Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 13 Dánarorsakir hér á landi: Hjarta-, æða- og krabbameins- tilfelli algengust — Dánartíðni hærri meöal karla en kvenna DÁNARTÍÐNI íslendinga 1981 var 6,2 af hverjum þúsund, en 5,7 að meðaltali 1976—1980. Árið 1982 lét- ust hér 1583 og 1983 1653. Flestir létust úr blóðþurrðarsjúkdómum hjarta 1983, eða 515, 394 úr illkynja Kxlum, 161 úr sjúkdómum í heila- æðum, 97 úr lungnabólgu, 344 úr öðrum sjúkdómum og 142 í slysum. Eldvarnar- °g öryggisvika á Selfossi SelfoHNÍ, 6. desember. JC-FÉLAGAR á Selfossi vinna að verkefni sem sameiginlegt er öll- um JC-félögum á íslandi og heitir Öryggi á heimilum. l»eir hyggjast á navstunni kynna Selfossbúum þau öryggistæki sem æskilegt er að til séu á hverju heimili, s.s. reykskynjari og slökkvitæki. Þessi kynning hófst sl. laugar- dag, 8. desember, með því að nem- endum skólanna var kynnt vegg- spjald sem gert hefur verið af þessu tilefni. I för með JC-félögum verður slökkviliðsstjórinn sem mun kenna nemendum á slökkvi- tækin og reykskynjarana. Síðan verður farið um bæinn og íbúum boðin tækin til kaups ásamt sjúkratösku frá Rauða krossi (slands. Ekki er að efa að hér er um þarft verkefni að ræða sem fær margan íbúann til aö staldra við og gefa þessum málum gaum því hætturnar leynast víða eins og þeir í JC hafa bent á. Kynning þessi stendur yfir í eina viku. Sig. Jóns. W.K. Wardroper Sendiherra Kanada kveður WILFRID Kenneth Wardroper, sendiherra Kanada á íslandi og í Noregi, var hér á landi fyrir skömmu ásamt eiginkonu sinni. Erindi þeirra hingað nú var að kveðja forseta ís- lands, ráðherra, embættismenn og aðra sem þau hafa átt samskipti við hér á landi síðan 1981 þegar War- droper, sendiherra, tók við þessu starfi sínu. W.K. Wardroper lætur nú af störfum í kanadísku utanríkisþjón- ustunni eftir 36 ára starf, en hann er 62 ára að aldri. Hann hefur gegnt margvíslegum trúnaðar- störfum í utanríkisráðuneyti Kanada í Ottawa en einnig þjónað erlendis svo sem í Finnlandi, Pak- istan og Nígeríu. Eins og áður sagði hefur hann verið sendiherra í Nor- egi og á íslandi síðan 1981 en lætur af störfum nú 18. desember. Á undanförnum árum hefur það komið nokkrum sinnum til tals að Kanadamenn kæmu á fót sendiráði hér á landi. Engin slík áform eru þó á döfinni. Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, er aðal- ræðismaður Kanada á (slandi. I»etU kemur fram í töflu um dánar- tíðni í 10. hefti Hagtíðinda 1984. Á árabilinu 1981—83 létust 4.892 einstaklingar hér á landi. 2.723 karlar og 2.169 konur. Þar af létust 11 úr berkalveiki og 14 úr öðrum bakteríusjúkdómum. Flestar dánarorsakir, eða 1521, flokkast undir blóðþurrðarsjúk- dóma hjarta (953 karlar og 568 konur). Illkynja æxli koma næst: 399 í meltingarfærum, 221 í önd- unarfærum og líffærum í brjóst- holi, 110 í beini, tengivef, húð og brjósti, 90 í öðrum en ekki nánar tilgreindum líffærum, 82 í eitla- og blóðvef. Heldur fleiri karlar deyja af þessum kvilla en konur. Aðrir sjúkdómar í öndunarfær- um en illkynja æxli valda dauða 491 einstaklings og sjúkdómar í heilaæðum dauða 485. Manndráp og áverki veittur af ásettu ráði teljast dánarorsök í 5 tilfellum 1981—1983. Áverki sem ekki er vitað hvort stafar af slysi eða ásetningi telst dánarorsök í 26 tilfellum. Sjálfsvíg