Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.12.1984, Qupperneq 32
32 Verkamaður sem lokað- ist inni í námu á Taiwan: Át hluta af lík- ama fé- laga síns Taipei, Taiwan, 10. dexember. AP. VERKAMAÐUR, sem lokað- ur hafði verið inni í hruninni námu á Taiwan í fjóra daga, en bjargað var í gær, kvaðst hafa lagt sér til munns hluta af líkama látins vinnufélaga og þannig tekist að halda í sér lífinu. Lík 51 námumanns hefur nú fundist, en 42 er enn saknað. Að- eins einn annar námumaður hefur fundist á lífi og liggur hann nú milli heims og helju. Sprenging varð í námunni, sem er í Haishan Yikeng, 25 km fyrir suðvestan höfuðborgina, Tapei, á miðvikudag og er talið að gas- leki hafi valdið henni. Sá sem bjargaðist heitir Chou Chung-Lu og er 56 ára gamall fjölskyldumaður. Hann sagði blaðamönnum að fyrsta daginn, sem hann var lokaður í nám- unni, hefði hann nærst á því að drekka vatn sem rann niður í hana, en á öðrum degi hefði hann rekist á líkama látins fé- laga síns og tekið bita af læri hans, þótt óþefur hefði í fyrstu valdið þvi að hann kastaði nærri upp. Hann kvaðst síðan hafa haldið mannátinu áfram þar til honum var bjargað. Chung-Lu sagði að nokkru áð- ur en björgunarmenn komu honum til hjálpar hefði hann ætlað að stytta sér aldur vegna vonleysis og hins skelfilega ástands í kringum sig. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 MARTROÐINNI LOKIÐ AP. Flugstjóri þotunnar, sem flugræningjar höfðu á valdi sínu á Teheran-flugvelli, ásamt bandarískum farþega. Myndin er tekin sjúkrahúsi í Teheran og eins og sjá má eru þeir allshugarfegnir yfir því að martröðinni skuli vera lokið. Alþjóðasamtök neytendafélaga: íhuga að hundsa vör- ur frá Union Carbide Bangkok, 10. desember. AP. ALÞJÓÐASAMTÖK neytendafélaga (IOCU), sem halda um þessar mundir ráðstefnu í Bangkok á Tailandi, munu á fostu- dag greiða atkvæði um tillögu þess efnis, aö skora á fólk að leiða hjá sér framleiðsluvörur fyrirtækisins Union Carbide, í kjölfar gaslekans frá verksmiðju fyrirtækisins í Bhopal á Indlandi, sem varð a.m.k. 2.000 manns að bana. laga voru stofnuð árið 1960 og eiga neytendafélög í um 50 ríkj- um aðild að þeim. Þingið í Bangkok sitja 400 fulltrúar frá 100 löndum. Samtökin sendu í dag frá sér ályktun þar sem forráðamenn Union Carbide eru harðlega fordæmdir fyrir gaseitrunina, sem þau segja „síðasta og jafn- framt hrikalegasta dæmi um vanrækslu fjölþjóðafyrirtækis- ins að ábyrgjast öryggi neyt- enda í þriðja heiminum“. Alþjóðasamtök neytendafé- ERLENT Mótmælaseta iðn- nema í Póllandi WloHzrzowa, 10. dcwember. AP. FLEIRI en eitt hundrað nem- endur í iðnskólanum í bænum Wloszczowa í suðurhluta Pól- lands hafa nú dvalið í skólanum í viku í því skyni að mótmæla því að yfirvöld létu fjarlægja 17 krossa, sem nemendur höfðu komið fyrir í kennslustofum. Auk nemendanna eru tveir prestar sagðir í hópi mótmæl- enda í skólanum. Engin kennsla hefur verið þar síðan mótmælin hófust. Lögregla hefur meinað er- lendum fréttamönnum að koma nálægt skólabygging- unni og fullyrðir að verkfallið sé að renna út í sandinn. Veður víða um heim Akurayri Amsterdam Aþena Barcaiona Berlin Bruaael Chicago Dublin Feneyiar Frankfurt Genf Hetamki Hong Kong Jerúsalem Kaupmannahöfn Las Palmas * Lissabon London Los Angeles Luxemborg Mallorca Miami Montreal Moskva New York Osló Parts • Peking Reykiavík Rio de Janeiro Rómaborg Stokkhólmur Sydney Tókýó Vínarborg Pórshöfn 3 snjóól 10 heiöskfrt 17 heiöskirt 13 lóttskýjsð 7 skýjaó 10 skýjaó 6 heióskírt 11 heióskirt 7 þokumóóa 8 skýjaó 4 skýjaó 6 skýjaó 23 heióskírt 12 akýjað 9 heióskirt vantar 15 skýjaó 9 heióskirt 19 skýjað vantar 18 heióskfrt 17 lóttskýjaó 21 heióskirt 4 skýjaó 2 snjókoma 10 heióskfrt 5 heióskfrt 9 heióskirt 6 skýjaó 1 alskýjaó 26 skýjaó 13 heióskfrt 7 heiðskirt 21 heióskírt 14 skýjaó 4 skýjaó 5 skýjaó Lene sagði já við Möller Poul Möller, fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Danmerkur og lítill stuðningsmaður íslendinga í handritamálinu, gekk í það heilaga sl. föstudag og fór vígslan fram í ráðhúsinu á Friðriksbergi. Heitir eiginkona hans Lene Bro. Nokkur vafi lék á að af hjóna- vígslunni gæti orðið á tilsettum tíma þar sem Möller var með kvef, en hann hristi af sér slenið á síðustu stundu. Poul Möller er nú varaforseti Evrópuþingsins. Burt með tölvurnar og tæknibrellurnar og börnin vilja fá gömlu leikföngin í jólagjöf LoimIob, 10. deœmber. AP. BÖRNIN virðast vera búin að fá sig fullsödd á Ueknibrellum alls- konar og vilja nú bara fá í jólagjöf dúkkur, lestir og gamaldags spila- leiki eins og lúdó og þess háttar. Kemur þetta fram hjá forráða- mönnum Hamleys-verslunarinnar í London, sem er stærsta leik- fangabúð í heimi að þeirra eigin sögn. „Það virðist vera um aftur- hvarf að ræða til gamaldags jólagjafa að þessu sinni og ég er viss um, að það eru börnin, sem eru á bak við það, ekki foreldr- arnir,“ sagði forstjóri fyrirtæk- isins, Robert Bradley, og bætti því við, að ekki væri nú mikið spurt eftir tölvuleikjum, sem hefðu verið langvinsælastir í fyrra. „Dúkkur seljast sérstak- lega vel, járnbrautarlestir betur en þær hafa gert í mörg ár og gamaldags borðieikir eiga nú aftur upp á pallborðið hjá krökk- unum.“ Forráðamenn Debenham’s, annarrar stórrar leikfangaversl- unar, höfðu alveg sömu sögu að segja.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.