Morgunblaðið - 09.03.1985, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985____________________
Aðalfundur kartöflubænda:
3
Danskennarasamband Islands heldur
sunnudaginn
10. marz nk.
Heimsmeistararnir í suður-amerískum
dönsum, þau Donnie Burns og Gaynor
Fairweather sýna alla suður-amerísku
dansana. Danssýning — Nemendur frá
öllum skólum sambandsins sýna og
börnin fá að dansa.
Kvöldskemmtun
Heimsmeistararnir sýna og nemendur allra
skóla sambandsins dansa. Ljúffengur kvöld-
veröur verður framreiddur frá kl. 20.30.
MATSEÐILL
Fordrykkur
Sinnepssteiktur svinahryggur frantreiddur met) ristuðum an-
anas. gljáðum gulrótum. hlómkáli i ostasósu og Rohert-sósu.
ís og ávextir med súkkulaðisósu.
Forsala aögöngumiöa og boröapantanir fyrir matargesti í Broadway í dag kl. 14—16.
Aðgöngumiðar gilda sem happdrættismiöar. Missiö ekki af þessu einstæöa tækifæri til aö sjá
þaö besta í dansinum í dag.
Danskennarasamband íslands nsí
Lýsir vantrausti
á forstjóra
Grænmetisins
Hjúkrunarfræðingarnir, Óskar Harry Jónsson, Úlfhiidur Grímsdóttir og Jón Snorrason.
Hjúknmarmiðstöðin sf.:
Verktakafyrirtæki í
almennri hjúkrun
Stofnað hefur verið nýtt fyrirtæki,
Hjúkrunarmiðstöðin sf. Þetta er
verktakafyrirtæki í almennri hjúkr-
un og býður þeim sem þess óska
þjónustu sína.
Þrír hjúkrunarfræðingar
standa að fyrirtækinu, þau Óskar
Harry Jónsson, lauk hjúkrunar-
námi frá Hjúkrunarskóla íslands
1962, stundaði síðan framhalds-
nám í geðhjúkrun í Noregi. Jón
Snorrason, lauk hjúkrunarnámi
frá Háskóla íslands 1979 og hefur
starfað sem geðhjúkrunarfræð-
ingur síðan. Úlfhildur Grímsdótt-
ir, lauk hjúkrunarnámi frá Há-
skóla íslands 1977 og fór síðan i
framhaldsnám og hefur MS-gráðu
í hjúkrun krabbameinssjúklinga.
„Við höfum hugsað okkur að
bjóða út hjúkrun rétt eins og aðrir
verktakar bjóða út sína vinnu,“
sagði óskar. „Það má segja að
starfsemi fyrirtækisins verði tví-
þætt, annarsvegar bjóðum við
stofnunum að sjá um einhvern
ákveðinn þátt hjúkrunar á sjálfri
stofnuninni. Hinsvegar bjóðum
við fyrirtækjum og einstaklingum
að sjá um almenna heilsugæslu,
eða stunda sjúklinga í heimahús-
um.“
Eins og allir vita er mikið talað
um sjúklinga i heimahúsum, sem
þurfa á hjúkrun að halda um
lengri eða skemmri tíma. Við ger-
um okkur vonir um að geta komið
til móts við þarfir þeirra sjúkl-
inga, sem eru nýútskrifaðir t.d. af
geðdeild, og þurfa einhverja að-
stoð eftir að heim er komið,“ sagði
Jón. „Með því getum við komið til
móts við sjúklinginn og þarfir
hans úti í þjóðfélaginu og þá
hjálpað honum að aðlagast eftir
sjúkrahúsvist. Þessi starfsemi
ætti t.d. að geta komið í veg fyrir
sífelldar endurkomur sjúkl-
inganna á siúkrahúsin."
„íslenskir hjúkrunarfræðingar
hafa ekki áður boðið samsvarandi
þjónustu en við álítum að svona
einkafyrirtæki eigi rétt á sér sam-
hliða opinberri þjónustu," sagði
Úlfhildur. „Heilbrigðisþjónusta
hefur verið ókeypis eða styrkt af
opinberum aðilum hingað tii, en
nú hafa sjúkraþjálfarar, sálfræð-
ingar, félagsráðgjafar og nokkrir
læknar farið út i einkarekstur.
Það má þvi segja að nú sé röðin
komin að hjúkrunarfræðingunum.
