Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
félk í
fréttum
Omega-
verðlaunin veitt
Ted Kennedy Jr. missti annan fót-
inn fyrir nokkrum árum vegna
krabbameins. Hann hefur alla tíð síð-
an barist ötullega fyrir málefnum
fatlaðra í Bandaríkjunum. Nýlega var
hann heiðursgestur og veitti Omega-
verðlaunin sem eru gefin fötluðu fólki
er skarar framúr á einhverju sviði.
Að þessu sinni komu verðlaunin í hlut
tennisleikarans Jody Trucks sem hef-
ur staðið sig einstaklega vel í íþrótt-
inni þrátt fyrir fötlun sína.
85 BRÚÐARPÖR
GIFTU SIG SAMAN
Leigðu síðan júmbóþotu
+ Ekki alls fyrir löngu tóku 85 pör sig saman í
Singapore og héldu sameiginlegt brúðkaup. Eftir
athöfnina sem tók sinn tíma var farið beint út á
flugvöll þar sem kransakakan og júmbóþota biðu.
Nýju hjónakornin höfðu nefnilega leigt sér þotu til
að fara með um loftin blá til tilbreytingar. Um
borð var þeim veitt kampavín og meðlæti, en síðan
var lent á jörðinni aftur og hver fór til síns heima.
Gullaldarmenn
rifja upp gamla tíma
HÍÐAmJDINN DWadifir var 1960, en á því timabili varð
f Wf» Akrmnen* ea Akranes iaUndsmeiaUn aex
M kem ét fjrraU bimálé I méfm i.nnum Um njestu jól kemur ut
knatt^yrnennar á Akraneaá, seinna bindift og fjallar þaft um
„Hkagamean *nrnén mArkin" L hift svooefnda seinna gullaldar-
Hófnndar era þrir, Jóa Gaan- timabil 1970-1984, er Akranes
laa^aa. Higtryggnr Htgtryggsnsn vann titilinn i ónnur sex skipti.
eg Hignránr Hverriasoa. I tilefni af útkomu bókarinnar
Bókin .Skagamenn skoruftu hittust nokkrir af félðgum hina
mðrkin* fjallar um hift sigur- gamla gullaldarliðe á Akranesi
a*la timabil Skagamanna I og var meðfylgjandi mynd tekin
knattapyrnu allt frá 1951 til af nokkrum þeirra ásamt sonum.
Feðgamyndataka
+ „Gamlir“ gullaldarknattspyrnumenn á Akranesi komu saman á
dögunum í tilefni útkomu bókar um hið frækna gullaldartímabil
1950—1960. Viðstaddir voru nokkrir synir kappanna, sem tóku við
merkinu og hafa leikið í seinna gullaldarliði í A árin 1974 til 1984.
Mynd af þessum atburði birtist í Morgunblaðinu og svo skemmti-
lega vildi til að það var sonur eins úr gullaldarliftinu sem tók þá
mynd, Friðþjófur Helgason Daníelssonar, hins kunna markvarðar.
Á meðfylgjandi mynd Árna Árnasonar má sjá Friðþjóf að störfum.
í forgrunni er Helgi faðir hans á tali við ljósmyndarann Bjarnleif
Bjarnleifsson. Þess má geta að Friðþjófur var liðtækur knatt-
spyrnumaður og lék m.a. með f A í Evrópuleik á Möltu 1971.
Það þarf ekki að taka fram að kátt var á hjalla hjá gullaldar-
köppunum er þeir rifjuðu upp minningar frá „hinum gömlu góðu
dögum“.
Andrea-Albert
í göngutúr með mömmunni
Það eru ekki bara íslensku konurnar sem ganga með börnin
framan á maganum í poka. Karólína Mónakóprinsessa var ný-
lega með son sinn framan á maganum í París og þau mæðginin
virtust kunna þessu vel, eftir myndinni að dæma.
Bretadrottning
heiðrar Hayek
Elísabet II Bretadrottning
sæmdi prófessor Friedrich
Hayek nýlega virðulegri orðu, en
henni fylgir titillinn „Companion
of Honour“, skammstafað CH.
Hér sést Hayek með orðuna fyrir
framan hlið Buckingham-hallar,
bústað drottningar í London.
Friedrich Hayek kom hingað til
lands fyrir nokkrum árum og
flutti meðal annars fyrirlestur í
hátiðarsal Háskóla fslands. Hann
hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði
1974. Þekktasta verk hans Leiðin
til ánauðar hefur komið út á ís-
lensku i þýðingu Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar, útgef-
andi er Almenna bókafélagið.
í tilefni af því að í ár eru 40 ár
liðin frá því að Leiðin til ánauðar
kom út hefur The Institute of Eco-
nomic Affairs gefið út pappírs-
kilju með ritgerðum um verkið og
áhrif þess, og er Hannes H. Giss-
urarson meðal höfunda í þeirri
bók.