Morgunblaðið - 09.03.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
Morgunblaðið/Emilía
f kuldanum í gær — tollverðir við einn gáminn úr Álafossi.
Leitin í gámunum í
Álafossi án árangurs
„VIÐ HÖFUM leitad í gámum,
sem voru um borð í Álafossi, yfir
100 talsins. Hún hefur ekki borið
árangur, en lýkur væntanlega eftir
helgi,“ sagði Kristinn Ólafsson,
tollgæzlustjóri, í samtali við blm.
Mbl. vegna leitar Tollgæzlunnar
um borð í ms. Álafossi, skípi Eim-
skipafélags íslands. Skipverjar
fengu leyfi til að fara frá borði
síðdegis á miðvikudag eftir árang-
urslausa leit að smyglvarningi um
borð.
„Við höfum vissu fyrir því, að
tollskyldur varningur, sem ekki
var gerð grein fyrir við tollaf-
greiðslu, fór um borð í Álafoss í
erlendum höfnum. Um borð í
Álafossi fundust tveir hugsan-
legir felustaðir fyrir smygl. Við
vitum ekki hvað varð um varn-
inginn. Tvennt er mögulegt í því
sambandi: Að hÁnum hafi verið
komið frá borði á leið til lands,
eða þegar skipið lá á ytri höfn-
inni. Beinlfnis kastað í sjóinn á
ytri höfninni,“ sagði Kristinn
ólafsson.
„Ég kynnti skipstjóra Álafoss
og forstjóra Eimskipafélags ís-
lands þau gögn, sem lágu tii
grundvallar leitinni og þeirri
vissu okkar að tollskyldur varn-
ingur, sem skipverjar gerðu ekki
grein fyrir við tollafgreiðslu, fór
um borð, og hvorugur þeirra dró
f efa réttmæti þeirra upplýsinga.
Þá má benda á, að við tollaf-
greiðslu komu fram munir, sem
við höfðum fengið upplýsingar
um að hefðu farið um borð um
leið og smyglvarningurinn, og
rennir stoðum undir réttmæti
upplýsinga okkar,“ sagði Krist-
inn.
„Við höfum áður fengið upp-
lýsingar um smyglvarning um
borð í skipum án þess að finna
nokkuð. Okkur þótti því rétt að
grípa til nýrra aðgerða til þess
að freista þess að koma í veg
fyrir smygl inn i landið," sagði
Kristinn ennfremur. Hann sagði
að Tollgæzlan hefði haft gott
samstarf við yfirvöld í V-Þýzka-
landi, Englandi. Belgíu og Hol-
landi, þar sem Álafoss hafði við-
komu.
Sjómannaverkfallið á Austfjörðum:
Sjómönnum boðið
það sama og öðrum
— meira fá þeir ekki, segir Jóhann K. Sigurðs-
son, formaður Útvegsmannafélags Austurlands
ÚTVEGSMENN á Austfjörðum
höfnuðu á fimmtudag öllum kröf-
um sjómanna þar umfram það, sem
samizt hefur um hjá öðrum félög-
um. Sjómenn á Austfjörðum hafa
lagt fram kröfur í 14 liðum umfram
það, sem þegar hefur samizt um.
Fara þeir meðal annars fram á að
skiptahlutfall þeirra hækki um
0,5% að gert verði upp við þá innan
7 daga frá því veiðiferð lýkur, 120
klukkustunda hafnarfrís á mánuði
á togurunum og löndunarfrís á
loðnubátum, þegar landað er í
heimahöfn. Alþýðusamband Aust-
fjarða hefur nú óskað eftir því, að
sáttasemjari skerist í leikinn og
verður sáttafundur á Egilsstöðum í
dag.
Sigfinnur Karlsson, formaður
Alþýðusambands Austurlands,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að útvegsmenn hefðu boðið sjó-
mönnum upp á Reykjavíkursam-
komulagið, en þeir hefðu ekki
viljað ganga að þvi. Það fæli að-
eins í sér 210 króna hækkun á
föstum launum á stórum togur-
um og fatapeningum og loforði
ríkisstjórnarinnar um kostnað-
arhlutdeildina frá samningnum á
mánudag. Þegar menn væru bún-
ir að fella samninga, þyrfti meira
en 210 króna hækkun á mánuði
til að semja. Sigfinnur sagði, að
sér litist þunglega á lausn mála
og hefði því meðal annars óskað
þess, að sáttasemjari tæki deil-
una að sér.
