Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 53
MÖRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
53
Aflaverðmæti Hafþórs 14 milljónir
króna síðan í september:
„Rækjuveiðin nán-
ast vonlaus nema
fryst sé um borð“
„ÞETTA gengur aldrei nógu vel,
en er þó miklum mun betra síft-
an við settum frystitæki um borft
í skipið seinni hluta sumars. Út-
hafsrækjuveiðin virðist nánast
vonlaus, nema rækjan sé fryst
um borð, svo mikill er afkomu-
munurinn,“ sagði Birgir Valde-
marsson, útgerðarmaður Haf-
þórs á ísafirði, í samtali við
Morgunblaðið.
Hafrannsóknaskipið Hafþór
hefur nú verið í leigu nokkurra að-
ila á ísafirði síðan í marz á síðasta
ári og verið gert út á úthafsrækju.
Fyrst í stað var rækjunni landað
til vinnslu í rækjustöðvum á ísa-
firði og Hnífsdal, en síðla sumar
voru sett í skipið frystitæki og
rækjan síðan fryst um borð og
flutt út til Japan.
Birgir sagði ennfremur, að Haf-
þór væri nú á veiðum á Dorn-
banka, en erfið veður á þessum
árstíma drægju nokkuð úr afla. Á
hinn bóginn væri verð fyrir sjó-
frysta úthafsrækju mjög gott um
þessar mundir. Það væri Seifur hf.
sem annaðist söiu hennar til Jap-
an og frá því frystitækin hefðu
verið sett um borð og skipið hafið
veiðar að nýju í september væri
aflinn orðin 81 lest að verðmæti
um 14 milljónir króna. Kostnaður-
inn við breytingar á skipinu til
þessa væri um 20 milljónir króna,
sem leigjendur hefðu lagt út fyrir
sjálfir. Þessar breytingar hefðu
verið nauðsynlegar, því þessar
veiðar væru nánast vonlausar, ef
rækjan væri ekki fryst um borð.
Á fjórða þúsund
hestar í Reykjavík
HESTAEIGN Reykvíkinga hefur
aukist um helming á undanfornum
tíu árum, en alls voru 3.395 hestar
skráðir í eigu borgarbúa í árslok
1983.
Á Reykjanessvæðinu voru 6.392
hross á skrá í ársiok 1983, en árið
1973 voru þeir 3.459. Hestaeign
íbúa Reykjanessvæðis skiptist
sem hér segir: Reykjavík 3.395,
Kópavogur 960, Seltjarnarnes 26,
Garðabær 188, Hafnarfjörður 914,
Kjósarsýsla 548, Grindavík 8,
Keflavík 222, Njarðvík 22, Gull-
bringusýsla 109.
Nýjasta bók
Alistair McLean
IÐUNN hefur gefið út nýjustu bók
Alistair MacLean; „Dyr dauðans".
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Dyr dauðans gerist á slóðum
sem mörgum íslendingum eru nú-
orðið kunnar, þ.e. í Amsterdam
þar sem hann teflir saman óbil-
gjörnum hryðjuverkasamtökum
og yfirvöldum landsins. í upphafi
bókarinnar er hinn frægi flugvöll-
ur Hollendinga Sciphol kominn á
kaf í vatn, flugvélarnar liggja sem
hráviður umhverfis flugstöðvar-
bygginguna og ráðamenn sitja á
neyðarfundum því að búist er við
frekari ógnum af hendi hryðju-
verkamanna."
Ráðstefna um sveigj-
anlegan vinnutíma
RÁÐSTEFNA um sveigjanlegan
vinnutíma í fyrirtækjum verður hald-
in fimmtudaginn 13. desember kl.
13.30 í Hugvísindahúsi Háskóla ís-
lands.
Á ráðstefnunni verður kynnt
könnun, sem gerð var í 30 fyrir-
tækjum á sveigjanlegum vinnu-
tíma. 4. árs nemendur í viðskipta-
deild HÍ standa að ráðstefnunni
og hefur Þórir Einarsson prófess-
or skipulagt hana. Öllum er heim-
ill aðgangur.
favrjum dcgi'
I commodore
HEIMILISTÖLVUR
Commodore-heimilistölvur eru fjölhæf undratæki. Þær tefla við þig skák, spila
við þig, hjálpa til við ritgerðina eða útreikningana. Commodore-heimilistölvur
tengjast beint við sjónvarpið í stofunni.
Commodore-64 Jólagjöfin íár
F= ÁRMÚL'A 11 SlMI 81500
9*3
'tonleot i Sír/us r
'^eftiri agðSon O0 , , c.,,
<hl: svl *tlSnest/ ferfá* W su^ erT***1"*
«1.
v*»ilin "'£eitl úr
Ur *eidt
200
&.
Síríus
Kbnsum
suðusúldadaði
Gamla góða Síríus Konsum
súkkulaðið er í senn úrvals
suðusúkkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og drjúgt til suðu
og í bakstur, enda jafnvinsælt í
nestispökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Síríus Konsum er vinsælast hjá
þeim sem velja bara það besta.
MQH