Morgunblaðið - 11.12.1984, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
Tvær
ljósperlur
Einn daginn á leiðinni í vinnuna
freistast ég til að kveikja á hádeg-
isfréttum útvarpsins. Fyrsta
fréttin greinir frá aftökum flug-
ræningjanna í Teheran, er í
smáatriðum lýst hvernig þeir
skjóta farþegana eftir að hafa
bundið þá á höndum og fótum,
næsta frétt greinir frá morðum á
Sri Lanka, hvernig „skæruliðar
tamila" fara að því að brenna
blásaklausa vegfarendur inní
rútubíl, þriðja fréttin lýsir
ástandinu t kringum eiturefna-
verksmiðju Union Carbide í fá-
tækrahverfum Bhopal. Þegar hér
var komið sögu, var ég löglega af-
sakaður að slökkva á viðtækinu,
því fararskjótinn hafði teymt mig
á áfangastað. En ekki voru það
fagrar hugsanir er ég bar með mér
frá hádegisfréttum útvarpsins til
móts við blessuð börnin þar sem
þau streittust við jólaprófin. Þetta
voru myrkar hugsanir, er leiddu
mig fram og aftur um jarðar-
kringluna. Þar sá ég fyrir mér
mannskepnuna sem hið aumasta
dýr jarðarinnar, þrátt fyrir öll
glæsilegu hugverkin og þrátt fyrir
öll trúarritin er lofa eilífu lífi eftir
þennan dag. Veruleiki stóru
fréttastofanna er allur annar, þar
er mannskepnan leidd fram á
hengiflugið, þar sem hún stendur
frammi fyrir þeirri staðreynd, að
hinir hjartahreinu og umkomu-
lausu eru gjarnan myrtir með
köldu blóði en morðingjarnir
sleppa með bros á vör. Gagnvart
slíku óréttlæti stöndum vér
máttvana, þar dugir skammt viss-
an um fegurra líf handan grafar.
Ljósperlur
í myrkrinu
Til allrar hamingju taka fréttir
ekki allan dagskrártímann hér á
landi, annars væri þjóðin fyrir
löngu búin að grafa sig oní kjarn-
orkubyrgi. f dagskrá ríkisfjölmiðl-
anna þessa helgi voru til dæmis
nokkrar ljósperlur er lýstu andar-
tak upp þennan myrka heim er vér
byggjum. Vil ég rétt minnast á
tvær þeirra. Á laugardagskvöldið
klukkan 22.30 sýndi sjónvarpið ít-
alska sjónvarpsmynd er lýsti
þriggja daga gönguferð nokkurra
menntaskólanema til Flórens-
borgar. Það er engin furða þótt
Italir ráði pelsatískunni, hús-
gagnatískunni og ég veit ekki
hvað. Hvílíkir smekkmenn, í það
minnsta var hver sena í þessari
mynd einsog lítið ljóð og samt var
söguþráðurinn hnökralaus.
Kannski stafar þetta af því hve
menningin er samrunnin þessu
fólki, það hefur fegurðina allt í
kringum sig í málverki, bygging-
um, höggmyndum. Já svo sannar-
lega hefir myndlistin auðgað
kvikmyndalist þessarar þjóðar.
Þetta er sönnun þess að leyni-
þræðir liggja milli hinna ýmsu
listgreina, rétt eins og milli
manna og hests.
Hin perlan
Hina ljósperluna fann ég oní
nuddpotti Sundhallarinnar í
Kastljósi Sigurveigar Jónsdóttur,
en því bcindi hún meðal annars að
92 ára gömlum unglingi er fundið
hefur „uppsprettu hinnar eilífu
æsku“ í volgu vatni og hæfilegri
hreyfingu. Það er sannarlega upp-
örvandi að sjá menn svo hressa á
tíræðisaldri og fá á því staðfest-
ingu að reglulegar sundferðir,
göngutúrar eða leikfimi geta vakið
stirðnuð liðamót til lífs og veitt
ómælda gleði hinum öldruðu, sem
svo sannarlega eru ekki deginum
eldri en tvítugir — í andanum að
minnsta kosti.
— Ólafur M.
