Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
33
ÓAinnéuin, Danmörku, 10. desember. AP.
ÞAÐ VAR í fyrsta sinn í
u.þ.b. tvær aldir sem týnda
sinfónían hljómaði, þegar
hún var flutt í nýju tónlist-
arhöllinni í Óðinsvéum á
sunnudagskvöld, og verkið
þótti allt í senn fjörugt,
hljómfagurt og leikandi létt
og bera vitni æskumannin-
um og snillingnum sem tal-
ið er að hafi samið það,
Austurríkismanninum
Wolfgang Amadeus Moz-
art.
Meðal áheyrenda, sem voru
hvarvetna að úr heiminum, var
Ingiríður ekkjudrottning. Var
Óðinsvé:
Gunnar Thygesen, skjalavörður
sinfóníuhljómsveitarinnar í
Óðinsvéum, með nótnablöð
Mozart-sinfóníunnar.
f -
jgHf:
.
w**".;
Wolfgang Amadeus
Mozart. Myndina
gerði Joseph Lange
1782—83. Frum-
myndin er í Mozart-
safninu í Salzburg,
en haft var eftir
Constönzu, eigin-
konu Mozarts, að
myndin líktist hon-
um ótrúlega mikið.
Týnd sinfónía flutt í
fyrsta skipti í 200 ár
Þótti bera vitni æskumanninum og snillingnum, sem taliö er að hafi samið hana
sinfóníuhljómsveit Óðinsvéa og
ungverskum aðalstjórnanda
hennar, Tamas Vetoe, fagnað
ákaflega að loknum hnökralaus-
um og innblásnum flutningi
verksins. Hlaut það titilinn
Óðinsvéasinfónía Mozarts
KV16A.
Danska ríkisútvarpið hafði
beina útsendingu frá tónlistar-
viðburðinum og breska útvarpið,
BBC, hljóðritaði hann. Hópur
sjónvarpsfólks á vegum Dana,
Breta, Bandaríkjamanna og Jap-
ana gerðu sameiginlega klukku-
tíma heimildardagskrá um þessa
endurfæðingu sinfóníunnar. Er
áætlað að um 250 milljónir
manna sjái hana. Þá gerðu Bret-
ar hljómplötu með flutningi sin-
fóníuhljómsveitar Óðinsvéa-
borgar, hina fyrstu sem hljóm-
sveitin leikur inn á. Átti platan
að koma út í dag, mánudag.
Sinfónían sem er í A-dúr
skiptist í þrjá þætti, allegro
moderato, andantino og rondo og
allegro moderato, og hefur að
öllum líkindum verið skrifuð í
Vín árið 1768, þegar Mozart var
12 ára gamall.
í túlkun Vetoes hljómsveitar-
stjóra þótti hinn fjörugi fyrsti
kafli minna á stef í óperu sem
Mozart samdi löngu síðar, Töfra-
flautunni. Og í öðrum þætti, sem
er hægur, brá fyrir laglínu, sem
þótti líkjast stefi í óperu Glucks,
Orfeus og Evridís, sem Mozart
kann að hafa heyrt í Vín
skömmu áður en hann samdi
sinfóníuna.
En það, sem virtist sannfæra
flesta um að þeir væru að hlusta
á tónlist eftir hinn eina og sanna
Mozart, var rondo og finale.
Þegar Gunnar Thygesen,
skjalavörður hljómsveitarinnar,
fann sinfóníuna snemma árs
1982, í skjalasafni hljómsveitar-
innar, var þegar vitað um tilvist
verksins, sem getið er í skrá
Koechels yfir um 600 verk Moz-
arts. Á meðal verkanna í skránni
eru nærri 50 sinfóníur. Mun af-
ritið sem Thygesen fann hafa
komist í eigu danskra tónlistar-
áhugamanna í Hamborg árið
1793, en síðan er ekkert vitað um
afdrif þess fyrr en skjalavörður-
inn gróf það upp fyrir rúrnum
tveimur árum.
Vatnsmerki á pappírnum sem
afrit sinfóníunnar er skrifað á
sannar að hann er framleiddur
1773. Sérfræðingar um tónlist
hafa heldur ekkert fundið í
verkinu, sem stríði gegn því, að
Mozart geti verið höfundurinn.
Jens Peter Jensen, danskur sér-
fræðingur í að bera kennsl á
gamla tónlist, sagði: „Við erum
eins nærri því að vita þetta fyrir
víst og hægt er án þess að hafa
upprunalega handritið í höndun-
um.“
Bandariskir dýraviiiir:
Rændu
tilrauna-
dýrum
Doarte, Kaliforníu, 10. desember. AP.
FJÖLDI hunda með krabba-
mein og kanínur haldnar al-
varlegum smitsjúkdómi voru
í hópi þeirra rösklega eitt
hundrað dýra, sem rænt var
frá rannsóknarstofnun í
Hope-borg í Kaliforníu um
síðustu helgi.
Hópur manna, sem nefnir
sig Animal Liberation (Frels-
un dýra), hefur lýst ábyrgð
ránsins á hendur sér, að því er
Ingrid Newkirk, talsmaður
samtaka í Los Angeles, sem
berjast fyrir góðri meðferð á
dýrum, greindi frá í dag. Hún
sagði, að Hope-borg væri „út-
rýmingarbúðir" þar sem gerð-
ar væru þjáningarfullar til-
raunir á dýrum.
Talsmenn rannsóknarstofn-
unarinnar segja að ránið muni
setja úr skorðum rannsóknir á
krabbameini, „herpes" og
fleiri sjúkdómum, sem kosta
hálfa milljón bandaríkjadala.
Þeir vildu ekkert segja um
staðhæfingar um illa meðferð
á tilraunadýrunum og heldur
ekki hvort sú fullyrðing dýra-
verndarsinna, að dýr væru
notuð við rannsókn á AIDS,
áunninni ónæmisbæklun,
hefðu við rök að styðjast.
Ekki er talið að dýrin, sem
rænt var, muni bera út sjúk-
dóma, en talsmenn rannsókn-
arstofnunarinnar segja að
brýnt sé að þeim verði skilað,
svo unnt sé að ljúka rannsókn-
um þeim, sem þau eru notuð
við. „Fjöldi manna þjáist af
hræðilegum sjúkdómum. Til-
raunirnar á þessum dýrum eru
gerðar í því augnamiði að
hjálpa þessu fólki," sögðu tals-
mennirnir.
Nicaragua:
Mennta-
mála-
ráðherra
rekinn
úr reglu
jesúíta
Páfagarói, 10. desember. AP.
Menntamálaráðherrann í Nic-
aragua, sem setið hefur í ríkis-
stjórn sandinista í trássi við vilja
páfa, hefur verið rekinn úr jesú-
ítareglunni. Skýrði talsmaður
hennar frá því í dag.
Johannes Gerhartz, talsmaður
jesúítareglunnar, sagði að yfir-
menn hennar í Mið-Ameríku
hefðu afhent Fernando Cardenal
skjal þar sem honum hefði verið
skýrt frá brottrekstrinum, en auk
hans hefur Páfagarður reynt að fá
þrjá aðra kaþólska presta til að
segja af sér opinberum embætt-
um. Er þar um að ræða Miguel
D’Escoto, utanríkisráðherra, Em-
esto Cardenal, menningarmála-
ráðherra og bróður Fernandos, og
Edgard Parrales, sendiherra Nic-
aragua hjá Samtökum Ameríku-
ríkja.
Eldföst föíog skálar
í kopargrind
K3STA
BODA
Bankastræti 10. Sími 13122