Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 54

Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984 Minning: Stefán Lúther Stefánsson Fæddur 18. janúar 1923 Dáinn 3. desember 1984 Þeir sem að guðirnir elska... Hvílík sorgarfregn. Mig setur hljóðan. Ótal spurningar vakna, ekkert svar er fullnægjandi. Óskiljanleg staðreynd hefur búið um sig hjá fjölskyldu og vinum. Hann eslku pabbi minn er kvadd- ur burt svo ótímabært að því er virðist og að tilgangslausu. Svar við spurningu eins og: af hverju? verða tími og djúpstæðar hugsanir að leiða 1 ljós. Eitt er gott, að einskis er að minnast, nema með gleði og ást. Enginn veit, nema reynslu hafi, hversu frábrugðið líf sjómannsfjölskyldu er því, er telja má eðlilegt fjöl- skyldulíf. Að eiga tvö heimili á þennan hátt hlýtur að vera und- arlegt. Ég hef oft velt því fyrir mér,'hvernig þetta líf hlýtur að vera fyrir viðkomandi. Frá því ég man eftir mér hefur pabbi verið í burtu meira og minna. En eitt er víst, að ekki gerði það annað en að styrkja vin- áttuböndin. Auðvitað var alltaf hátíð er skipið lagði að. Og allar okkar samverustundir styrktu þá trú, að ekki er það alltaf magnið sem sannar gæðin, heldur gæðin á meðan á stendur. Hvílík hugarró að mega til þess hugsa, að einskis er að minnast nema af hinu góða. Pabbi var perla, gimsteinn sem gljáir í myrkri og amstri hins daglega lífs. Eftir að aldur og þroski tóku að segja til sín fór ég sjálf að gera mér grein fyrir þeim kostum sem maðurinn hafði að geyma. Ég fór að átta mig á því, hversu góða, úbyggilega og sterka eiginkonu hann átti og hversu mikils hann mat það. Það er nú einu sinni svo, að fjölskylda farmanns er í hönd- um eiginkonu og móður. Ég minnist hans pabba er að minnast sem yndislegs manns, hógværs, vandvirks með eindæm- um, svokallaðs þúsundþjalasmiðs. Hann bar kannski ekki tilfinn- ingarnar utaná sér, en hann hafði svo sannarlega sínar skoðanir, alltaf sanngjarnar þó, og oft var reglulega gaman að ræða við hann fyrir okkur sem þekktum hann vel og vildum eitthvað til leggja í þjóðmálum. Það hlýtur oft að hafa verið erf- itt að geta ekki tekið beinan þátt í öllum þeim bæði smáu og stóru atriðum, sem upp koma í daglegu lífi. Ég hugsa, að oft hafi hann fundið til vanmáttartilfinningar að vera svona mikið fjarverandi. Snemma vildi hann sýna mér heiminn, kannski vildi hann reynda að sýna mér sinn heim. Sumar eftir sumar sigldi ég með honum um höfin breið og allt vildi hann gera til að gera mér ferðina ógleymanlega. Og þá eru þær ógleymanlegar stundirnar sem við áttum bara tvö ein. Árin líða, og margs er að minn- ast. Eins og svo margir aðrir ungl- ingar kvaddi ég heimahaga og hélt til náms erlendis. Erfitt að mörgu leyti að skilja mömmu eftir eina heima. En, þvílík heppni, faðir minn siglir á þessa fjarlægu höfn allan þann tíma sem ég var fjar- verandi, og við fengum að hittast og vera saman fjórtánda hvern dag allan þann tíma sem ég var fjarverandi. Ég get ekki lýst þeirri gleði minni. Reyndar fékk ég að kynnast pabba betur en nokkru sinni fyrr og aftur tengdumst við þessum svo yndislegu órjúfandi vinaböndum, sem bara við vissum um. Hvilík heppni. Ég var aldrei ein. Það er allt að því tilgangslaust að minnast á alla þá hlýju og þá em alltaf stöfuðu af veit að það eina sem gæti valdið honum áhyggjum er að hafa ekki getað kvatt barna- börn