eru talin 78. Umferðarslys valda 70 dauðsföll- um, flutningaslys á sjó eða í vatni 41, flugslys 19, drukknanir 16 og önnur slys 56. Á þessu árabili, 1981—1983, er dánartíðni (slendinga 697 af hverjum 100 þúsund að meðaltali á ári, þar af 770 karlar en 623 konur. Hér sést einn unglinganna 16 sem á laugardag hlupu frá Reykjavík heim til Þorlákshafnar. Unglingarnir söfnuðu áheitum til styrktar ferðasjóði sínum. „Leiðin heim er alltaf styttri" — 16 unglingar hlupu frá Reykjavík til Þorlákshafnar SEXTÁN unglingar frá Þorláks- höfn lögðu land undir fót á laugar- dag og hlupu frá Reykjavík og heim, samtals 50 kílómetra. Að sögn Bjarna E. Sigurðsson- ar, skólastjóra, voru þátttakend- ur nemendur 9. bekkjar grunn- skólans og söfnuðu þau áheitum. Einstaklingar og fyrirtæki greiddu þeim vissa upphæð fyrir hvern kílómetra, sem þau hlupu og ætla þau að nota peningana í ferðasjóð. „Þau lögðu af stað frá Reykjavík um kl. 9 á laugar- dagsmorgni, því það er alltaf styttra að fara heim,“ sagði Bjarni og hló. „Heim voru þau komin kl. 13 og voru fljótari í ferðum en búist var við. Veður var ágætt miðað við árstíma og hver og einn hljóp að meðaltali um 2—3 kílómetra. Þau voru öll vel búin og hálka var lítil, svo ekki var hún til trafala." Bjarni sagði, að unglingarnir hefðu fengið ágæta upphæð fyrir hlaupið, en ekki hefði verið ákveðið enn hvert farið yrði í lok skólaársins. „Nú er þó hægt að hugsa til lengri farar en áður, því þetta tókst svo vel,“ sagði Bjami E. Sigurðsson, skóla- stjóri, að lokum. Alfreó Elíasson Jakob F. Ásgeirsson Alfreðs saga og Loftleiða — skráð af Jakobi F. Asgeirssyni tæki íslendinga," segir í kynningu forlagsins. Bók þessi er tileinkuð „öllum þeim sem lögðust á eitt að gera Loftleiðaævintýrið að veruleika." Saga þess fyrirtækis er megin- inntak bókarinnar, og frásögninni lýkur við sameiningu Loftleiða og Flugfélags (slands. Aðdragandi hennar er rakinn i itarlegu máli og greint frá sviptingum bak við töldin þegar stjórnvöld knúðu sem ákafast á um sameiningu. Urðu árekstrar þar harðir, einkum er til þess kom að meta eignir félaganna og ákveða um valdahlutföll hvors aðila um sig í hinu nýja félagi, segir í kynningunni. Um sömu mundir og sameiningin var á döf- inni varð Alfreð Elíasson fyrir al- varlegum heilsubresti, og nokkru eftir að Flugleiðir voru settar á stofn var hann neyddur til að draga sig í hlé frá forustuhlut- verki sínu i íslenskum flugmálum. Alfreðs saga og Loftleiða er stór bók, 350 bls. og ríkulega mynd- skreytt í eftirmála gerir skrásetjari grein fyrir helstu heimildum, og aft- ast er skrá um mannanöfn. Bókin er prentuð hjá prentsmiðjunni Odda hf. Kápa er hönnuð í Auglýsingastof- unni Octavo. 29555 3ja herb. ibuðir Engjasel. 3ja herb. 105 fm ibúö á 1. hæö í enda ásamt bílskýli. Laus nú þegar. Glæsi- leg eign. Verö 2000 þús. Hamraborg. 3ja herb. 100 fm íb. á 2. hæö. Bílskýli. Verð 1900 þús. Kleppsvegur. 3ja—4ra herb. íbúö 95 fm í blokk, gott útsýni. Verö 1850 þús. Engihjalli. 95 fm íbúö í lyftu- blokk. Verð 1700—1800 þús. Gamli bærinn. 110 fm íbúö i risi. Verö 1750 þús. Goöheimar. 3ja herb. 100 fm íbúö á jarðhæð. Sér inng. Verð 2 millj. Eyjabakki. 3ja herb. 90 fm íb. á 1. hæö. Þvottur og búr innaf eldhúsi. Aukaherb. í kj. Verö 1800—1850 þús. Álagrandi. 