Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 19

Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 19 lceland Review komið út FJÓRÐA og sírtaNta tölublað þessa árs af Iceland Review er nýkomið út og er efni þess fjöibreytt að vanda. Meðal efnis í þessu blaði er grein um Surtsey í dag eftir dr. Sturlu Friðriksson, með myndum Páls Stef- ánssonar, grein eftir Sigurbjörn Ein- arsson, fyrrv. biskup íslands, um Guðbrandsbiblíu sem kom út í nýrri útgáfu fyrir skömmu, og grein um Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna eftir skólastjóra hans, dr. Ingvar Birgi Friðleifsson. Illugi Jökulsson fjallar um þjóð- ardrykk Islendinga, brennivínið, og Solveig K. Jónsdóttir segir frá tölvuvæðingu Orðabókar Háskóla íslands. Hún kynnir einnig ný mynstur á handprjónuðum peys- um i sérstakri grein. Don Brandt segir frá saltfiskverkun og neyslu íslendinga og þeirri frásögn fylgir myndröð um saltfisk eftir Pál Stefánsson. Ýmsir tónlistarvið- burðir sl. Listahátíðar eru kynntir í máli og myndum. Vetur á Norð- urlandi heitir síðan nafn á myndr- öð eftir Pál Stefánsson. Að venju er mikið fjallað um þjóðlíf, verslun og viðskipti í blað- inu. M.a. er sagt frá íslensku hljómsveitinni, nýjum íslenskum kvikmyndum, myndbandaöldunni miklu, nafngiftum og nafnkunn- um íslendingum, útflutningi á ís- lensku sælgæti og húsgögnum, verksmiðju Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bretlandi og Finnur Geirsson hagfræðingur skrifar um efnahagsmál. Ýmislegt annað efni er í blað- inu, sem er 80 bls. að stærð. Ice- land Review kemur út ársfjórð- ungslega og kostar 650 krónur í áskrift innanlands. Gjafaáskrift til útlanda 1985 kostar 770 krónur. Iceland Review hefur nú verið gefið út í meira en tvo áratugi. Ritstjóri og útgefandi er Haraldur J. Hamar. (FrétUtilkjnning.) Leiðrétting: Engiit áætlun VEGNA fréttar í Mbl. sl. fimmtu- dag um afkomu BÚR, hefur Einar Sveinsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, óskað að taka fram að það sé rangt að fyrrverandi framkvæmdastjórar hafi gert áætlun um afkomu BÚR fyrir árið 1984. Fróóleikur og skemmtun fyrir háasemlága! Boeing 747-200 F Flutningsgeta: 120tonn Flugtími: Keflavík - San Fransisco 8 klst. Cargolux hefur hafiö vikulegar áætlunarferðir milli Luxemborgar og San Fransisco/Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna meö viðkomu á íslandi. Viö þaö opnast miklir möguleikar í vöruflutningum milli íslands og annarra landa. Flutningamiðlun COSMOS á Islandi er umboösaðili Cargolux hér á Islandi. Hafiö samband, leitið upplýsinga um nýjar lausnir á flutningamálum. III ISINI VHII II S -CCSMCS- x isiANci nr UMBOÐSMF-NN UM ALLAN HEIM HAFNARHÚSINU, 101 REYKJAVÍK, SÍMI (9D-15384

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.