Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11 DESEMBER 1984
35
Bretland:
Enn reynt að ná í
sjóð námumanna
London, 10. desember. AP.
IKIMSTÓLL sá í London, sem í fyrri viku úrskurðaði að hald skyldi lagt á
4,38 milljónir sterlingspunda, sem samtök námumanna í Bretlandi geyma í
banka í Lúxemborg, hyggst reyna að fá aðstoð dómsmálayfirvalda þar til að
ná fénu út úr bankanum, en stjórendur hans hafa ekki viljað afhenda það.
Einn af foringjum Samstöðu látinn laus:
Tíu þúsund fogn-
uðu Lis í Gdansk
Varajá, 10. deoember. AP.
UM TÍU þúsund manns fognuðu Bogdan Lis, einum af leiðtogum Samstöðu,
óháðu verkalýðshreyfingarinnar í Póllandi, þegar hann kom til útimessu í
Gdansk á sunnudag, eftir að hann var látinn laus úr fangelsi á laugardaginn.
Upphæðin, sem samtök námu-
manna geyma í Nobis-Finanz
bankanum í Lúxemborg, er talin
um helmingur af því fé sem er í
sjóðum samtakanna. Hinn hlutinn
er sennilega geymdur í bönkum í
írska lýðveldinu og Sviss.
Úrskurðurinn um að hald skyldi
lagt á sjóð námumanna var kveð-
inn upp eftir að forystumenn sam-
taka þeirra neituðu að greiða sekt
að upphæð 200. þúsund sterlings-
pund fyrir að efna til ólögmæts
verkfalls og fyrir að neita að bera
vinnustöðvunina undir félags-
menn í almennri atkvæðagreiðslu.
Leiðtogar breska verkalýðssam-
bandsins (TUC), sem telur tíu
milljónir félagsmanna, og samtök
námumanna eiga aðild að, hugð-
ust í dag reyna að beita sér fyrir
því við Margréti Thatcher forsæt-
isráðherra, eða Peter Walker
orkumálaráðherra, að samninga-
viðræðum milli stjórnar ríkis-
reknu kolanámanna og samtaka
námumanna yrði haldið áfram, en
þær hafa legið niðri um nokkurt
skeið, þar sem ágreiningsefnin
virðast óleysanleg.
Picasso-
mynd seld
London, 10. desember. AP.
FYRIR skömmu var málverk
eftir Pablo Picasso slegið á sem
svarar rúmum 68 milljónum
króna hjá hinu þekkta Sothe-
bys-uppboósfyrirtæki í London.
Var hér um að ræða nekt- .
armynd af kabarettdansmey.
Er myndin gerð árið 1901 eða
fyrir súrrealíska tímabilið hjá
Picasso.
Að sögn séra Henryks Jank-
owski, sem stjórnaði guðsþjónust-
unni, ávarpaði Lis mannfjöldann
að messunni lokinni og lýsti því
yfir að hann mundi halda áfram
baráttu sinni fyrir endurreisn
óháðu verkalýðshreyfingarinnar.
Ummæli hans hlutu góðar undir-
tektir og voru hrópuð vígorð Sam-
stöðu.
Bogdan Lis, sem er 32 ára að
aldri, var í hópi stofnenda Sam-
stöðu árið 1980. Hann fór huldu
höfði eftir að herlög voru sett
1981, en var handtekinn í júní á
þessu ári. Hann var ekki í hópi
þeirra 630 pólitísku fanga, sem
gefnar voru upp sakir í júlí sl., og
sögðu yfirvöld þá, að ákærurnar
gegn honum væru svo alvarlegs
eðlis, að ekki væri hægt að láta
hann lausan.
Auk Lis var öðrum félaga í
Samstöðu, Piotr Mierzewski frá
Gdansk, sleppt úr haldi á laugar-
dag. Telja sumir að ákvörðun
stjórnvalda að láta þá lausa muni
greiða fyrir viðskiptum Póllands
við Bandaríkin, en stjórn Reagans
forseta hafði lýst því yfir að það
væri forsenda fyrir því að efna-
hagslegum refsiaðgerðum gegn
Póllandi yrði að fullu hætt, að
pólitískum föngum yrðu gefnar
upp sakir.
Drer-
sjúklingar
noti
sólgleraugu
HÆTTA er talin á, að drersjúkl-
ingar, sem fengið hafa gervi-
augastein, geti orðið fyrir varan-
legum augnskaða af völdum út-
fjólubláss Ijóss að því er segir í
frétt í bandaríska tímaritinu
UX News & World Report. Er
hún höfð eftir læknum við Em-
ory-læknaháskólann í Atlanta.
Segja læknarnir, að ef nátt-
úrulegir augnsteinar hafi ver-
ið fjarlægðir verði fólk að bera
sérstök sólgleraugu því að
annars sé mikil hætta á að
sjón augans (nethimnan) verði
fyrir skemmdum af útfjólu-
blárri geislun. (Hér er um að
ræða, að ský eða vagl er á
auga en nú er farið að nota um
það gamla, íslenska orðið drer,
sem merkir grugg eða óhrein-
indi.)
Þota olíu-
fursta gerð
upptæk
London, 10. deoember. AP.
BOElNG-707 einkaþota í eigu ætt-
arhöfðingja frá Saudi-Arabíu var
gerð upptæk í dag vegna vangold-
inna stæðisgjalda að upphæð 42 þús-
und dollara, eða jafnvirði 1,7 millj-
óna króna.
Dómstóll veitti eigendum Lut-
on-flugvallar leyfi til að selja
flugvélina til þess að hafa upp í
stæðisgjöldin. Þotan er farin að
tærast og hjólbörðum hennar hef-
ur verið rænt.
Svo virðist sem ættarhöfðing-
inn, kæri sig kollóttan um þotuna,
sem flutt getur 179 farþega. Á sín-
um tíma samdi hann við enskt
fyrirtæki um að innrétta þotuna í
glæsistíl og átti innréttingin að
kosta 750 þúsund sterlingspund,
eða jafnvirði tæpra 40 milljóna
króna, svo hann gæti flogið um og
sýnt sig á viðeigandi hátt. En
greiðslurnar bárust seint og illa
og var því hætt í miðju verki.
UMORYGGI
INNLÁNSREIKNINGS MEÐÁBÓT
ÁBÓTÁ ÁBÓT OFAN
Fé þitt er öruggt á InnlárisreiHningi með Abót.
Ábótin vex í samræmi við verðbólgustig hvers mánaðar
og reikningurinn ber 3% vexti að auki.
Þetta eru sömu vextir og bjóðast á verðtryggðum
inn/ánsreikningum með 5ja mánaða bindingu.
SÉRSTAÐAN HELST
5ér5taða InnlánsreiHnings með Abót helst, því þrátt fyrir
þessa tryggingu getur þú teHið út af reiHningnum þegar þú vilt
og haldið ósHertum öllum vöxtum sem þú hefur 5afnað.
Enn skaiar Abotin íram úr.
ÁBÖT
Á VEXTI
GULLS ÍGILDI
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA
O
I