Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 30

Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 Góðar gjafir veittar og þegnar Milljón í Eþíópíuhjálp og 1000 ullarteppi Rauði kross íslands fagnaði 60 ára afmæli samtakanna á hátíða- fundi sl. laugardag í Borgartúni 6 að viðstöddum forseta íslands, ráðherr- um, biskupinum yfir íslandi, fram- kvæmdastjóra Alþjóðsambands Kauða krossfélaga og fjölda gesta. Voru fluttar hátíðarræður, fram bornar heillaóskir og afhentar góðar gjafir, bæði til afmælisbarnsins og frá því. ' í upphafsávarpi sínu skýrði Benedikt Gröndal, stjórnarfor- maður RKÍ, frá því að samtökin ætluðu á þessu afmæli sínu að þakka þjóðinni stuðninginn með gjöf í formi 2,5 milljóna króna framlags til kaupa á brjóstmynda- tæki fyrir Krabbameinsfélagið. Sagði Gunnlaugur Snævarr, for- maður Krabbameinsfélagsins, í þakkarræðu sinni að það væri Rauða krossinum líkt að nota sitt eigið afmæli til að gefa. Þá afhenti Benedikt Gröndal frá RKÍ milljón króna framlag til hungraðra á þurrkasvæðunum í Afríku. Benti m.a. á að við séum ekki ein í heiminum, við séum hluti af fjölskyldu þjóðanna og minnti á aðstoðina sem við feng- um í Vestmannaeyjagosinu og að- stoðina sem nú yrði að veita hungruðum í Eþíópíu. „Rauði krossinn lýsir sér best í störfum sínum en ekki öfugt,“ sagði Bene- dikt. Hans Hoegh, framkvæmda- stjóri Alþjóðasambands Rauða kross félaga, árnaði félaginu heilla. Hann sýndi nýja mynd sem BBC hefur tekið á hungursvæðun- um í Eþíópíu og minnti jafnframt á að þetta mætti ekki verða aðeins hálfs mánaðar katastrófa. 10 börn deyja á hverri mínútu víðs vegar í heiminum úr fæðuskorti og fá- fræði þeirra sem um þau sjá sagði hann. Þá talaði Sigurður Magn- ússon fulltrúi RKÍ um þann merka manna Dunand, sem stofnaði al- þjóða Rauða krossinn, dramatískt líf hans og upphaf samtakanna. Ólafur Mixa fyrrv. formaður RKÍ minntist 60 ára afmælis íslands- deildarinnar og Erlingur Aspel- und formaður stjórnar Sjúkra- hótels RKÍ sem er einmitt 10 ára. Sagði að stjórn Rauða kross ís- lands hefði ákveðið í sambandi við afmælið að eitt meginverkefnið yrði nú stækkun hótelsins, og yrði gengið í skipulagningu á því átaki á næstunni. Skýrði Erling frá því að Kvennadeild Reykjavíkurdeild- ar RKÍ hefði afhent sjúkrahótel- Hans Hoegh, framkvæmdastjóri Alþjóöasambands Rauða kross-félaga, flytur RKÍ heillaóskir. Fremst má sjá biskupinn yfir fslandi, Pétur Sigurgeirsson, og frú Sólveigu Ásgeirsdóttur, Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra, forseta íslands, Vigdíni Finnbogadóttur, Benedikt Blöndal, formann RKÍ, og frú Guðrúnu Karlsdóttu, Steingrím Hermannsson forsætisráðherra og frú Guðlaugu Guðmundsdóttir. MorRunblaðið/BK. Þrír voru sæmdir heiðursmerki Rauða kross fslands ( tilefni afmælisins. Afhenti formaður, Benedikt Blöndal, Birni Tryggvasyni fyrrv. formanni gull- merki og Sigríði Helgadóttur brautryðjanda um verzlunarmál í sjúkrahúsum silfurmerki. Anna Cronin í London tekur við sínu heiðursmerki síðar. Erling Aspelund, formaður Sjúkrahótels RKÍ, sem á 10 ára afmæli, sagði að stjórnin hefði ákveðið í tilefni afmælisins að eitt meginverkefnið yrði nú að stækka sjúkrahótelið á næstunni. Einnig þakkaði hann 40 þús. kr. gjöf frá Kvennadeildinni til bókakaupa fyrir sjúkrahótelið. „Ef börnin létust í flugslysi væri það komið á forsíður dagblaða um heim allan“ í tilefni 60 ára afmælis Rauða kross íslands kom hingað til landsins Hans Höegh, framkvæmdastjóri Alþjóðasambands Rauða krossins. Höegh er íslendingum að góðu kunnur, en hann var formaður Rauða krossins í Noregi þar til hann tók við framkvæmdastjórn Alþjóðasambandsins 1981. Hans Höegh kom mikið við sögu í Vestmannaeyjagosinu og bauð m.a. öllum börnum í Vest- mannaeyjum á aldrinum 6—14 ára til hálfsmánaðardvalar í Nor- egi. Um 950 börn dvöldu á norsk- um heimilum, börnin voru mun fleiri en Höegh hafði gert ráð fyrir, en er hann spurðist fyrir um fjölda þeirra í fyrstu fékk hann þau svör að þau væru um 200. Þó börnin væru þannig um fimm sinnum fleiri en gert hafði verið ráð fyrir upphaflega, var ákveðið að hverfa ekki frá þessari ákvörðun, og með góðum samn- ingum við Flugfélag íslands og stofnun félagsins Hándslag til Is- land varð dvöl barnanna að veru- leika. Rauði krossinn er nú starfandi í 135 löndum og félagsmenn um heim allan um 250 milljónir. Mbl. hitti Höegh að