Við vitum að margir þeirra hafa
verið að velta þessum möguleika
fyrir sér og við efumst ekki um að
Útför Guðmundar G. Hagalín
frá Reykholtskirkju í dag
ÚTFÖR Guðmundar Gíslasonar
Hagalín verður gerð frá Reykholts-
kirkju í Borgarfirði klukkan 14.00 í
dag.
Séra Eiríkur J. Eiríksson flytur
útfararræðu og þjónar fyrir altari
og kirkjukór Reykholtskirkju
syngur undir stjórn Bjarna Guð-
ráðssonar, söngstióra og organista
kirkjunnar. Séra Geir Waage,
sóknarprestur í Reykholti, annast
athöfnina í kirkjugarðinum. Þar
sem búist er við miklu fjölmenni
við útförina hafa verið gerðar
ráðstafanir til að þeir sem ekki
komast í kirkjuna geti hlýtt á at-
höfnina í skólanum. Ferðir verða
frá Bifreiðastöð íslands klukkan
11.00 árdegis.
Arnkell J. Einarsson
vegaeftirlitsmaður látinn
ARNKELL Jónas Einarsson vegaeft-
irlitsmaður lést í Landakotsspítala
fimmtudaginn 7. mars sl. 64 ára að
aldri. Arnkell hafði átt við alvar-
legan sjúkdóm að stríða um nokkurt
skeið og lést hann af völdum sjúk-
dómsins.
Arnkell fæddist hinn 15. októ-
ber 1920. Hann hóf störf hjá Vega-
gerð ríkisins árið 1944, fyrst sem
bifreiðastjóri og vélamaður en síð-
an réðst hann til Vegaeftirlitsins
árið 1967 þar sem hann starfaði
óslitið síðan. Arnkell starfaði mik-
ið að félagsmálum og lét til sín
taka í hagsmunasamtökum sinnar
stéttar innan BSRB. Eftirlifandi
eiginkona Arnkels er Elín Ágústa
Jóhannesdóttir og áttu þau sex
börn. Arnkell J. Einarsson
J2
fleiri fari inn á sömu braut og við.
Ef til vill er þetta lausnin á hjúkr-
unarfræðingaskortinum."
Á AÐALFUNDI Landssambands
kartöflubænda, sem haldinn var í
Reykjavík sl. miðvikudag, var sam-
þykkt ályktun þar sem lýst er van-
trausti á núverandi framkvæmda-
stjóra Grænmetisverslunar landbún-
aðarins.
Guðmundur Þórisson, bóndi í
Hléskógum I Grýtubakkahreppi,
sem er formaður Félags kartöflu-
bænda við Eyjafjörð, flutti tillögu
um málefni Grænmetisverslunar
landbúnaðarins á fundinum. Til-
lagan var samþykkt samhljóða —
með þorra atkvæða gegn engu.
Ályktunin er á þá leið að fundur-
inn lætur í ljós áhyggjur yfir því
hversu illa hafi verið staðið að
málum hjá Grænmetisverslun
landbúnaðarins og látin er í ljós
sú skoðun að núverandi fram-
kvæmdastjóri hafi ekki reynst
hæfur til að ná fyrirtækinu upp úr
þeim öldudal sem það er i.
Ályktunin er stíluð til stjórnar
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
en samkvæmt reglugerð um
GrænmetisVerslun landbúnaðar-
ins ræður Framleiðsluráð fram-
kvæmdastjórann.
Starfsmaður Glóbus:
Játar að hafa dregið
sér um Vz millj. kr.
LIÐLEGA tvítug kona, starfsmaður
heildverzlunarinnar Glóbus hf., hef-
ur viðurkennt að hafa dregið sér lið-
lega '/2 milljón króna frá fyrirtækinu.
Glóbus kærði konuna þann 26.
febrúar síðastliðinn og var konan
úrskurðuð í gæzluvarðhald þann
27. febrúar síðastliðinn vegna
rannsóknar málsins, en var sleppt
úr haldi síðastliðinn laugardag.
Féð tók konan sér á 14 mánaða
tímabili. Hún mun hafa tekið fé
Grænmetisverslunar landbúnað- sem barst fyrirtækinu frá við-
arins, þar sem hún mun hafa verið skiptavinum, sem staðgreiddu
lögð fram á fundi á fimmtudag, og vörur.