Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
67
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Hvar eru
hækkanirnar?
Bréfritari fór í fjölmiólabindindi. í bréfi sínu lýsir hann m.a. þeim áhrifum
sem hann varð fyrir þegar hann fór að líta í dagblöðin á ný.
Hrollur
Kristín Sigmundsdóttir ellilífeyr-
isþegi hringdi:
Eftir að hafa hlustað á forseta
ASÍ í þættinum Síðdegisútvarp 3.
desember get ég ekki orða bundist.
Þeir fullyrða að við höfum fengið í
síðustu kjarasamningum bætur í
samræmi við aðra. En þær hafa
ekki komið í mitt umslag.
Það vantar ekki að þessir háu
herrar og frúr tali fjálglega um að
bæta lægstu launin, sérstaklega
þegar kjarasamingar eru annars
vegar eða kosningar framundan.
En það verður minna um efndir.
Eins og má sjá á þessum tölum
fyrir september, október og nóv-
ember hef ég fengið frá Trygg-
ingastofnun ríkisins 10.896 krónur
á mánuði og tek fram að ég fæ
ekkert frá opinberum sjóðum. Ég
er algjörlega óvinnufær. Nú spyr
ég: Hvar eru hækkanirnar? Og ég
vil fá rétt svar.
Nýja lýsið
er gott
4096-9470 skrifar:
Ágæti velvakandi.
Ég leyfi mér að skrifa nokkrar
línur til að hrósa nýju ufsa- og
þorskalýsisblöndunni sem fram-
leidd er af Lýsisfélaginu í Vest-
mannaeyjum.
Þessi nýja lýsisblanda er að
mínum dómi miklu bragðminni,
þ.e. laus við gamla þráakeiminn
sem fylgt hefur lýsinu frá byrjun.
Ég get að minnsta kosti borið, að
þetta er eina lýsið sem ég get tekið
án þess að fá lýsiskeiminn (þráa-
keiminn) upp í mig daglangt.
Þá finnst mér einnig kostur
smæð flöskunnar (158 gr í stað 220
gr) og þéttihringurinn (dropa-
fangari) í stútnum, sem hvort
tveggja stuðlar að hreinni og ef til
vill girnilegri flösku (að minnsta
kosti fyrir börnin) í kælinum.
Að lokum er vert að geta þess á
þessum síðustu auraleysistímum,
að framleiðendur nýja lýsisins
hafa getað boðið vöru sína á miklu
lægra verði en aðrir miðað við
sama magn pr. flösku.
Árni L. Jónsson skrifar:
Kæri Velvakandi.
Fyrir nokkrum mánuðum fór ég
i fjölmiðlabindindi, þ.e. las ekki
blöð, hlustaði ekki á útvarp og
horfði ekki á sjónvarp. Að sjálf-
sögðu sprakk ég á þessu bindindi
eins og öllum hinum og byrjaði á
því að ná mér í tvö eintök af
Dagblaðinu og fékk rækilega stað-
festingu á því sem rak mig í fjöl-
miðlabindindið, nefnilega það að
við lifum í vitlausum heimi. Eftir
að hafa lesið þessi tvö eintök hafði
ég verið fræddur um eftirfarandi:
20 tonnum af rækju er ekið á
haugana. Sprenglærðir hjúkrun-
arfræðingar handleggsbrjóta
stúlku I sviðsettu flugslysi. Ein
kvennalistakona rassskellir Bald-
ur Hermannsson fyrir það eitt að
vilja eiga mömmu í eldhúsinu.
Brotist er inn í Lögreglustöðina á
Raufarhöfn. — Svo á Siglufirði.
ólafur B. Guðnason kastar skap-
ara himins og jarðar í ruslafötuna
(orðrétt: Hvað varðar þessar
snargeggjuðu og sundurleitu
hugmyndir um Guð, eilífðina og
það allt saman þá sannar það ekki
neitt). Benedikt Axelsson er með
langt háaloft um lausar skrúfur
undir fyrirsögninni „Allt í ólagi".
Skólastelpur komast ekki lengur
heim til sín án þess að eiga það á
hættu að lenda í hanaslag við ein-
hverja hjólhesta ofl. ofl.