Jóhann K. Sigurðsson, formað-
ur Útvegsmannafélags Austur-
lands, sagði i samtali við Morg-
unblaðið, að sjómönnum hefði
verið boðið það sama og öðrum og
lengra gengju útvegsmenn aldrei.
Þegar hann hefði komið heim frá
samningagerð í Reykjavík, hefðu
verið komnar fram sérkröfur hjá
austfirzkum sjómönnum í 14 lið-
um. Þeim hefði öllum verið hafn-
að og honum litist illa á lausn
mála. Útvegsmenn á Austfjörð-
um gætu ekki samið um meira en
aðrir, þeir væru á sama báti og
aðrir útvegsmenn í landinu.
Flestar kröfur sjómanna væru
óframkvæmanlegar eins og að
gert skyldi upp innan 7 daga frá
því veiðiferð lyki. Nú væri gert
upp eftir 15 daga og styttri tíma
væri ekki hægt að gefa. Það væri
ekki hægt að skrifa undir samn-
ing, sem ómögulegt væri að
standa við. Þá sagði Jóhann, að
sér fyndist það einkennilegt fé-
lagslyndi hjá þeim útgerðar-
manni á Fáskrúðsfirði, sem geng-
ið hefði að kröfum sjómanna.
Þær legðust þyngst á útgerðir
togara og loðnuskipa, en slík skip
ætti hann engin.
Samningar Sjómannasam-
bandsins og útvegsmanna hafa
verið samþykktir á Stöðvarfirði
og Breiðdalsvík. Einn útgerðar-
maður á Fáskrúðsfirði, sem gerir
út þrjá báta, hefur gengið að
kröfum sjómanna þar, en annars
staðar á Austfjörðum er ósamið
og verkfall í gildi.
Akranes:
Sjómannasamn-
ingarnir felldir
— samþykktir alls staðar annars staðar
þar sem atkvæði hafa verið greidd
KJARASAMNINGAR Sjómanna-
sambandsins og útvegsmanna vorn í
gær felldir á fundi sjómannadeildar
Verkalýðsfélags Akraness með 42
atkvæðum gegn 22. Er þetta eina
sjómannafélagið á landinu, sem til
þessa hefur fellt samningana. Sjó-
menn þar eru því enn í verkfalli.
Guðmundur M. Jónsson, formaður
deildarinnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann teldi ástæðu
uppsafnaða óánægju sjó-
Bjöm Arnórsson hagfræðingur BSRB segir sig úr Alþýðubandalaginu:
Treysti mér ekki til að verja
flokkinn sem verkalýðsflokk
Telur samhenta verkalýðshreyfingu „mikilvægara baráttumál, en
tortímandi sjálfseyðingarkarp ráðvilltra stjórnarandstöðuflokka“
„ÁSTÆÐUR mínar fyrir úrsögn úr
Alþýðubandalaginu eru þær að ég
tel flokkinn hafa fjarlægst svo upp-
runa sinn, að ég treysti mér ekki
að verja hann sem þann verkalýðs-
fiokk, sem launþegar á íslandi
hafa umfram allt annað þörf fyrir I
dag til að verjast ágangi íhaldsafi-
anna,“ sagði Björn Arnórsson,
hagfræðingur BSRB, er Morgun-
blaðið spurði hann um úrsögn hans
úr Alþýðubandalaginu og ástæður
bennar.
„Ég vil taka það skýrt fram, að
innan flokksins eru fjölmargir
einstaklingar, sem ég tel til
dyggustu baráttumanna launa-
fólks, en það er stefna eða
stefnuleysi forystunnar sem ég
hef gefist upp á, og er með úr-
sögn minni i rauninni að lýsa þvi
yfir að ég hef gefist upp á að
reyna að hafa áhrif þar á,“ sagði
Björn.
Björn sagði að til að gera
langa sögu stutta, mætti segja
að dropinn sem fyllt hefði mæl-
inn væri síðasta herferð flokks-
ins „til að sameina stjórnar-
andstöðuna“. Þar hefði Álþýðu-
bandalagið ekki sett fram mál-
efni (nema yfirlýsingar um að
NATO og herinn væru annars
flokks mál, ættu að túlkast sem
liður í málefnasamningi), heldur
hefði verið sett fram skilgrein-
ing á hægri og vinstri eftir því í
hvaða stjórnmálaflokkum menn
væru staðsettir.
