Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 22

Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 Á ferð um ísland Bókmenntír Sigurjón Björnsson Martin A. Hanaen: Á ferð um ís- land. Myndir eftir Sven Havsteen- Mikkelsen. Hjörtur Pálsson íslensk- aði. Almenna bókafélagið. Reykjavfk. 1984. 243 bls. Þessi bók á annað skilið en vera hraðlesin í miðri jólakauptíð og fá stutta umsögn hripaöa í flýti. Ég hlakka til að vitja hennar á ný, þeg- ar um hægist, lesa hana hægt og með hléum, leyfa henni að seytla inn í hugann og valda þar nýjum sýnum, dýpri skilningi á íslandi, landi, þjóð og sögu. Það leynir sér ekki að skáld held- ur um penna. Maður sem er gjör- kunnugur fornum bókmenntum ís- lenskum og hefur búið sig firnavel undir ferð sína. Höfundur er jafn- framt vitur maður og djúpskyggn, svo að mikil nautn er að lesa hug- leiðingar hans. Sakar hvergi þó að hann fari hægt yfir land, láti hug- ann reika og sé létt um mál. Það verður aldrei leiðigjarnt, en alltaf lærdómsríkt. Félagarnir tveir, danska skáldið Martin A. Hansen og málarinn Sven Havsteen-Mikkelsen, ferðuðust um hluta íslands vorið og sumarið 1952. Sjá má á bókarkápu að þá hefur Marteinn verið rúmlega fertugur og að hann er allur þremur árum síðar. Ferð þeirra félaga á blæjujeppanum hefur augljóslega verið eins konar pílagrímsför. Marteinn skrifaði en Sveinn teiknaði þaö sem fyrir augu bar. Margar þeirra mynda prýða bókina. Ferðasagan hefst um hvítasunnu- leytið norður hjá Hrauni í Öxnadal. Virðist þeim félögum hafa dvalist lengi á Norðurlandi og átt erfitt með að slíta sig þaðan, því að öll bókin utan þrír kaflar fjallar um þann hluta landsins. í einum kafla segir frá Borgarfirði og Snæfells- nesi. Annar gerist á Suðurlandsund- irlendinu. Og lokakaflinn, einn með þeim allra fegurstu, er um hafið. Á Reykjavík er lítið minnst í j>ess- ari bók, enda telur höfundur það lítt á sínu færi. Tími virðist ekki hafa gefist til að skoða Vestfirði, Austur- Formið yrkir Bókmenntír Sveinbjörn I. Baldvinsson fáguð við hreim og hætti dýrra Ijóða helgust af því sem gæfan okkur léði. (Úr. „Hátíð“ bls. 14). land eða hálendið. E.t.v. hefur hug- urinn staðið til annarrar íslands- reisu, en það tóku aðrir í tauma fyrr en varði. Því fer víðs fjarri að ég hafi lesið allar þær bækur, sem útlendir menn hafa ritað um ferðir sínar til ís- lands. Engu að síður þori ég að full- yrða, að vandfundin sé bók sem ís- lendingum má vera jafnmikið ánægjuefni og þessi. Margt veldur því. Hún er svo nákvæm og rétt, að varla verður betur gert. (Einstaka smávillur má finna, en svo lítilfjör- legar að ekki tekur því að nefna þær.) Þessi nákvæmni hlýtur að vera einstök, þegar maður skrifar um annað land en föðurland sitt. Þá er hið gamla og nýja svo vel fellt saman að unun er að. Víst hefur ritarinn drukkið í sig fslendingasög- ur og dáir þær. En honum gleymist samt ekki að hann er að heimsækja lifandi fólk, og hann nýtur bersýni- lega samvista við það. Þá er það honum engin ofraun að vera hvort tveggja í senn sannur Dani, sem virðir land sitt og þjóð, og skilja og virða hug íslendinga f garð Dana fyrr á tíð, án þess að ánetjast sjón- armiðum fslendinga eða bregðast reiður við. Og ekki er minnst um vert að finna hvílíku ástfóstri hann hefur bundist fslandi, þ.e.a.s. því sem best er, varanlegast og menn- ingarlegast. Érfitt er að gera upp á milli ein- stakra kafla eða þátta i þessari bók, þvf að allir eru þeir með miklum ágætum. Þó er mér nú efst f huga frásögn af dagstund við Goðafoss, þar sem höfundur lætur hugann reika. Og síðasti kaflinn um hafið er gerður af mikilli snilld. Hjörtur Pálsson, sem snúið hefur