sín nógu vel, við hin getum tekið því. Við reynum að skýra þetta allt út fyrir þeim. Guð veiti mömmu styrk. Ella gjafmildi. : honum. Ég í dag er lagður til hinstu hvílu Stefán Lúther Stefánsson sjómað- ur, Hjarðarhaga 58, Reykjavík. Brottför hans héðan úr jarðlífi var i fullu samræmi við framgöngu hans alla, hljóðlát og fyrirvara- laus. Hann lést skyndilega er skip hans var nýkomið að landi hinn 3. desember sl. Við svo óvænta brottför vinar, sem við kvöddum kátan og frískan fyrir fáum vik- um, kemur í hugann fjöldi bjartra og góðra minninga. Þær verða ekki raktar hér í þessum fátæk- legu kveðjuorðum. Ekki skal held- Lili Marlene.jðmfrúarplata/i m ** mw m v m m _■_"_L ^ ÖUBBl MORfHENS gifarleikaM söngvati munnhorpuleikari og lagasmiður Aður i hl|om sveilunum Ulangarðsmonnum . nr„ , . . , r MIKE POLLOCK gifarleikar songvan og lagasmiðui SON bassa Aður i Utanyarðsmónnum mður Bodies Baðvórðunum og artassi Frokkunum GUOMUNDUfl GUNNARSSON lrommuleikan Aður i Tappa Tikarrassi. HLIÐ B Lili Marlene Blindsker Snertu mig Fallen angels Bönnum verkföll HLIÐ A Launaþrællinn L Svartur gitar ■ Leyndarmál frægðarinnar % Giftu þig 19 % 10.000 kr, frétt ouSiö* Þessi plata er framleidd með svokallaöri DMM Teldec tækni (Direct Metal Mastermg) sem hefur i för meö sér mun betri hl|ómgæði en áður hefur tiðkast Hliómurinn er i senn tærari og L öflugrl og hvorki bergmál né suð spilla fyrir ánægjunni af tónlistinm. ÞETTA ER PLATAN! gramm! FÁLKINN ur hlaðið lofi á Steán iátinn. Það væri síst að hans skapi, sem gekk sinn æviveg hlédrægur og yfirlæt- islaus. En nú er við kveðjum hann um sinn og finnum sáran söknuð- inn, þá sjáum við glöggt hve vel hann fyllti sitt rúm og vitum að skarðið sem hann skilur eftir sig mun standa autt hér eftir. Stefán fæddist í Hallfríðar- staðakoti í Hörgárdal nyrðra 18. janúar 1923. Foreldrar hans voru hjónin Ella Sigurðardóttir og Stefán Sigurjónsson, sem þar bjuggu. Hann var yngsta barnið af fjórum og kveðja nú systur hans þrjár kæran bróður. Þegar Stefán var sjö ára að aldri brugðu for- eldrar hans búi og fluttu til Akur- eyrar. Ekki naut Stefán langrar skólagöngu, en varð fljótt eftir- sóttur til vinnu. Hann vann við verslunar- og bankastörf þar til hann flutti til Reykjavíkur 17 ára gamall. Hér hélt hann áfram verslunarstörfum til ársins 1946, er hann hóf vinnu á sjó og sjó- mennska varð hans starf til dán- ardags. Síðustu 33 árin starfaði hann á skipum Eimskipafélags ís- lands sem vélgæslumaður og vél- stjóri. Þessar staðreyndir segja fátt um manninn sem vann verk sín af samviskusemi og snyrtimennsku. Þær segja ekki frá hæfileikum til ýmissa átta. Ekki heldur frá prúðmenni, sem var höfðingi heim að sækja. Ekki segja þær frá um- hyggjusömum eiginmanni, föður og afa. En allt þetta var Stefán. Stefán kvæntist árið 1946 Gyðu Ólafsdóttir, Sigurðssonar skip- stjóra úr Reykjavík, hinni mæt- ustu konu. En hún og börnin tvö, Stefán Gunnar stórkaupmaður og Ella innanhússarkitekt, og barnabörn- in þrjú ásamt tengdadótturinni Hafdísi voru fjársjóðurinn hans. Þeim helgaði Stefán alla sína um- hyggju og hlýju. Frá heimili hans og Gyðu á Hjarðarhaga 58 og sumarbústaðnum við Þingvalla- vatn eiga vinir þeirra margar ljúf- ar minningar, sem nú rifjast upp á kveðjustund. Yfir þeim minning- um er sérstök birta, sem ekki fell- ur á né fyrnist. Og nú skal