Morgunblaðið - 20.02.1985, Page 36

Morgunblaðið - 20.02.1985, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1985 Erlendar skuldbinding- ar viðskiptabankanna tæpir 16 milljarðar kr. ERLENDAR skuldbindingar viðskiptabankanna námu um síðustu áramót 15.816 millj- ónum króna og skiptast þannig að yfírdráttarskuldir hjá erlendum bönkum voru 1.117 milljónir króna, endur- lánuð skammtímalán voru 6.081 millj. kr., endurlánuð lán til langs tíma voru 4.661 Frádráttur fiskvinnslu- fólks verði 10%af launum Þingmennirnir Sighvatur Björgv- insson Alþýðuflokki og Guðmundur J. Guðmundsson Alþýðubandalagi hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um tekjuskatt og eignaskatt í neðri deild Alþingis. Flutningsmenn leggja til að fólki sem vinnur við fiskverkun verði veittur sérstakur frádráttur frá tekjum við álagningu tekjuskatts og nemi sá frádráttur 10% af laun- um. í greinargerð með frumvarpinu segir að tilgangur þess sé að leysa vanda fiskvinnslufólks í kjaramál- um á svipaðan hátt og þegar er gert með gildandi lögum um fiski- mannafrádrátt. millj. kr. og erlendar ábyrgð- ir voru 3.957 milljónir króna. Þessar upplýsingar komu fram í svari viðskiptaráðherra, Matthíasar Á. Mathiesen, við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar- dóttur Alþýðuflokki um starf- semi banka og sparisjóða. í svari ráðherra kom fram að hvorki opinberir aðilar né einkaaðilar mega semja um að taka lán erlendis nema með samþykki ríkisstjórnarinnar. Gjaldeyrisbönkunum er þó heimilt að semja um yfirdrátt- arheimildir til skamms tíma hjá erlendum bönkum. Viðskiptaráðherra sagði um ábyrgð viðskiptabanka og spari- sjóða á innistæðum sparifjár- eigenda að bankarnir bæru ábyrgð á þeim með öllum eigum sínum. Ríkissjóður er hins vegar ábyrgur fyrir öllum skuldbind- ingum ríkisbankanna. Af þessu leiðir að innistæður í viðskipta- bönkum eru fyrst og fremst tryggðar með eigin fé stofnana. Einnig er starfandi svokallaður Tryggingasjóður sparisjóða en tilgangur hans er að tryggja innistæður í sparisjóðum. Jó- hanna Sigurðardóttir benti á að árið 1982 var eigin fjárstaða nokkurra innlánsstofnana eng- in. Matthías Á. Mathiesen sagði það rétt að tryggingar vegna innistæðna væru ekki eins góðar hjá einkabönkunum og hjá rík- isbönkunum. Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra og Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, rsðast við. Kjör og starfsaðstaða kennara: V erið að vinna að lausn deilunnar MÞinci — sagði menntamálaráðherra UMRÆÐUM utn kjör og starfsaðstöðu kennara, sem hófust þriðjudaginn 12. febrúar í sameinuðu þingi, var framhaldið í gær og deildu stjórnarandstöðuþingmenn hart á menntamála- ráðherra og fjármálaráðherra. Helgi Seljan Alþýðubandalagi sagði að langlundargeö kennara væri þrotið og að skilnings- leysi stjornvalda á störfum þeirra væri mikið. Ragnhildur Helgadóttir an ramma laganna og vísaði til Sluttar þinjífréttir Flugvallarstæði fyrir ísafjörð Sighvatur Björgvinsson, Al- þýðuflokki hefur sett fram fyrir- spurn til samgönguráðherra um framtíðarflugvallarstæði fyrir ísafjörð. Þingmaðurinn spyr hvort ráðherra sé tilbúinn til þess að láta fara fram athugun á nýju flugvallarstæði við Arnarnes. Útflutningsbætur