmanna Tutus biskups. Stemmningin var alvarleg og grípandi, en það fór ekkert á milli mála að þarna voru alvarlegir atburðir að ger- ast, því lögreglan var allt í kring. Það var órólegt ástand í þessari fallegu og friðsælu borg,“ sagði Guðrún. Hún sagði að eftir um eina klukkustund hefðu borist um það boð frá konungi og ríkisarf- anum, að þeir vildu vera við- staddir afhendingu friðarverð- launanna framan við bygging- una, en á meðan þeir voru á leið aftur frá konungshöllinni til- kynnti lögreglan, að óhætt væri að fara aftur inn í salinn. Þar voru séra Desmond Tutu afhent friðarverðlaun Nóbels 1984. „Hann flutti sína tilbúnu ræðu en bætti því við,“ sagði Börkur Karlsson, „að atburður dagsins, og þá ekki síður söngurinn á tröppunum fyrir framan bygg- inguna, myndu ekki verða til annars en að stappa stálinu í sig og samstarfsmenn sína, svo þeim auðnaðist að verða enn frekar að liði í baráttunni gegn kynþáttahatri og kúgun.“ U Ljósm Mbl./ Bjarni. Össur Kristinsson, stoötækjasmiöur, meö sýnishorn af nýrri tegund gervi- fóta, sem hann hefur fundiö upp. Samið á Siglufirði SAMNINGAR tókust um helgina milli verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufírði og Vinnuveitendafélagsins á staönum. Samningarnir veröa væntanlega bornir undir atkvæöi í félögunum í kvöld eöa á morgun, aö sögn Kolbeins Friöbjarnarsonar, formanns Vöku. Kolbeinn sagði að samningur- inn væri ekki góður. „Heildar- kjarasamningur ASÍ og VSÍ er slæmur samningur og honum verður ekki breytt í litlu byggðar- lagi í einu vetfangi," sagði Kol- beinn. „Við fengum gerðar minni- háttar breytingar á þeim samn- ingi, sem var felldur hér 20. nóv- ember en ég vil ekki tíunda i hverju þær breytingar eru fólgnar fyrr en félögin hafa afgreitt málið. Samningurinn gildir frá 6. nóv- ember eins og aðrir samningar að- ildarfélaga ASÍ og VSÍ. Atvinnuástand á Siglufirði hef- ur verið gott í ár. Verksmiðju Sigló var lokað í október og misstu þá um 100 manns vinnu sína. Um helmingi þess fólks hefur tekist að fá aðra vinnu, þannig að um 50 Siglfirðingar eru nú á atvinnu- leysisskrá. Óvíst er hvenær Sigló fer aftur í gang,“ sagði Kolbeinn Friðbjarnarson. Skák: Þrír á svæða- mót í Noregi SKÁKSAMBAND tslands sam- þykkti á fundi í gærkvöldi fulltrúa fslands á millsvæðamót í skák í janúar nk. Þeir eru Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pét- ursson. Jón L. Árnason og Guð- mundur Sigurjónsson gáfu ekki kost á sér. íslendingar eiga 3 keppendur á mótinu, Danir, Svíar, Finnar og Norðmenn 2 og Færeyingar einn. Danski stórmeistarinn Bent Larsen tekur þátt í millisvæðamótinu. Sig- urvegarinn kemst áfram í milli- svæðamót, en sá er hafnar í öðru sæti keppir við skákmann númer tvö á öðru svæðamóti. Morgunblaöið/Júliti8. Fri slysstaö í Miklubraut aðfaranótt sunnudagsins. Báöar bifreiöarnar eru mikiö skemmdar. Harður árekst- ur á Miklubraut HARÐUR árekstur varð á gatnamót- um Miklubrautar og Réttarholtsveg- ar laust fyrir klukkan hálf þrjú aö- faranótt sunnudagsins. Ökumaöur lítillar fólksbifreiðar ók norður Rétt- arholtsveg, inn i gatnamótin við Miklubraut og í veg fyrir Land- Rover-jeppa, sem skall á hlið fólks- bifreiðarinnar. Land-Rover-jeppinn valt og fólksbifreiöin stórskemmd- ist. ökumaður fólksbifreiðarinnar og farþegi í jeppanum voru fluttir í slysadeild. Okumaðurinn hlaut höfuðhögg, en farþeginn slapp án teljandi meiðsla. Blikkandi gul ljós voru á gatnamótunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.