Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
Nýtt kennslufyrir-
komulag við barna-
skólann á Húsavík
_ Húsavík, 3. descnber.
Á SÍÐAS'TA ári var tekið upp nýtt
kennslufyrirkomulag við Barna-
skóla Húsavíkur og bað ég því
skólastjórann, Sigurð Hallmars-
son, að skýra fyrir mér þetta nýja
fyrirkomulag og fer greinargerð
hans hér á eftir:
Á síðasta ári var beitt nýjum
starfsháttum í skólanum í tals-
vert ríkara mæli en áður hafði
verið. Upphaflega var þetta
hugsað að nokkru til samstarfs
sem leitt gæti af sér sparnað,
auk þess sem reynt var að nýta
ganga skólans sem kennslurými.
Fóru kennarar suður til Reykja-
víkur og Akraness til að sækja
sér fyrirmynd að sveiganlegu
starfi er nota mætti við okkar
aðstæður. Reynsla sl. vetrar var
slík, að ákveðið var í vor að við
skyldum beita sveigjanlegu
starfi í öllum skólanum í vetur.
Nokkrar lagfæringar voru
gerðar svo þetta mætti verða. Til
dæmis voru gangar teppalagðir
svo og skálinn uppi, en hann er
nú nýttur sem kennslustofa.
Auðvitað erum við að fikra
okkur áfram og sníðum starf
okkar að verulegum hluta eftir
aðstæðum hér og við reynum að
skapa aðstæður hagstæðar
starfinu. En hvað er sveigjanlegt
skólastarf?
Um það er oftast rætt og ritað
eins og allir hljóti að vita við
hvað er átt. Hvernig það fer
fram og í hverju breytingin sé
fólgin frá því hefðbundna, þ.e.
þvi sem flestir foreldrar þekkja
og enda lærðu við sjálfir. Ekki
ætla ég að gera þessu máli nein
skil hér, enda sjálfsagt ekki til
þess ætlast. En í stuttu máli er í
sveigjanlegu skólastarfi reynt að
koma meira til móts við nem-
andann sem einstakling, þarfir
hans og þrár.
Hann ræður meiru um sinn
vinnuhraða. Hann getur hlutast
til um val þess verkefnis sem
hann fær til úrlausnar. Hann
gerir sér, í samráði við kennara,
námsáætlun fyrir viku í senn og
þegar árangur hverrar viku er
skoðaður er næsta áætlun gerð.
Þetta hvetur börnin til sjálfs-
ábyrgðar í námi og veitir meira
aðhald en margir halda. Þau
starfa mun sjálfstæðara að nám-
inu, en með eldra skipulaginu,
þar sem allir áttu að gera sömu
hlutina á sama tíma.
Skólaform þetta er komið frá
Bretlandi, þar sem því hefur ver-
ið beitt í náiega aidarfjórðung.
Hér á {slandi var þetta kennslu-
form fyrst reynt í Fossvogs-
skóla, sem var upphaflega til-
raunaskóli á þessu sviði. Þykir
hann hafa gefið góða raun og
sannast það, að nemendur þaðan
eru ekki síðri til að takast á við
nám á eldri stigum grunnskóla
þar sem hefðbundnar aðstæður
eru, en þeir sem úr bundnu
bekkjarkerfi koma.
Fullvíst þykir að sveigjanlegt
skólastarf reyni meira á undir-
búning og hugkvæmni kennar-
ans, sveigjanleika hans sjálfs og
samstarfshæfni við aðra kenn-
ara og sjálfsagt er erfitt að taka
það upp, nema þar sem kennara-
liðið er stöðugt. Hér á Húsavík
höfum við verið svo heppin að
lítil kennaraskipti hafa átt sér
stað og hefur verið hér nálega
sami kjarninn í kennaraliðinu sl.
áratug. Við trúum því vissulega
að við séum á framfaraleið, þótt
Nemendur við skáknám á Húsavík.
Nemendur við vinnu sína í skólanum á Húsavík.
okkur finnist margt megi betur
fara og vonandi verður það ætíð
svo, en meðan það er skoðun
okkar að þetta kennsluform
megi verða til þess að gera nem-
endur hamingjusamari, þ.e. sælli
í starfi og sáttari við sig og sitt
umhverfi ber okkur að beita því.
Þannig fórust Sigurði Hall-
marssyni skólastjóra orð um
þessa nýju og eftirtektarverðu
breytingu, sem nú er að ryðja sér
til rúms, þó en sé óvíða komin.
Fréttaritari.
Framleiðum nú síróp sem stenst kröfur bakarameistarans.
Rammíslenskt og gott í allan bakstur.
Gerið verðsamanburð.
Einnig bjóðum við síróp í stærri einingum fyrir
bakarí, veitingastaði og mötuneyti.
MATVÆLAIÐJAN MAR, SKÚTAHRAUNI 7, HAFNARFIRÐI, SÍMI 7 98 80
®aed
Svavar Gestsson um söluskattshækkunina:
Tekjuskatts-
lækkunin aðeins
skattaskipting
„MÉR FINNST að þetta sé að
mörgu leyti sérkennileg niðurstaða,
að hækka neyzluvörur, þegar ríkis-
stjórnin er búin að létta sköttum af
fyrirtækjum upp á mörg hundruð
milljónir króna,“ sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins í tilefni af ákvörðun um 0,5%
söluskattshækkun.
Hann sagði síðan: „í annan stað
er sérkennilegt, hvernig málið
hefur borið að. Þessi ákvörðun
virðist hafa verið erfið fyrir ríkis-
stjórnina og hefur sýnt glöggt
veikleika stjórnarinnar. í þriðja
lagi tel ég rétt að komi fram, að ég
geri ráð fyrir að við verðum á móti
þessari söluskattshækkun."
Aðspurður um hvað Alþýðu-
bandalagið vildi gera í staðinn
sagði hann: „Við höfum bent á
margar leiðir. Það mætti til dæm-
is taka upp um það bil einn þriðja
af þeim sköttum, sem ríkisstjórn-
in hefur létt af fyrirtækjum, til
þess að vega upp í þessa upphæð.
Þá má benda á það að lokum, að
þessi 600 millj. kr. lækkun tekju-
skatts, sem svo er kölluð, er nátt-
úrlega aðeins skattaskipting
reinilega, en ekki skattalækkun.
staðinn fyrir þessa lækkun
tekjuskatts er söluskattur hækk-
aður og auk þess gert ráð fyrir
stórauknum tekjum af sölu áfeng-
is og tóbaks.
Nýr söluturn á
Seltjarnarnesi
NÝLEGA hefur verið opnaður söluturn við Sundlaug Seltjarnarness. Eigandi
er Óskar G.H. Gunnarsson, Seltjamarnesi. Söluturninn er opinn frá kl. 7.30
til 24.00 á kvöldin.