og niðurgreiöslur Sami þingmaður hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráð- herra ásamt Eyjólfi Konráð Jóns- syni, Sjálfstæðisflokki, um út- flutningsbætur og niðurgreiðslur árið 1984. Er meðal annars spurt um hvernig útflutningsbótum rík- issjóðs var ráðstafað og hvaða gagna var krafist áður en greiðsl- ur fóru fram. Einnig er spurt um hvernig greiðslurnar fóru fram og hverjir voru viðtakendur þeirra. Um niðurgreiðslur spyrja þing- menirnir sömu spurninga. Meint fjársvik í fasteignasölu Sighvatur Björgvinsson hefur lagt fram þriðju fyrirspurnina, ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur, Alþýðuflokki, til dómsmálaráð- herra um meint fjársvik í fast- eignasölu. Spurst er fyrir um hvaða mál þar að lútandi séu nú fyrir dómstólum, á hvaöa stigi þau séu og hvernig þau hafi geng- ið. Þá er ráðherra inntur eftir því hvort hann sé reiðubúinn til að auka eftirlit með fasteignasölu. menntamálaráðherra benti á að í gangi væru sérkjaraviðræður við kennara til að ákveða hvar hver og einn yrði í launaflokki. ítrekaði hún að verið væri að vinna að lausn deilunnar og var- aði við að efnt væri til úlfúðar, sem einungis er til þess fallin að torvelda að lausn náist. Þá sagði ráðherra að starf samstarfs- nefndar kennara og ráðuneyt- isins um endurmat á störfum þeirra fyrrnefndu væri í fullum gangi. Hjörleifur Guttormsson Al- þýðubandalagi sagði það greini- legt að menntamálaráðherra ætlaði sér að láta 1. mars líða án þess að sérkjarasamningar yrðu gerðir og kvað hann það ósæmi- leg vinnubrögð af hendi ráð- herra. Ólafur Þ. Þórðarson Fram- sóknarflokki benti á að úrskurð- ur kjaradóms hefði skapað það rými sem nauðsynlegt sé til að ná samkomulagi. Lagði hann áherslu á að menn störfuðu inn- þess að látið hafði verið að því að liggja að svo ætluðu sumir sér ekki. Ólafur vék því næst að Alþýðubandalaginu og sagði að í tíð fyrrverandi fjármálaráð- herra, Ragnars Arnalds, Al- þýðubandalagi, hefði engin til- raun verið gerð til þess að leið- rétta kjör kennara. Ragnar Arnalds sagði að á meðan hann hefði gegnt emb- ætti fjármálaráðherra hefðu kjarasamningar gengið nær snurðulaust fyrir sig. Þá dró þingmaðurinn í efa lögmæti þess að lengja uppsagnarfrest kennara um fjóra mánuði, með jafn stuttum fyrirvara og raun ber vitni. Fleiri þingmenn tóku til máls en ræður þeirra verða ekki rakt- ar hér. Orkufrekur iðnaður á Suðurlandi LÖGÐ hefur verið fram þingsálykt- unartillaga um orkufrekan iðnað á Suðurlandi. Flutningsmaður er Óli Þ. Guðbjartsson, Sjálfstæðisflokki. í tillögunni er lagt til að ríkisstjórn- inni verði falið að vinna að því að koma á fót nú þegar orkufrekum Kostnaður vegna nemenda í grunn- skóla 1985 nemur rúmum 30 bús. kr. MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur lagt fram skriflegt svar við fyrirspurn Geirs Gunnarssonar, Alþýðubandalagi, um kennslukostnað. Þar kemur fram að kostnaður vegna nemenda á grunnskólastigi er að jafnaði samkvæmt fjárlögum 1985 rúmar 30 þúsund krónur, kostnaður vegna nemenda í fjölbrauta- og menntaskólum er rúmlega 45 þúsund krónur, en verkmenntanemandi kostar ríkissjóð tæpar 53 þúsund krónur. Kostnaður vegna nemenda á grunnskólastigi er til jafnaðar sem hér