þökkuð samfylgdin. Fari hann vel, Kári Jónsson í dag kl. 15.00 verður Stefán Lúther Stefánsson jarðsunginn frá Neskirkju. Stefán fæddist 18. janúar 1923 á Hallfríðarstaðakoti í Hörgárdal, yngsta barn hjón- anna þar, Ellu Sigurðardóttur og Stefáns Sigurjónssonar, en eftir- lifandi eru þrjár systur hans. Stefán ólst upp á Akureyri og gekk þar í skóla og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Að námi loknu fluttist Stefán til Reykjavíkur og vann þar fyrst við verslun, en hóf síðar sjómennsku hjá Ríkisskip, sem aðstoðarmaður í vél á ms. Esju. 1952 réðst Stefán til Eim- skipafélags íslands og starfaði þar óslitið til dauðadags, ýmist sem aðstoðarmaður í vél eða vélstjóri. Stefán var gjörvilegur og geð- þekkur maður, dagfarsprúður og rólyndur. Engum, sem kynntist honum, duldist meðfæddir mannkostir hans. Tryggð, trúmennska og verklagni voru honum í blóð borin og þessir kost- ir hans gerðu hann eftirsóttan til starfa. Þótt starfsævi Stefáns væri öll hér sunnanlands, duldist engum þær sterku taugar, sem ávallt tengdu hann við Akureyri og sól- ríkan Eyjafjörðinn. 8. júní 1946 kvæntist Stefán eft- irlifandi eiginkonu sinni, Gyðu, dóttur Unu Þorsteinsdóttur og Ólafs Sigurðssonar, skipstjóra í Reykjavík. Börn Gyðu og Stefáns eru Ella, innanhússarkitekt, og Stefán Gunnar, forstjóri í Reykjavík. Stefán Gunnar er kvæntur Haf- dísi Hannesdóttur og hefur þeim orðið þriggja barna auðið. Hið skyndilega fráfall Stefáns bar að hinn 3. desember, þegar hann að loknu dagsverki var að fara frá borði skips síns, ms. Eyrarfoss, við bryggju í Reykjavík, en þar hafði hann skömmu áður glaður og reif- ur heilsað konu sinni og börnum. 1 þetta sinn hafði hann sérstaka ástæðu til að gleðjast, því hann hafði fengið frí, og hugðist eyða því 1 faðmi fjölskyldu og vina um jólin. Sú varð ekki raunin á, því Stef- án var kallaður til enn einnar ferðar. Þeirrar ferðar, sem við öll verðum að lokum að fara. Við biðj- um algóðan Guð að taka vel á móti Stefáni Lúther, þegar hann tekur land, þar sem við öll eitt sinn tök- um land. Ennfremur biðjum við Guð fyrir Gyðu, börn hans, tengdadóttur og barnabörn. Einn- ig fyrir systur hans og ættingja. Megi Drottinn styrkja þau og hugga í sorg þeirra. Við þökkum Stefáni allar þær samverustundir sem við áttum með honum og fjöl- skyldu hans. Sigurður og Gunnar Ólafssyni Iðunn: Paradís, eftir Bo Carpelan, komin út Bókaútgáfan Iðunn hefur gefið út unglingasöguna Paradís eftir Bo Carpelan. Gunnar Stefánsson þýddi. Saga þessi fjallar um sömu persónur og Boginn sem út kom í íslenskri þýðingu fyrir tveimur árum. Höfundurinn er sænskumæl- andi Finni og eitt kunnasta ljóð- skáld í landi sínu. Hann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs fyrir ljóð sín árið 1977. Hann hefur einnig ritað nokkrar bækur fyrir börn og unglinga sem hlotið hafa einróma lof og viðurkenn- ingu, m.a. Nilla Hólmgeirsson- ar-verðlaunin sænsku sem veitt eru afburðagóðum unglingasög- um. Paradís er sjálfstætt framhald Bogans og segir frá vináttu Jó- hanns sem er sögumaður og hin- um þroskahefta Marvin. Nú eru þau Marvin og Gerða móðir hans flutt til borgarinnar því að eyjan Boginn hefur verið seld undir sumarhús. Bókin er gefin út með styrk frá Norræna þýðingarsjóðnum og er hún 128 blaðsíður, prentuð í Odda hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.