Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 49

Morgunblaðið - 11.12.1984, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 49 ná slíku markmiði þurfum við að vita ýmislegt um áhrif bjórsins í þeim efnum. Við þurfum því að fá svör við margþættum spurning- um. Er t.d. líkur á að bjórneysla muni draga úr heildarneyzlu áfengis hér á landi þvert ofan í það sem gerist hjá öðrum þjóðum? Dregur bjórneysla úr áfengis- neyslu unglinganna? Hvaða áhrif mundi bjórneysla hafa á ölvun við akstur? Mundi neysla öls auka fæðingafjölda vanvita barna, sem þegar er orðið alvarlegt mál? Mundi bjórneysla hér á landi valda auknu heilsutjóni og ótíma- bærum dauðsföllum eins og það sem gerist hjá bjórneysluþjóðun- um? Mundi hún auka sjúkrakostn- að, félagslega aðstoð, lögbrot og upplausn heimila? Mundi bjór- neyslan auka neyslu annarra vímuefna en áfengis? Mundi hún auka slys og draga úr vinnuafköst- um í þjóðfélaginu? Við þessum spurningum og mörgum fleiri þurfa að liggja skýr svör. Og þau er hægt að fá. Sum hver bæði af reynslu og þekkingu sérfróðra manna íslenskra og hægt er að styðjast við reynslu og rannsóknir annarra þjóða. Tilraunir þarf því ekki að gera hjá íslensku þjóðinni til að leita sanninda um áhrif áfengs öls. Víma kallar á vímu Áfengt öl veldur vímu. Fólk, sem sækir í vímu, vill því gjarnan bjór. En áfengið myndar þol. Það þarf því stöðugt aukið magn til þess að ná sömu vímuáhrifum. Þegar bjórinn dugir ekki er leitað til sterkari drykkja og/eða ann- arra vímuefna. Þess vegna eykur bjórinn neyslu sterku drykkjanna, enda sýna það tölur frá bjór- neyslulöndunum. í þeim vex neysla sterku drykkjanna hröðum skrefum. Þetta eru aðeins sann- indi og eðli allrar vímuuefna- neyslu. Vímuefnaneytandinn er ekki frjáls maður heldur þræll vímuefnasalanna og stuðnings- manna þeirra. Hamingja fólks og ekki sist þess, sem minni fjármuni hefur handa á milli, er undir því komin að „bjórbandalagið" fái sem minnstan stuðning bæði á Al- þingi og utan þess. Páll V. Daníelsson er riðskipta- frædingur. Sýning á tré- skurðar- verkum SÍÐASTTLIÐINN sunnudag, 9. des- ember, var opnuð sýning á gömlum trésmíðaverkfærum og frístunda- verkum nokkurra félagsmanna Trésmiðafélags Reykjavíkur. Sýningin er í tilefni 85 ára af- mælis félagsins, en félagið er stofnað 10. desember 1899. Sýningin er í húsakynnum Trésmiðafélagsins að Suður- landsbraut 30, annarri hæð, og verður opin alla daga vikunnar frá kl. 10.00—17.00 til sunnudagsins 16. desember. Mnm... Mxmbou þaó þekkisl á bragóinu h f V Landssamtök hjartasjúklinga færðu Landspítalanum fullkominn tækjabúnað að gjöf fyrir skömmu. Á myndinni eru Þórður Harðarson, yfirlæknir, lengst til hægri, Viktor Magnússon, tæknimaður, er við hlið hans og Guðrún Bjarnadóttir, meinatæknir, stendur vinstra megin við tækjabúnaðinn. Stjórnarmcnn í Landssamtökum hjartasjúkl- inga standa að baki. Landspítala færð gjöf: Tæki til greiningar á hjartsláttar- truflunum LANDSSAMTOK hjartasjúklinga færðu hjartadeild Landspítalans fyrir skömmu að gjöf tæki, sem gerir kleift að fylgjast með hjartslætti fólks í lengri tíma en nú er og finna þannig hjartsláttartruflanir. Þórður Harðarson, yfirlæknir á Landspítalanum, sagði, að tæki þetta kæmi að mjög góðum notum. „í raun er um fleiri en eina gjöf að ræða,“ sagði Þórður. „í fyrsta lagi var Landspítalanum gefin þrjú segulbandstæki, sem eru spennt um mitti sjúklings og taka upp hjartslátt hans í 24 klukkustundir. í öðru lagi var gefinn hugbúnaður í tölvu, en þessi hugbúnaður gerir það kleift að lesa af segulböndun- um og finna hjartsláttartruflanir, sem er undir hælinn lagt að fynd- ust með þeirri tækni sem nú er notuð, þ.e. að taka hjartalínurit í skamma stund. Loks buðust Landssamtök hjartasjúklinga til að kosta þjálfun starfsmanns og verður Guðrún Bjarnadóttir, meinatæknir, send til Bretlands til að kynna sér þessa tækni.“ Segulbandstækin eru af Holt- er-gerð og sagði Þórður Harðar- son að þau hefðu valdið algerri byltingu í greiningu hjartslátt- artruflana. „Um helmingur allra hjartasjúkiinga deyr vegna hjart- sláttartruflana og við ætlum okkur að koma upp landsþjónustu með þessum tækjum, þ.e. iána þau um allt land og lesa síðan af snældunum hér,“ sagði Þórður. „Þess má geta, að Landssamtök hjartasjúklinga hafa fleiri járn í eldinum en þessa gjöf, samtökin eru nú með í undirbúningi lands- söfnun til styrktar hjartaskurð- lækningum, sem áætlað er að hefj- ist hér á landi árið 1986.“ HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMAR 38772 — 39460. TÆKNILEG ÆVINTYRI GERAST ENN Þriöji ættliöurinn í Honda Civic Hatchback-línunni byggir á margra ára reynslu — en er samt byltingarkenndur í tækninýjungum. Bíll, sem aðrir bílaframleiöendur munu líkja eftir. Hann er sann- arlega frábrugöinn öðrum. Bíll, sem hlotið hefur lof bílasérfræðinga, margföld verölaun fyrir formfeg urö, góöa aksturseiginleika og sparneytni. BÍLL, SEM VEKUR ÓSKIPTA ATHYGLI. ^5gyTT" Tæknilegar upplýsingar: I Sprengirými: 135cc eöa 1500cc. ~ -- m^m ^ Hestöfl: 71 Din eöa 85 Din. ■...;.* Gírar: 5 eöa sjálfskipt. " íwPPP**™ 1 ______ Viöbragö: 10,8 sek/100 km 1,31. 0 (Á civic ! 9,7 sek/100 km 1,51. ^ 'l» LxBxH: 3,81 x 1,635 x 1,34m. V \ Hæö undir 1. punkt: 16,5 sm. Verö: frá 372.400,- a götuna. Gengi: Yen. 0,16140. door Hatchback

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.