textanum á íslensku, á mikið lof skilið fyrir þýðingu sína. Mál hans er fagurt og tært, ljóðrænt og svipmikið. Erfitt er að sjá nokkurt þýðingarbragö þar á. Allur frágangur bókarinnar er smekklegur og hinn vandaðisti í hví- vetna. Ég hika ekki við að mæla með þessari bók við vandfýsna lesendur, sem fremur kjósa sér lesefni til list- rænnar nautnar en afþreyingar. Sveinbjörn Beinteinsson: HEIÐIN, kvæðabók, 95 bls. Hörpuútgáfan. Þessi kvæðabók allsherjargoða Ásatrúarfélagsins er hin fimmta sem hann sendir frá sér. Hún hef- ur að geyma kveðskap allt frá 1940 til þessa árs. Þessi kveðskapur er í því formi sem löngum hefur verið kallað hefðbundið, en sú skilgrein- ing er nú vart fullngæjandi lengur eftir að ort hefur verið á íslensku án endaríms og stuðla og höfuð- stafa í tvo eða þrjá mannsaldra. En form er fleira en rím og stuðlar. Enn í dag er ort með rími og stuðlum án þess þó að sá kveðskapur beri yfirbragð liðinna alda. Mætti nefna til dæmis Þór- arin Eldjárn og Megas í því sam- bandi. Þegar í byrjun þessarar aldar hófst mikil endurnýjun inn- an hins rímaða og stuðlaða ljóð- forms. Endurnýjun í efnistökum og máli, svo eitthvað sé nefnt. Dæmi: Davíð, Tómas, Steinn. Að ógleymdum Jóhanni Sigurjóns- syni. Því er þessi pistill settur á blað hér, að það vakti furðu þess er þetta skrifar að Sveinbjörn Bein- teinsson virðist hafa farið á mis við nánast alla þessa þróun sem hér er að vikið. Eg myndi fremur kalla kvæðin í þessari bók gam- aldags en hefðbundin. En það þýð- ir að sjálfsögðu ekki endilega að þau séu slæm. Það þýðir bara að þau er gamaldags. Bæði hvað varðar form og innihald: Fjallkonumálið móðurtungan góða mótaðist hér við líf í sorg og gleði Ljóðið sem þessi tilvitnun er úr er frá árinu 1974 að því er ég best fæ séð (ekkert ártal fylgir því en næsta ljóð á eftir er frá nefndu ári). Undirritaður hefði látið blekkjast hefði honum verið tjáð að það væri frá 1874. Sem sagt: „Heiðin" getur naum- ast talist lóð á vogarskál þróunar í íslenskum bókmenntum. Hið gamla form stendur svo traustum fótum í þessum ljóðum að nýjum efnistökum verður ekki við komið. En víða er dýrt og lipurt kveðið innan þessara þröngu marka. Fer ekki hjá þvi að manni finnist á köflum að formið hafi hreinlega ort innihaldið, svo mjög sem það hefur yfirhöndina í bókinni: Rís nú mengi fletum frá. Fýsir dreng að starfa þá, kýs ég lengja Ijóðaskrá, lýsing engin fatast má. Mínar annir hef í hönd. Illýnar manni sefaströnd. Brýna sannar sögur önd sín að kanna foður lönd. (Ún „Tímaríma" bls. 61). Sveinbjörn Beinteinsson yrkir heilu bálkana með þessum hætti og er það mikil íþrótt. Hætt er við að fáir núlifandi íslendingar gætu leikið það eftir honum. Að lokum langar mig að vísa til formála Sveinbjarnar að kvæðum sínum. Þar kemur fram sitt hvað um skoðanir hans á skáldskap og þar á meðal einmitt það að skáldskap- ur sé íþrótt. Þar skilja leiðir okkar nafnanna. SKRÝTMAR 06 SKeMMTiieGAR 'BÆKOK FJ ALLAKRÍ LIN ÓVÆNT HEIMSÓKN eftir Iðunni Steinsdóttur Það er heldur betur kátt í koti hjá krílunum: Fausi, Fjárbjóður og Meinfús fá framandi gesti og sam- búðin verður hin söguleg- asta. Framhald af vinsælu barnabókunum Knáir krakkar og Fúfu og fjallakrílin með skemmti- legum myndum eftir Búa Kristjánsson. ÞAÐ ER EKKI HÆTTULAUST að vera lítil mús í leit að æti eða íkorni úti í skógi. Við erum svo ósköp smá og margir sem vilja læsa í okkur klónum. ÞU GETUR HJÁLPAÐ Ýttu okkur bara gegnum rifuna. Það er smuga á hverri blaðsíðu í bók- unum um okkur. Og svo geturðu lesið um okkur í leiðinni. Eða mamma eða pabbi. Og þá verður gaman. Bókhlaðan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.