Jóhannesson
UT VARP / S JON VARP
Þingsjá í kvöld í stað
Harmleiksins í Varsjá
■■■■ Breyting verð-
9920 ur á dagskrá
sjónvarpsins í
kvöld. Sýningu bresku
heimildamyndarinnar
Harmleikurinn í Varsjá
verður frestað og í stað
hennar verður þátturinn
Þingsjá á dagskrá.
Umsjónarmaður þátt-
arins er Páll Magnússon.
f þættinum munu for-
ystumenn stjórnmála-
flokkanna koma fram og
sitja fyrir svörum. í sjón-
varpssal verður einnig
þrjátíu manna hópur, sem
mun leggja spurningar
fyrir forystumennina. Eru
fimm manns tilnefndir af
hverjum flokki.
Gera má ráð fyrir að
dagskrá sjónvarpsins
lengist eitthvað og að
fréttir í dagskrárlok verði
um kl. 23.30.
Með smu lagi:
Lög við ljóð
eftir Tómas
■■■■ f dag leikur
1 CT 00 Svavar Gests
AíJ-” lög af íslensk-
um hljómplötum í þætti
sínum „Með sínu lagi“,
sem er á dagskrá rásar 2.
Að þessu sinni verða
tekin fyrir ýmiss konar
lög, þó aðallega dægurlög,
sem samin hafa verið við
ljóð eftir Tómas Guð-
mundsson. Einnig mun
Svavar grípa niður í einn
og einn kafla úr bókinni
„Svo kvað Tómas" eftir
Matthías Johannessen.
Að sögn Svavars er í
hverjum þætti tekið fyrir
ákveðið efni, svo þáttur-
inn sé samfelldur frá upp-
hafi til enda. Fjallað er
um ákveðinn textahöfund,
Tómas
Guðmundsson
tónskáld eða söngvara og
eru eingöngu flutt lög af
íslenskum hljómplötum,
eins og undirtitill þáttar-
ins ber með sér.
Lesið úr nýjum
barna- og unglingabókum
■■^B Þátturinn Lest-
9A 30 ur úr nýjum
v barna- og ungl-
ingabókum er á dagskrá
útvarpsins í kvöld. Um-
sjónarmaður þáttarins er
Gunnvör Braga, en kynnir
er Sigurlaug M. Jónas-
dóttir.
Þátturinn í kvöld hefst
með því að lesið verður úr
bókinni f ræningjahönd-
um eftir Ármann Kr. Ein-
arsson. Bókaútgáfan Vaka
gefur bókina út.
Síðan verður lesið úr
bókinni Bogga á Hjalla
eftir Vilborgu Dag-
bjartsdóttur, sem gefin er
út hjá Máli og menningu.
Vilborg las þessa sögu í
útvarpið fyrir nokkrum
árum og hét hún þá Við
stokkinn.
Þá verður lesið úr bók-
inni Dagur í lífi drengs
eftir Jóhönnu Á. Stein-
grímsdóttur, sem Iðunn
gefur út.
Síðasta bókin að þessu
sinni er Strákarnir sem
struku til Skotlands eftir
Marinó L. Sveinsson. Bók-
in er gefin út hjá Skjald-
borg.
Gunnvör Braga, um-
sjónarmaður, sagði að i
þætti þessum væri ein-
göngu lesið úr nýjum bók-
um eftir íslenska höfunda.
Þátturinn er með svipuðu
sniði og Á bókamarkaðin-
um, sem Andrés Björns-
son hefur verið með fyrir
jólin á undanförnum ár-
um.
Næstu þættir verða á
laugardaginn kemur kl.
11.20 og á þriðjudag og
miðvikudag í næstu viku.
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
11. desember
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
Morgunorö: — Bjarni Guð-
leifsson á Mööruvöllum talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Músin I Sunnuhllð og vinir
hennar" eftir Margréti Jóns-
dóttur. Sigurður Skúlason les
sögulok (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 „Man ég pað sem löngu
leið"
Ragnheiður Viggósdóttir sér
um páttinn.
11.15 Við Pollinn
Umsjón: Ingimar Eydal.
(RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.20 Barnagaman
Umsjón: Sigrún Jóna Krist-
jánsdóttir.
