Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
„Nafn rósar-
innar“ komin út
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvítu hef-
ur sent frá sér skáldsöguna „Nafn
rósarinnar" eftir Umberto Eco, en
bókin segir sögu, sem gerist á Ítalíu
á 14. öld. Thor Vilhjálmsson hefur
þýtt bókina úr frummálinu, ítölsku.
Bókin er 500 blaósiður prentuð hjá
Guðjón Ó. og bundin hjá Bókfelli.
í fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu hefur borizt segir að
bókin hafi fengið metsölu víða er-
lendis, bæði austan hafs og vestan
frá því er hún fyrst kom út árið
1980. „Milljónir manna hafa heill-
ast þessu stórbrotna verki og
gleymt bæði stað og stund," segir i
fréttatilkynningunni.
Unglingasaga eft-
ir Bo Caperlan
BÓKAÚTGÁFAN Iðunn hefur gefið
út unglingasöguna Paradís eftir Bo
Carpelan í þýðingu Gunnars Stef-
ánssonar.
Höfundurinn er sænskumæl-
andi Finni og hlaut bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs fyrir
ljóð sín árið 1977. Hann hefur
einnig ritað nokkrar bækur fyrir
börn og unglinga sem hlotið hafa
viðurkenningu, m.a. Nilla Hólm-
geirssonar-verðlaunin sænsku.
Paradís er sjálfstætt framhald
Bogans sem kom út á íslensku fyrir
2 árum og segir frá vináttu Jóhanns,
sem er sögumaður, og hins þroska-
hefta Marvins.
Bókin er 128 blaðsíður.
Fyrir foreldra úl Að ai á ac ti á landi . . . . idvirð )eins 1 i 50 .80 Okr. kr.
Ógleymanleg gjöf frá jólasv' eininum
Mamma, tnamma. . sjáðu hvað ég fékk!'
Gjöfin frá
JÓLASVEININUM
„Gjöf til að opna á aðfangadag,
rneðan beðið er eftir jólunum.“
Att þú barn sem hefði gaman af að
fá ýfjöf frá Jólasveininum?
Efsvo er, þá er þessi miði í réttum
höndum.
Barnið fær:
1. Fallegt bréf frá
Jólasveininum.
2. Ljosmyndir af honum
við undirbúninginn fvrir jólin.
3. Stutta sögu.
4. Fimm góð heilræði
fyrir börn.
5. Viðurkenningarskjal.
6. Gjafaávásanir frá
3 góðum fvrirtækjum
(sjá nánar á bakhlið).
7. Fallega hannað
umslag utan um allt saman.
BERST I POSTI FYRIR JOLIN
— Sjá bakhlið ....
3 ÆVINTYRALEGAR
gjafaávísanir með hverri t£jöf
Fyrir þær fær barnið:
1. Leynipakka sendan beint
frá útlöndum.
2. Gullpoka fra Opal
með ýmis konar sælgæti.
3. „Breakborgara" með óllu
hjá Tomma-hamborguruin.
Allt þetta fylgir gjofinni.
Verð 180 kr.
(allt innifalið)
I Avísunina skal stíla áT Norðurpól s/f |
Vinsainlega sendið rétta upphæð.
/
I umslagið...
og beint í póst
(í prentstöfum, takk)
Heimilisf.
Fleiri nöfn?
- Sendið með sér á blaði
Ávísun og miða í umslag sem sendist til
Norðurpóll s/f
Box 8230 128 Reykjavík
iENDIST STRAX!
Angelique-
kvikmyndir
á myndbönd
ARNAR-VIDEO hefur fengið
myndbandaumboð fyrir Angelique-
kvikmyndir sem sýndar voru hér á
sínurn tíma við mikla aðsókn og
naut mikilla vinsælda. Kvikmyndir
þesNar eru byggðar á sögum eftir
Serge og Ann Colen og hafa þær
komið út í íslenskri þýðingu.
Angelique-myndirnar eru fimm
og eru þrjár fyrstu komnar á
markað og munu síðustu tvær
myndirnar koma á markaðinn í
byrjun desember. Myndirnar eru
um þessar mundir settar á
myndbönd víðs vegar um heim og
njóta allstaðar mikilla vinsælda
og er Island í hópi fyrstu þjóða
sem setja myndirnar á myndbönd.
Aðalhlutverk: Michéle Mercier,
Samy Frey, Jean Rochefort, Rob-
ert Hessein. Leikstjóri: Bernhard
Berderie.
(Fréttatilkynning.)
C.S.LEWIS
UÖNIÐ, NORNIN
OG SKÁPURIMN
Ævintýrabók eft-
ir C.S. Lewis
ALMENNA bókafélagið hefur sent
frá sér ævintýrabókina Ljónið, norn-
in og skápurinn eftir breska höfund-
inn CJS. Lewis. Þýðandi er Kristín
R. Thorlacius, en myndir eru eftir
Pauline Baynes.
I frétt frá AB segir m.a.:
„Ljónið, nornin og skápurinn er
að sjálfsögðu fyrst og fremst fyrir
börn þó að lesendur á öllum aldri
hafi skemmtun af að lesa hana.
Hún segir frá töfralandinu Narníu
þar sem alltaf er vetur, því að
nornin sem ræður þar ríkjum vill
hafa það svo. Fjögur Lundúnabörn
koma að undirlagi hennar inn í
þetta land, nornin ætlaði að hafa
gagn af þeim, en það fór öðruvísi
en hún hafði ætlað.
Höfundurinn, C.S. Lewis
(1898—1963), var prófessor í Cam-
bridge í Englandi. Ævintýrabæk-
ur hans eru komnar víðsvegar um
heiminn, enda hefur honum veriö
líkt við H.C. Andersen vegna þess
hve snjall hann er að búa til
ævintýralönd."
Ljónið, nornin og skápurinn er
189 bls