Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
29
Samstarfsverkefni fjögurra rannsóknarfyrirtækja í líftækniiðnaði:
65,5 milljónum varið í verkefnið næstu 3 ár
NEFND skipud af rannsóknarráði
ríksins og líftækninefnd Háskóla fs-
lands hefur að undanfornu unnið að
athugunum á því, hvernig hraða
megi þróun lífUekniiðnaðar á fs-
landi. Nefndin hefur gert tillögu um
umfangsmikið samstarfsverkefni
fjögurra rannsóknarstofnana um
vinnslu ensíma úr íslenzku hráefni.
Smstarfsverkefni þetta mun taka
þrjú ár og er heildarkostnaður áætl-
aður alls 65,5 milljónir króna, þar af
16,4 milljónir á árinu 1985. Þær
rannsóknarstofnanir sem hér um
ræðir eru Raunvísindastofnun Há-
skóla íslands, Líffræðistofnun Há-
skólans, Rannsóknarstofnun fisk-
iðnaðarins og Iðntæknistofnun fs-
lands.
Markmið þessa samstarfsverk-
efnis er að leita leiða til að vinna
próteinkljúfandi ensím á ýmsum
hreinleikastigum úr fiskúrgangi
og hveraörverum. Samtímis þessu
verða rannsakaðir notkunarmögu-
leikar þessara ensíma og annarra
í fiskiðnaði. Þá verða kannaðir
notkunar- og markaðsmöguleikar
þessara ensímafurða fyrir annan
matvælaiðnað, almennan iðnað,
heilsugæslu og rannsóknir. í þessu
sambandi verða allir eiginleikar
ensímanna rannsakaðir til að afla
nauðsynlegra upplýsinga og þekk-
ingar, sem er forsenda vinnslu,
hagnýtingar og markaðssetn-
ingar.
Ráðgert er að vinna að tveimur
meginverkefnum, annars vegar
vinnslu kuldavirkra ensíma úr
fiski og hins vegar hitaþolinna
ensíma úr hveraörverum. Þessi
verkefni munu skiptast í þrjá
megin verkþætti, þ.e.:
1. Rannsóknastofuvinnslu ensím-
anna og rannsóknir á eiginleik-
um þeirra.
2. Frumvinnsla og tilrauna-
vinnsla.
3. Hagnýting ensimanna og mark-
aðsrannsóknir.
í skýrslu rannsóknastofnana er
bent á að kostnaður við fyrstu
verkefnisstigin er að jafnaöi lítill
miðað við stofnkostnað fram-
leiðslufyrirtækja.
Eftir því sem undirbúningur
verður betri, minnkar fjárhagsleg
óvissa. Því er gert ráð fyrir fram-
lögum til grunnrannsóknarstarf-
seminnar og frumkannana, en að
ýmsir áhugaaðilar taki þátt í fjár-
mögnun og starfsemi síðar meir.
Þá er áætlað að leita til norrænna
samstarfsaðila og kannaðir verða
möguleikar á fjármögnun sam-
starfsverkefnisins úr norrænum
iðnþróunarsjóðum.
Gert er ráð fyrir að þegar á
næsta ári megi hefja undirbúning
að stofnun sérstakra þróunarfyr-
irtækja um framleiðslu og sölu á
þeim ensímum sem verið er að
skipuleggja áframhaldandi rann-
sóknir á og unnið hefur verið að á
undanförnum árum. Áætlað er að
nokkrir þeirra starfsmanna, sem
vinna að umræddum verkefnum,
muni fylgja verkefnunum út í at-
vinnulífið, þegar þar að kemur að
hefja megi framleiðslu á þeim.
Nefndin bendir á áhugaverða
þróun, sem orðið hefur í rafeinda-
iðnaði hérlendis, þar sem hópur
starfsmanna frá Raunvísinda-
stofnun Háskólans fylgdi með
framleiðslu og sölu á rafeindavog-
um og tölvukerfum fyrir fisk-
vinnsluhús, þegar stofnað var
hlutafélagið Marel hf. Það fyrir-
tæki hefur á einu ári vaxið úr 4
starfsmönnum í 22 og tífaldað söl-
una á rafeindavogunum hérlendis
og erlendis.
STOFNF.TARREIKNINGUR
S KATTA LÆKKUN
, OG EIGIN
FJARFESTING
Árni Larsson
Tvær nýjar ljóða-
bækur eftir
Árna Larsson
IJODSMIDJAN sf. í Reykjavík hefur
sent frá sér tvær Ijóóabækur eftir Árna
Larsson. Bækurnar heita Drð elta
fugla og Góðvonarhöfuð. Þær hafa að
Ijeyma um hundrað Ijóð, og er önnur
bókanna myndskreytt. Ljóðabækurnar
eru prentaðar í prentsmiðjunni Rún og
bundnar inn hjá Arnarbergi.
Áður hafa komið út eftir Árna
Larsson bækurnar Uppreisnin í
grasinu (skáldsöguþættir) 1972 og
ljóðabókin Leifang vindanna 1974.
Ennfremur er í ráði hjá Ljóða-
smiðjunni sf. að gefa út blaða- og
tímaritsgreinar eftir Árna frá árun-
um 1970—1983. Greinasafnið ber
heitið Þrumudýrðin og kemur það út
snemma á næsta ári.
Ljóðabækurnar Orð elta fugla og
Góðvonarhöfuð fást í bókaverslun
Braga í Lækjargötu, hjá ísafold,
bókaverslun Máls og menningar,
bókaverslun Sigfúsar Eymundsson-
ar, og í Bóksölu stúdenta.
Framlög einstaklinga til atvinnurekstrar eru frádráttarbœr frá skatt-
skyldum tekjum að vissu marki skv. nýjum ákvœðum skattalaga.
Frádráttur má vera allt að kr. 20.000.- á ári hjá einstaklingi eða kr.
40.000.- hjá hjónum.
SKILYRÐI
Til þess að njóta þessara skattafríðinda geta einstaklingar m.a. lagt fé
inn á stofnfjárreikning í því skyni að stofna síðar til eigin atvinnu
rekstrar.
Stofnun atvinnurekstrar má fara fram hvenœr sem er innan 6 ára frá
lokum innborgunarárs.
INNLÁNSKJÖR
Stofnfjárreikningarnir eru sérstakir innlánsreikningar bundnir í 6
mánuði. Innstœður eru verðtryggðar samkvœmt lánskjaravísitölu.
HAGDEILDIN AÐSTOÐAR
Hefur þú í hyggju að stofna til eigin atvinnurekstrar með þessum
hœtti? Sé svo geturþú leitað til sérfrœðinga Hagdeildar Landsbankans
að Laugavegi 7 Reykjavík og ráðfœrt þig við þá um rekstur fyrirtœkja
þér að kostnaðarlausu.
Upplýsingar um stofnun stofnfjárreikninga eru veittar í sparisjóðs-
deildum Landsbankans
LANDSBANKTNN
Græddur er geymdur eyrir