Morgunblaðið - 09.03.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
27
Hamborg, Vestur-Þýakalandi, 8. mara. AP.
ÞRÍR Pólverjar báðust í dag hslis f
Vestur-Þýskalandi en þeir komust til
landsins í gámi, sem þeir hírðust í
heila viku. Voru þeir að vonum fegnir
þegar þeir losnuðu úr prisundinni.
Þremenningarnir kváðust hafa
skriðið inn í gáminn áður en pólsk-
ir tollverðir innsigluðu hann f
Gdynia, en þaðan var hann fluttur
með skipi til Hamborgar. Höfðu
þeir aðeins vegabréf sín og dálítinn
mat meðferðis. Það voru hafnar-
verkamenn, sem hleyptu mönnun-
um út en þeir heyrðu þá berja gám-
inn innan þegar komið var í höfn.
Evrópubandalagið:
Greinir á um
mengunarmál
Brussel, 8. m»rs. AP.
Umhverfismálaráðherrar Evrópu-
bandalagsins náðu ekki samkomu-
lagi í dag um aðgerðir til að draga úr
mengun frá bifreiðum en gáfu þó góð
orð um að það myndi takast á næstu
tveimur vikum.
Á fundinum var hart lagt að
Þjóðverjum að bíða með að taka
upp bandarískar mengunarvarnir
vegna þess hve bílaiðnaðurinn er
víða vanbúinn að mæta þeim en
þeir gáfu sig hvergi enda er hvergi
eins mikill áhugi á mengunarvörn-
um og í Vestur-Þýskalandi. Hafa
þeir jafnvel heitið þeim skattafrá-
drætti, sem setja bandarískan
mengunarvarnabúnað í bifreiðirn-
ar og það þótt þeir eigi þá á hættu
að vera stefnt fyrir brot á sam-
keppnislöggjöfinni.
A hinn bóginn var lltil ánægja
með afstöðu Breta, sem vilja bfða
eftir að ný tækni líti dagsins ljós.
1 . Hugbúnaö 2. Tölvun 3. Pjónustu
Hjá okkur slaeröu þrjár
Klofningur um MX
Okkar þekking í þína þágu
GÍSLI J. JOHNSEN
n 1
TÖLVUBUNAÐUR SF - SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF
SMIÐJUVEGI 8 - P.O. BOX 397 - 202 KÓPAVOGI - SlMI 73111
á Bandaríkjaþingi
Washington, 8. marz. AP.
DEMÓKRATAR í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings eru klofnir í af-
stöðu sinni til þess hvort þeir
greiða atkvæði með fjárveitingum
til smíði MX-eldflaugarinnar, nú
skömmu áður en viðræður Banda-
ríkjamanna og Rússa um vígbún-
aðarkapphiaupið hefjast í Genf.
{ öldungadeildinni munu að
minnsta kosti 55 öldungadeild-
armenn af 100 ákveða að lokum
að greiða atkvæði með fram-
leiðslu MX að dómi varaleiðtoga
repúblikana í deildinni, Ted Stev-
Sovétmenn trufla
„Frjálsa Evrópu“
Wuhmgton, 8. mara. AP.
SOVÉTMENN leggja nú gífurlega
áherslu á að trufia sendingar út-
varpsstöðvarinnar „Frjilsrar Evr-
ópu“ til Póllands að því er banda-
rískum þingmönnum hefur verið
skýrt frá.
Sovétmenn fara með mörgum
sinnum meira fé í að trufla send-
ingar stöðvarinnar en það kostar
að reka hana og afla þess efnis,
frétta og annarra upplýsinga, sem
dagskráin samanstendur af. Kom
þetta fram hjá Ben J. Wattenberg,
varaformanni alþjóðlégu útvarps-
nefndarinnar.
Áður en herlögin voru sett í Pól-
landi árið 1981 stunduðu Pólverjar
sjálfir aðeins málamyndatruflanir
á sendingum stöðvarinnar en eftir
það tóku Sovétmenn við og hófu
„gífurlegar truflanir" að sögn
Wattenbergs, þegar hann gerði
þinginu grein fyrir þörf nefndar-
innar fyrir 77 milljóna dollara fjár-
veitingu til að endurnýja tækja-
búnaðinn og auka sendingarstyrk-
inn.
Útvarpsstöðvarnar „Frjáls Evr-
ópa“ og „Frelsið" senda út á 21
tungu til um 50 milljóna manna, sú
fyrrnefnda til Austur-Evrópuríkj-
anna annarra en Sovétríkjanna en
sú síðarnefnda til Sovétríkjanna.
Sovétmenn reyna nú að trufla
sendingar á 19 tungumálum.
ens. Það sem aðallega mun ráða
afstöðu þeirra er að þeir óttast að
þeir geti skaðað samningsaðstöðu
Bandaríkjanna, ef þeir styðja
ekki smíði flaugarinnar.
En forseti fulltrúadeildarinn-
ar, Thomas P. O’Neill, segir að
a.m.k. 200 fulltrúadeildarmenn úr
flokki demókrata ætli að greiða
atkvæði gegn MX.
O’Neill reynir að fá annan
áhrifamikinn demókrata, Les
Aspin frá Wisconsin, formann
hermálanefndarinnar, til þess að
hætta stuðningi sínum við MX.
Samkvæmt góðum heimildum
hefur Aspin sagt OzNeill í einka-
samtali að hann sé reiðubúinn að
greiða atkvæði með MX, þótt sagt
sé í skrifstofu hans að hann hafi
enn ekki tekið ákvörðun.
Ef önnur hvor þingdeild greiðir
atkvæði gegn framleiðslu
MX-flaugarinnar stöðvast fjár-
veitingar til hennar.
Atlaga aö mafíunni
AP/Símamynd
Anthony Salerno, „Feiti Tony“, einn alræmdasti mafíuforinginn í
New York, var handtekinn fyrir nokkru en hefur nú verið látinn
laus gegn tryggingu meðan verið er að kanna mál hans. Sést hann
hér yfirgefa lögreglustöðina með vindil í munni. Bandaríska alrík-
islögreglan hefur verið iðin við það að undanförnu að handtaka
mafíumenn og eru margir tugir eða hundruð þeirra komin á bak við
lás og slá.
Flýðu
í gámi
Réttbyijun
reynist best
Láttu okkur athuga hverjar þarfir þínan enu á sviði hugþúnaðan og
tölvukenfa. Við hjálpum þén að undinþúa janðveginn þannig að
þegan þú kaupin tölvu þá nýtist hún sem allna best.