máli stuttu áður en hann gekk inn á hátíðarfund Rauða kross íslands, en þar sýndi hann m.a. nýja mynd sem BBC hefur látið gera um starfsemi Rauða krossins í Afríku. Höegh lagði áherslu á að Rauði krossinn gæti aldrei komið í veg fyrir hungur, slíkt væri eingöngu á færi stjórnvalda, en hlutverk Rauða krossins er að sinna neyð- arþjónustu víða um heim. í því sambandi sagði hann hlutleysi Rauða krossins mjög mikilvægt, og það gerði þeim kleift að að- stoða fórnarlömb um heim allan. Eitt veigamesta verkefni Al- þjóðasambands Rauða krossins nú er aðstoð við fólk á hungur- svæðunum í Afríku, en Höegh sagði þá hjá samtökunum hafa bent á likur á neyðarástandi þeg- ar í desember á liðnu ári. „En það hlustaði enginn á okkur þá, við létum gera kvik- mynd í þessu sambandi í desem- ber í fyrra og sendum hana til sjónvarpsstöðva víða um heim, en það er ekki fyrr en fólk er farið að deyja í stórum stíl að þessir at- burðir ná í raun til fjölmiðlanna." Og Höegh bætti því við að ýms- ar aðrar hörmungar væru að ger- ast í þriðja heiminum, á ári hverju deyja t.d. um 5 milljónir barna úr magakveisu í Afríku. „Þetta heyrir til þess sem við höfum kallað hinar þöglu hörm- ungar vegna þess hve lítið fréttist af þessu. í byrjun þessa árs fór- um við hjá Rauða krossinum af stað með nýja áætlun sem við höfum kallað „Child alive" sem Morgunblaöid/Friðþjófur Hans Höegh framkvæmdastjóri Alþjóðasambands Rauða krossins. miðast að því að lækka þessa dánartölu. Orsökin fyrir þessum mikla barnadauða er fyrst og fremst fáfræði mæðranna, þær hætta að gefa börnunum næringu er þau veikjast, þessi ráð þiggja mæðurnar frá formæðrunum. Fljótt á litið virðist auðvelt að kenna þeim viðeigandi meðhöndl- un, en hið einfalda er oft flóknara en margur heidur.“ Hann bætir því við að þær 5 milljónir barna sem látist hafaaf þessum orsökum séu 17 sinnum fleiri en þeir sem fórust í Hiro- shima á sínum tíma, „ef lítið brot af þessum börnum færust í flugslysi væri það komið á forsíð- ur dagblaða um heim allan“. Hið sama segir hann að megi segja um ástand fatlaðra í vanþróuðu löndunum, „það er t.d. talið að um 50 milljónir blindra séu í þessum löndum, fyrir utan þá sem eru fatlaðir af öðrum orsökum, en enginn hefur fengist til að hlusta á það enn.“ Hans Höegh sagði að auk þess að sinna neyðarþjónustu reyndi Rauði krossinn að reyna að hjálpa til sjálfshjálpar með því að senda sérmenntað fólk til starfa sem getur aðstoðað við að byggja upp ákveðnar atvinnu- greinar og þjónustu. Hans Höeg var spurður hvort framlög til Rauða krossins kom- ist alltaf til skila. „Þörfin fyrir aðstoð er svo gífurleg, að við get- um ekki búist við framlögum ef það er ekki tryggt að þau komist til skila til réttra aðila. Rauða kross-deildirnar víða um heim verða að segja frá árangri starf- seminnar á hverjum stað jafnt sem þörf fyrir aðstoð. Sem dæmi um árangur get ég nefnt starf okkar í Eþíópíu, í júni sl. voru i Woliaita í Suður-Eþíópíu um 8.000 börn sem voru að deyja úr hungri. í dag er tala þeirra sem eru í lífshættu komin niður f 250. Aðrir staðir sýna ekki jafn góðan árangur tölulega, t.d. Wollo, en þegar við hófum hjálparstarfið þar voru 3.000 manns að deyja úr hungri, talan óx á skömmum tíma upp í 15.000, þá 25.000. Fyrir viku var mér sagt að dánartalan væri að færast niður, en er ég fór frá Genf á laugardaginn var mér sagt að dánartalan hefði aldrei verið hærri en sl. þrjá daga. Það er stöðugur straumur af fólki sem kemur til hjálparstöðvarinnar í Wollo, og það er í hræðilegu ástandi." í skýrslu Rauða krossins um hungursneyðina í Afriku sem kom út nú í nóvember kemur fram að þörfin fyrir aðstoð er gíf- urleg og búist er við að alvarlegt ástand ríki víða á árinu 1985. Vegna langvarandi þurrka víða í Afríku ríkir nánast neyðarástand nú í Eþíópíu og Chad, og búast má við að á næsta ári verði ástandið svipað á þurrkasvæðum í mörgum öðrum löndum Afríku. „Við vinnum í samvinnu við ótal aðrar stofnanir svo sem FAO og þann 17. desember verð ég m.a. á fundi í New York þar sem full- trúar ýmissa stofnana munu hitt- ast og bera saman bækur sfnar. Þann 22. desember fer ég til Eþíópíu og verð þar um jólin, heimsæki fulltrúa Rauða kross- ins í Eþiópíu og Súdan. Þetta fólk vinnur allt á jólunum og hvers vegna ætti ég að taka mér frí þó ég sé yfirmaður þeirra?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.