segir: Samkvæmt ríkisreikningi 1983 kr. 20.320. Samkvæmt bráðabirgða- reikningi 1984 23.400. Samkvæmt fjárlögum 1985 30.810. Tölur þessar taka til ails launa- og rekstrarkostnaðar ríkissjóðs, svo sem vegna kennslu, stjórnunar, námsbóka o.s.frv. Stofnkostnaður vegna skólahúsnæðis er þó ekki meðtalinn. Fjöldi nemenda I grunnskólum, þar með taldir forskólanemendur, eru á þessu árabili milli 40.600—40.700. Kostnaður þessi ár var sem hér segir: Árið 1983 tæpar 827 millj. kr. samkvæmt ríkisreikn- ingi. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 1984 950 miiljónir kr. og samkvæmt fjárlögum 1985 1253 milljónir kr. Rétt er að benda á að hér er um meðaltalskostnað að ræða. Kostn- aður er misjafn eftir landshlutum, skóium, aldri nemenda o.s.frv. Kostnaður ríkissjóðs vegna nem- enda í fjölbrauta- og menntaskólum er sem hér segir, til jafnaðar á nemanda: Samkvæmt rikisreikningi 1983 31.660. Samkvæmt bráðabirgða- reikningi 1984 38.240. Samkvæmt fjárlögum 1985 45.630. Nemendur í mennta- og fjöl- brautaskólum eru á þessu árabili frá 8.400—8.600 sem eru um 75% allra nemenda á framhaldsskóla- stigi. Meginþorri þeirra, eða tæp 90%, er skilgreindur sem bók- námsnemendur. Kostnaður rikissjóðs við mennta- og fjölbrautaskólenemendur var alls um: 267 millj. kr. árið 1983. 323 millj. kr. samkvæmt bráðabirgða- reikningi 1984 og 386 millj. kr. sam- kvæmt fjárlögum 1985. Kostnaður ríkissjóðs er, með sama hætti og í grunnskólum, mis- jafn á framhaldsskólastigi. Kemur þar til stærð skóla, staðsetning, umfang og tegund náms, svo og mismikil hlutdeild ríkissjóðs í rekstri skóla. Kostnaður ríkissjóðs vegna verk- námsnemenda er til jafnaðar sem hér segir: Samkvæmt ríkisreikningi 1984 38.840. Samkvæmt bráðabirgða- reikningi 1984 44.340. Samkvæmt fjárlögum 1985 52.950. Tölur þessar taka til alls kostnað- ar ríkissjóðs í nokkrum verk- menntaskólum. í skólum þessum stunda um 1500—1600 nemendur nám og er það um helmingur allra verknámsnemenda. iðnaði á Suðurlandi. Gert er ráð fyrir að iðnaðarráðuneyti og stóriðju- nefnd leiti til erlendra starfsaðila. í greinargerð með þingsálykt- unartillögunni segir meðal annars að komist þessi áform i fram- kvæmd muni það treysta byggð á Suðurlandi, en fjórðungurinn hef- ur fram að þessu lagt til megin- hluta allrar orku þjóðarinnar. Þá segir ennfremur: „Suðurland hefur á undanförn- um áratugum verði sá hluti lands- ins þar sem hlutfallslega flestir starfandi manna hafa haft at- vinnu af frumatvinnugreinunum tveimur, sjávarútvegi og landbún- aði. Það gegnir því engri furðu að harðast bitni á þeim fjórðungi þegar þessar atvinnugreinar geta ekki lengur tekið við nýju fólki ... Það er hátt til lofts og vítt til veggja á Suðurlandi, ef svo má að orði komast í þessu sambandi. Þess vegna er lítil hætta á loftm- engun, enda búnaður nú orðið vandaður til varnar slíku. Þéttbýli er nauðsyn í þessu sambandi en nú búa tæplega 8000 manns í þéttbýli Flóa og ölfuss. Nefnd, sem unnið hefur að athugun á staðarvali fyrir næstu stórfyrirtæki íslend- inga í orkufrekum iðnaði, hefur komist að þeirri niðurstöðu að á Suðurlandi væri að finna einn þriggja álitlegustu staða i þessu efni.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.