Þessi lestur allur hafði sömu
áhrif á mig og lýsingin á bls. 37 í
DV laugardaginn 24. nóvember sl.:
Menn vaða upp í hné í leður-
blökudriti og þar er allt iðandi af
bjöllum og snákum. Þeir verða að
sveifla sér eins og Tarzan í köðlum
yfir gínandi gljúfur og vaða
straumharðar elfur, sem ná þeim
upp í geirvörtur, og ef klettanibba
er nógu hörð til þess að molna
ekki undan handfestu er eins lík-
legt að hún sé nógu hvöss til þess
að veita skurfu.
Góða jólaföstu.
á villigötum
BHM
Háskólakennari skrifar:
Á 6. þingi Bandalags háskóla-
manna var samþykkt tillaga frá
Stefáni Ólafssyni um auknar
álögur eignarskatts og skattlagn-
ingu vaxta umfram verðtrygg-
ingu.
Að þessum tillögum má ýmis-
legt finna efnislega. Annars veg-
ar er hér stungið upp á upptöku
eigna, sem þegar hafa verið að
fullu skattlagðar við öflun
þeirra. Margir eigendur fast-
eigna eru aldrað fólk, sem vill
gjarnan eyða ævikvöldinu í friði
án þess að þurfa að selja hús eða
íbúð. Hins vegar er hvatt til
nýrrar aðfarar að sparifjáreig-
endum, sem hafa verið féflettir
miskunnarlaust á undanförnum
árum eins og kunnugt er, en
meirihluti sparifjár í landinu er í
eigu launamanna. Tillögumaður
BHM bætist nú í hóp þeirra, sem
fyrr og síðar hafa komið í veg
fyrir eðlilega sparifjármyndun á
íslandi, atvinnuvegum landsins
til hagsbóta.
Mestu máli skiptir þó, að þess-
ar róttæku tillögur hafa ekki
verið bornar upp innan aðildar-
félaga BHM. Engin vissa er held-
ur fyrir þvi hver er afstaða
meirihluta félagsmanna. Stefn-
uyfirlýsingar af þessu tagi eru
aðildarfélögum hvatning til þess
að endurskoða aðild sína að sam-
tökunum, enda víða um það
sterkar raddir, að hún sé til lít-
illa hagsbóta.
Það hefði verið meira í anda
háskólamanna að leggja fram
nákvæma og markvissa áætlun
um eflingu atvinnulífs, BHM-fé-
lögum og öllum landslýð til hags-
bóta, en liklega er slíkt ofætlun
þessum heillum horfnu samtök-
um.
nú verða af því að senda vinum um
víða veröld gjöf sem verður þeim
mjög kærkomin — fyrir aðeins kr. 770.
Innifalið sendingargjald um
allan heim.
Gjöf sem berst ekki bara einu sinni
— heldur aftur og aftur — og treystir
tengslin.
Er
Iceland Review ekki rétta gjöfin
fyrir ættingja og vini erlendis?
Iceland Review kemur út fjórum sinnum á ári
— stöðugur straumur af fróðleik
um land og þjóð, með glæsilegum myndum og fjöl-
breyttu efni.
Þú
losnar við allt umstangið, við sendum
blöðin fyrir þig
ásamt kveðju frá þér.
1
S
\J\Ö
V>ú ^
GJAFAASKRIFT
□ Undirritaöur kaupir gjafaáskritt(ir) aö lceland Review 1985 og
greiöir fyrir kr. 770 pr. áskrift. Sendingarkostnaöur um allan
heim innifalinn.
□ Árgangur 1984 veröi sendur ókeypis til viötakanda(enda) gegn
greiöslu sendingarkostnaöar kr. 220 pr. áskrift.
Ofangreind gjöld eru í gildi til ársloka 1985. Áskrift öölast gildi
þegar greiösla berst.
Nafn áskrifanda
Simi Heimilisfang
Nafn móttakanda
Heimilisfang
Nöfn annarra móttakenda fylgja meö ó öðru blaði.
Sendið til lceland Review, Höföabakka 9, Reykjavík,
eða hríngið í sima 84966.