„Ég gerði tilraun á síðasta að-
alfundi verkalýðsmálaráðs til að
fá þessu breytt þannig að verka-
lýðsmálaráðið hvetti til samstill-
ingar alla þá, sem væru reiðu-
búnir að berjast fyrir þeirri
samþykkt, sem stjórn BSRB og
miðstjórn ASÍ samþykktu um
það leyti sem stjórnarmyndun-
arviðræður áttu sér stað vorið
1982,“ sagði Björn „Þessi tillaga
var samþykkt með öllum greidd-
um atkvæðum gegn tveimur."
„Þjóðviljinn hefur ekki einu
sinni séð ástæöu til þess að birta
þessa samþykkt," sagði Björn,
„hvað þá að hennar hafi orðið
vart í starfi flokksins á annan
máta.“
Björn sagðist óska þeim félög-
um sínum góðs gengis sem enn
Björn Arnórsson
væru að berjast innan flokksins
fyrir því að forysta hans og
Þjóðviljinn tækju á verkalýðs-
málum af meiri alvöru og festu,
„en að láta sér nægja að hreyta
reglubundið skít í lýðræðislega
kjörna forystu hennar. Sjálfur
hef ég gefist upp á þeim vett-
vangi,“ sagði Björn, „þótt auðvit-
að gangi ég út frá að þessi
ákvörðun mín muni ekki hafa
áhrif á samstarf við þá félaga
mína í Alþýðubandalaginu sem
telja að samhent verkalýðs-
hreyfing sé mikilvægara barátt-
umál en tortímandi sjálfseyð-
ingarkarp ráðvilltra stjórnar-
andstöðuflokka á þingi. Þetta
síðast sagða má þó á engan hátt
túlka sem svo að ég telji stjórn-
arflokkana hótinu betri. Stjórn-
mál á íslandi eru einfaldlega í
stórfelldri kreppu í dag.“
Björn var spurður með hvaða
hætti hann hygðist berjast fyrir
hugsjónum sínum f framtíðinni:
„Ég mun einfaldlega halda
áfram í því starfi sem ég er í nú,
og ég mun halda áfram að vinna
að hugðarefnum mínum innan
samtaka launafólks. Þar á ég
auðvitað við með launþegum úr
öllum stjórnmálaflokkum."
Við spurningunni hvort hann
væri hættur afskiptum af
stjórnmálum, sagði Björn: „Ég
sé ekki að nokkur stjórnmála-
flokkur í dag hafi þann vettvang
sem ég tel vænlegt að eyða tíma
mínum og kröftum á.“
manna. Kostnaðarhlutdeildin væri
algjört óréttlæti og undirrót alls
þessa. Auk þess hefðu sjómenn ekki
sambærileg réttindi við verkafólk í
landi.
Útvegsmenn hafa hafnað öllum
kröfum sjómanna á Akranesi um-
fram þær, sem um samdist á
fimmtudag. Segjast þeir ekki til-
búnir til þess að setjast að samn-
ingaborðinu í þriðja sinn.
Samningarnir hafa verið sam-
þykktir á nær öllu því svæði, sem
þeir taka til, það er á öllu landinu
nema Aust- og Vestfjörðum. At-
kvæðagreiðslu um þá er víðast
lokið, en á nokkrum stöðum lýkur
henni um eða eftir helgi, nema í
Reykjavík, þar sem hún stendur
yfir f tvær vikur vegna bátakjara-
samninga og 4 vikur vegna samn-
inga á stóru togurunum. Miðast
tímalengd atkvæðagreiðslunnar
við það, að öllum sjómönnum sé
kleift að kjósa, en mörg skip eru
nú á sjó.
Samningurinn hefur verið sam-
þykktur á eftirfarandi stöðum:
Ollum Suðurnesjum nema Grinda-
vík, Þorlákshöfn, Eyrarbakka,
Höfn, Þórshöfn, Húsavík, Eyja-
firði, ólafsfirði, Siglufirði, Skaga-
firði, Skagaströnd, Ólafsvík og
Hafnarfirði. Atkvæðagreiðslu er
ekki lokið f Reykjavík, Grindavík,
Vestmannaeyjum, Raufarhöfn,
Hólmavík, Stykkishólmi, Grund-
arfirði og Hellissandi.
Foráttubrim
á Eyrarbakka
Krnrbakka. g. mare.
f DAG og í gær hefur verið hér
foráttubrim og mjög flóðhátt. Sjór
hefur gengið alveg upp að sjóvarn-
argörðunum, en tjón hefur ekkert
orðið, enda engir bátar í höfninni.
Óskar
o
INNLENT