13.30 Þýskt og danskt popp.
14.00 Á bókamarkaðinum
Andrés Björnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 Miðdegistónleikar
Parlsar-hljómsveitin leikur
„Lærisvein galdrameistar-
ans“, hljómsveitarverk eftir
Paul Dukas; Jean-Pierre
Jacquillat stj.
14.45 Upptaktur
Guðmundur Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurtregnir.
16.20 Sfödegistónleikar
Sinfóniuhljómsveit Lundúna
leikur Sinfóniu nr. 6 i h-moll
eftir Pjotr Tsjalkovský; Loris
Tjeknavorian stj.
17.10 Síödegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar
Daglegt mál. Sigurður G
Tómasson flytur.
20.00 Barna- og unglingaleikrit:
„Antllópusöngvarinn" eftir
Ruth Underhill I útvarpsleik
gerð Ingebrigt Davik.
6. og slðasti þáttur: Græni
dalurinn. Aöur útvarpað
1978.
Þýðandi: Sigurður Gunnars-
son. Leikstjóri: Þórhallur Sig-
urðsson. Leikendur: Hákon
Waage, Steindór Hjörleifs-
son, Kristbjörg Kjeld, Jónlna
H. Jónsdóttir, Þórhallur Sig-
urðsson, Stefán Jónsson,
Þóra Guðrún Þórsdóttir, Arni
Benediktsson og Jóhann
örn Hreiðarsson.
20.30 Lestur úr nýjum barna-
og unglingabókum
Umsjón: Gunnvör Braga.
Kynnir: Sigurlaug M. Jónas-
dóttir.
21.05 íslensk orgeltónlist
Ragnar Björnsson leikur á
orgel Kristskirkju I Landa-
koti.
a. Inngangur og passacag-
lia i f-moll eftir Pál ísólfsson.
b. Prelúdla, kórall og fúga
eftir Jón Þórarinsson.
21.30 Utvarpssagan: Grettis
saga
Óskar Halldórsson les (12).
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
SJÓNVARP
19.25 Sú kemur tlö
Fjórði þáttur.
Franskur teiknimyndatlokkur
I þrettán þáttum um geim-
ferðaævintýri. Þýðandi og
sögumaöur Guðrjj Kolbeins-
son. Lesari með honum Lilja
Bergsteinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Rauöi kross islands 60
ára
Um þessar mundir eru liðin
sextlu ár frá þvl að Rauði
ÞRIÐJUDAGUR
11. desember
kross íslands var stofnaöur.
Samtökin hafa af þvl tiletni
látið gera þessa stuttu mynd
sem lýsir hinu fjölþætta starfí
sem nú fer fram á vegum
þeirra.
21.15 Njósnarinn Reilly
10. Samtökin.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I tólf þáttum.
Reilly heldur áfram afskipt-
um sinum af baráttu rauðliða
og hvítliða, innan Sovétrlkj-
anna sem utan.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.20 Harmleikurinn I Varsjá
Bresk heimildamynd sem
lýsir atburðum I Varsjá, höf-
uðborg Póllands, haustið
1944. Þá gerðu Varsjárbúar
uppreisn gegn hernámsliði
nasista og var henni mætt af
mikilli hörku. SS-sveitir
drápu um 100.000 manns
en aðrir Ibúar voru fluttir
brott og borgin nær jöfnuð
við jðrðu.
Þýðandi og þulur Bogi Arnar
Finnbogason.
23.10 Fréttir I dagskrárlok.
22.35 Frá tónleikum Islensku
hljómsveitarinnar I Bústaða-
kirkju I sl. mán.
Stjórnandi: Kurt Lewin. Ein-
leikari: Sigurður I. Snorra-
son.
Einsöngvari: John Speight.
Planóleikari: Anna Guðný
Guðmundsdóttir.
Kynnir: Asgeir Sigurgests-
son.
23.30 Tónleikar
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RAS 2
ÞRIÐJUDAGUR
11. desember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Múslk og meðlæti
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Létt lög af hljómplötum.
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Með slnu lagi
Lög leikin af Islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Komið við vltt og breitt I
heimi þjóölagatónlistarinnar.
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18-00 Fristund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.