3ja herb., 85 fm, íbúö á jarðh., nýjar innr. Verö 1950—2000 þús. 4ra herb. og stærri Kópavogsbraut. 3ja—4ra herb. 100 fm íb. á 1. hæö ásamt 36 fm bílskúr. Verð 2,3—2,4 millj. Dalsel. 4ra herb. 110 fm íb. á 2. hæö. íbúðin skiptist í 3 rúmg. svefnherb., sjónvarpshol og rúmg. stofu. Þvottah. og búr innaf eldhúsi. Bílskýli. Mögul. aö taka minni eign uppi hluta kaupverðs. Hraunbær. 4ra herb. 110 fm íb. á 1. hæö. Mögul. skipti á 2ja herb. Verð 1850—1900 þús. Meistaravellir. 4ra herb. 117 fm ib. í blokk. Mjög vönduö eign. Verö 2,1—2 millj. Breiövangur. 4ra herb. 122 fm íb. á 1. hæð. Mjög vönduö eign. Þvottur og búr innaf eld- húsi. Verö 2,3—2,4 millj. Arahólar. 4ra-5 herb. 110 fm íb. í lyftublokk. 30 fm bílsk. Mjög góö eign. Gott útsýni. Mögul. skipti á 2ja-3ja herb. íb. Stelkshólar. 4ra herb. 110 fm íb. á 3. hæö ásamt bílskúr. Mjög vandaöar innréttingar, glæsileg eign. Verö 2,4 millj. Langholtsvegur. 4ra herb. 120 fm íbúö á 1. hæö. Skipti á minni eign æskileg. Granaskjól. 140 fm sérhæð á 1. hæð. 40 fm bílskúr. Verö 3,3 millj. Einbýlis- raðhus Langageröi. 230 fm einb.hús, sem er 2 hæöir og kj. Stór bílsk. Skipti á minni eign koma til greina. Verö 5 millj. Vantar allar stæröir og geröir eigna á söluskrá EIGNANAUST Bolstaðarhlíð 6, 105 Reykjavík. Símar 29555 — 29558. Hrolfur Hjaltason viöskiptafræömgur BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur sent frá sér Alfreðs sögu og Loftleiða. Jakob F. Ásgeirsson skráði eftir frásögn Alfreðs og ýmsum fleiri heimildum. ( bókinni rekur Alfreð Elíasson fyrrverandi forstjóri minn- ingar sínar og greint er frá tilurð og sögu Loftleiða, „hvernig fyrirtækið óx úr nánast engu upp í að verða stórveldi á íslenskan mælikvarða,“ segir í frétt frá forlaginu. „Fjallað er um íslenska flugsögu sem nær hápunkti með samein- ingu Flugfélags tslands og Loft- leiða sem sumir vilja kalla „stuld aldarinnar“, segir þar ennfremur. Alfreð Elíasson segir hér frá uppvaxtarárum sínum, dvöl vest- an hafs, fyrstu kynnum af flugi og flugmálum, og koma hér við sögu allir helstu forvigismenn í íslensk- um flugmálum við stríðslokin. Þá er greint frá stofnun Loftleiða og baráttu þeirra fyrir stöðu sinni á hinum harða markaði Atlants- hafsflugsins. Frásögnin er studd margvíslegum gögnum, samtima- frásögnum blaða, munnlegum upplýsingum, svo og einkaplögg- um sem ekki hafa fyrr verið hag- nýtt. „Hér kemur því fram ýmis- legt sem hingað til hefur verið á fárra vitorði um hvað gerðist bak við luktar dyr fundaherbergja og forstjóraskrifstofa þegar teflt var um völd og metorð í stærsta fyrir- m targmiM £ Metsölublad á hverjum degi! 0 6S-77-6S FASTEIGIMAMIÐLUM SVERRIR KRISTJÁNSSOIM HÚS VERSLUNARIIMNAR 6. HÆÐ LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRL. FASTEIGN ER FRAMTÍÐ Einstakt tækifæri — í smíöum í Bústaðahverfi Til sölu þrjár 4ra—5 herb. íbúöir á tveim hæðum ásamt bílskúr og þrjár 2ja herb. íbúðir á 3. hæö. Hver íbúö hefur sérinng. og gott útsýni. Suöursvalir. Á 1. og 2. hæö er mögul. aö skiþta íbúöunum i tvær 2ja herb. íbúöir. ibúöirnar afh. tilb. undir trév. í ágúst 1985. Fullgerö sameign í nóv. 1985. Esjugrund — Kjalarnesi Ca. 160 fm einbýlishús ásamt 40 fm bílskúr. Til afh. strax fokhelt með gleri, járni á þaki. Verö 1600 þús.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.