Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 45 Formaður Alþýðuflokksins um söluskattshækkunina: Vitlausari en orð fá lýst „ÞESNI ákvörðun um hækkun söluskatts er eiginlega vitlausari en orö frá lýst,“ sagöi Jón Baldvin Hannibalsson formaöur Alþýðuflokksins, er hann var spurður álits á þeirri ákvörðun aö hækka söluskatt um 0,5%. Jón Baldvin sagði ennfremur, aðspurður um hvað hann vildi að gert yrði í staðinn: „Það eru ekki nema nokkrar vikur síðan Albert Guðmundsson fjármálaráðherra svaraði fyrirspurn frá mér og upp- lýsti að ef allar undanþágur frá söluskatti, aðrar en á útflutning og aðföng til samkeppnisiðnaðar, væru afnumdar þá mundi það skila ríkissjóði átta milljörðum í auknar tekjur. Ef þetta væri gert viðurkenndi fjármálaráðherra einnig, að einfaldara kerfi mundi stórbæta skil og innheimtu. Ég áætla það sjálfur upp á tvo millj- arða, þannig að þarna hefur hann tekjustofn upp á 10 milljarða kr., án þess að hækka söluskattinn. Það er einn vandi við þessa að- ferð, hún er varðandi landbúnað- arafurðir sem myndu hækka í verði, en þær eru nú undanþegnar söluskatti. Mín tillaga er sú, að barnafjölskyldur fái, sem svarar þessari upphæð árlega útgreiddar í barnabótum. Það væru kjara- bætur, sem kæmu þeim verst settu til góða og hefðu engin verðbólgu- áhrif. Síðan leggjum við til, að þessum tíu milljörðum yrði varið með ólíkum hætti. Að hluta til til þess að losa þann hluta sjávarútvegs- ins, sem er sokkinn í skuldir, við bráðaskuldir og að hluta til að stöðva allar erlendar lántökur og seðlaprentun, en afgangurinn yrði notaður til að lækka söluskatt úr 21‘/í% niður í 15% og þar með lækka vöruverð í landinu. Síðan eru það eignaskattstillög- urnar okkar, sem skila milljarði, og eru skattlagning á verðbólgu- gróða, stóreignaskattur, en að fara að bætá 'h % við ónýtt og hriplegt söluskattskerfið er svo vitlaust, að það er ekki mönnum bjóðandi." Jón Baldvin sagði í lokin, að taka ætti söluskattinn af öllum innflutningi í tolli. Vegna um- ræðna um svonefnd „skúravið- skipti", sagði hann, að þar færi fram mun betri vinna en á stærri stöðum, og hana ætti alls ekki að afnema. „Það á að táka leyfisgjald af þeim, sem áætlað yrði miðað við söluskattinn. Þetta eru ágætir menn og það á bara að láta þá greiða leyfisgjald." HINSEGIN SÖGUR yw ' \ bórarjnn r Eiajóm YDD FORLAGIÐ kynnir qlettileqa qóðar bækur á viðráðanlegu verði Guðbergur Bergsson Þórarinn Eldjárn Skáldið skyggnist inn í leyndustu afkima þjóðlífsins og dregur sitthvað fram í dagsljósið. Þrettán sögur eftir einn fremsta og frumlegasta rithöfund okkar. Meðal þeirra má nefna Hanaslag hommanna, Undrið milli læranna, Sætu ánamaðkastúlkuna og Náttúrulausa karlinn. Seiðandi sögur - tileinkaðar ástarlífi Islendinga á öllum sviðum. Verð kr. 691,60. EKKERT SLOR Rúnar Helgi Vignisson Sögusviðið er Fiskhúsið hf. í iðandi mannlífi sögunnar birtast ungir þorpsbúar sem fengið hafa slor í hárið og dreymir drauma um lífið utan frystihússins. Oftar en ekki tenqjast draumar þeirra hinu kyninu sem flögrar fyrir augum þeirra meðan bónusinn sveiflar svipunni yfir mannskapnum. Ólg- andi og óstýrilát skáldsaga ungs höfundar. Verð kr. 494,00. Þórarinn hvessir stílvopnið og yrkir á opinskáan hátt um lífsreynslu sína og stöðu sem listamaður. Honum verður málið, máttleysi þess og möguleikar að yrkisefni og á skorinorðan hátt yrkir hann um líf þjóðar sinnar í andlegu stefnuleysi og tilfinningadoða. Áleitin Ijóð sem hitta í mark. Verð kr. 494.00. GAGA Ólafur Gunnarsson Saga Valda í sjoppunni, mannsins sem ákveður að skipta um plánetu og vaknar morgun einn á Mars. Saga mannsins sem lesið hefur yfir sig af tískusögum okkat tíma, líkt og henti Don Kíkóta forðum daga. Sagan um átök einfarans sjúka við sljóan og tilfinningadauðan heim. En er Valdi alveg gaga? - Meistaraleg skáldsaga eins af ágætustu rithöfundum okkar. Verð kr. 494.00. BRÚÐUBÍLLINN KYNNIR: AFMÆLISDAGURINN HANS LILLA Helga Steffensen Hvaða börn kannast ekki við Brúðubílinn? Nú situr Gústi frændi við stýrið og flytur gesti í afmælið hans Lilla. Allir krakkar eru velkomnir! - Ein fallegasta barnabók sem út hefur komið á íslandi. Prýdd Qörutíu stórum litmyndum. Verð kr. 389,00 NY MYNDASAGA: ^ÍTURfÍLLElKS y&udyrið grálynda -feituu ei9inaixr„ atur- undirförull, hrekkjóttur, ujam. morgunsvæfur, matgráðugur. Samt er Grettir ómótstæðilegur. Kattahatarar elska hann líka ef hann nær að læsa í þá klónum. Verð kr. 163,00. FORLAGIÐ FRAKKASTÍG 6A. SÍMh 91-25188 Hopferóabílar 8—50 farþega bílar í lengri og skemmri ferðir Kjartan Ingimarsson Símar 37400 og 32716. Farymann Brigs & Stratton Smádíselvélar 4,5 hö viö 3000 SN. 5.4 hö við 3000 SN. 8.5 hö við 3000 SN. Dísel-rafstöðvar 3.5 KVA og 5,2 KVA SöMirOmflDtuio3 Vesturgötu 16, sími 14680. ÁS-TENGI Allar gerðir. Tengið aldrei stál-í-stál. ■W_L SQyiíllaaflgiiuiir yjfein)©©®® <®t Vesturgötu 16, sími 13280 (bs Slökkvitœki Eigum íyrirliggjandi IBS duítslökkvitœki 6 og 12 kg. BADGER vatnsslökkvi- tœki ÍO l. OlAFUK GlSIASON « CO. HF. SUNOABORG 22 104 REYKJAVlK SlMI 04000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.