Morgunblaðið - 09.03.1985, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
plnf'gmn Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakiö.
Atvinnuleysi
og kjaraátök
Víða um heim er atvinnu-
leysi viðvarandi, raunar
þjóðarböl, þar sem allt að tí-
undi hver vinnufær einstakl-
ingur gengur atvinnulaus. Fátt
brýtur heilbrigðan einstakling
fljótar eða ver niður en það, að
vita sig utangarðs í önn
hvunndagsins, „ómaga" í eigin
samfélagi. Atvinnuleysi vitnar
ekki hvað sízt um vannýtt
verðmæti, sem felast í mennt-
un, þekkingu og annari
starfshæfni einstaklinganna.
En velferð einstaklinganna,
heill þeirra og hamingja á að
vera undirstaða og grunntónn
hvers þjóðskipulags.
Okkur íslendingum hafa
verið mislagðar hendur um
margt er varðar atvinnu- og
efnahagsmál. Engu að síður
hefur okkur tekizt — og tekst
vonandi áfram — að fyrir-
byggja umtalsvert atvinnu-
leysi, sem hrjáir flestar vina-
og nágrannaþjóðir. En ýmis
teikn eru á lofti, sem hyggja
verður að, til að hægt sé að
koma fyrirbyggjandi aðgerð-
um við í tíma.
• í fyrsta lagi er líklegt að hér
sé til staðar „dulbúið atvinnu-
leysi", sem m.a. kemur fram í
fleiri störfum, þ.e. vinnandi
einstaklingum, en tíðkast við
hliðstæður erlendis. Þetta
kann að stafa af því að ör
tækniframvinda þar fari hæg-
ar um atvinnulífið hér, en
skipulag, stjórnun og mismun-
andi launakerfi, hvetjandi eða
letjandi, koma e.t.v. einnig við
sögu.
• í annan stað skjóta atvinnu-
leysistímabil örar upp kolli nú
en fyrir nokkrum árum, ekki
sízt á sjávarútvegssvæðum, og
má í því efni minna á umræður
á Alþingi fyrir skemmstu um
atvinnumál á Suðurnesjum og
raunar víðar á landinu.
• í þriðja lagi er talið líklegt
að u.þ.b. tuttugu þúsund ein-
staklingar bætist við á íslenzk-
um vinnumarkaði næstu 15 ár-
um. Á sama tíma blasir við,
vegna veikrar stofnstærðar
helztu nytjafiska og mettaðs
búvörumarkaðar, að hefð-
bundnir atvinnuvegir, sem
nýta afkastaaukandi tækni í æ
ríkara mæli, geta ekki tekið
við nema litlum hluta þessa
uppvaxandi vinnuafls.
Þegar bornar eru saman
þjóðartekjur á mann og al-
menn lífskjör í ýmsum þjóð-
löndum Vestur-Evrópu og
N-Ameríku kemur m.a. í ljós,
að tíð kjaraátök og lök almenn
lífskjör haldast gjarnan í
hendur. öðru máli gegnir þar
sem stöðugleiki ríkir í atvinnu-
og efnahagslífi, verðbólga er
t.d. lítil sem engin, þar eru
þjóðartekjur á hvern vinnandi
einstakling hvað hæstar og al-
menn kjör hvað bezt. Þar sem
atvinnulífið, verðmætasköpun-
in, stöðvast oft, og tapaðir
vinnudagar hrannast upp til
frádráttar frá þjóðartekjum,
verður skiptahluturinn, sem
tekizt er á um, sífellt smærri.
Lífskjör verða einfaldlega ekki
til í vinnudeilum, heldur verð-
mætum, sem vinnan, fjár-
magnið, tæknin og þekkingin
skapa.
Á þessum vettvangi, þ.e. í
tíðum vinnudeilum, rýrnandi
þjóðartekjum og lökum lífs-
kjörum, höfum við, þvi miður,
haslað okkur völl á meðal
hinna skammsýnustu. Við höf-
um lagt meira af orku og hug-
viti í það að slást um rýrnandi
skiptahlut en stækka hann,
með nýsköpun atvinnulífsins,
sem er eina færa leiðin til
raunhæfra og viðvarandi
kjarabóta, sem brenna ekki
jafnhraðan á báli verðbólg-
unnar, eins og hér hefur gerzt
margoft og nær undantekning-
arlaust sl. hálfan annan ára-
tug. Þrátt fyrir „þéttan skóg„
nýrra kjarasamninga á þessu
tímabili, sem kostað hafa mik-
il átök á stundum, stendur
launafólk, og þá máske fyrst
og fremst láglaunafólk, sízt
betur að vígi nú, kjaralega, en
þá er viðreisnarstjórnin lét af
völdum 1971. Það ár tvímenntu
vinstri stjórn og óðaverðbólga
inn í íslenzkt efnahagslíf með
afleiðingum, sem við erum enn
að kljást við.
Tvær starfsstéttir, sjómenn
og framhaldsskólakennarar,
sem báðar gegna lykilhlut-
verkum í þjóðfélaginu, hafa
verið í fréttaljósi kjaraátaka
undanfarið. Önnur starfsstétt-
in gerir út á fiskistofna, sem
borið hafa uppi lífskjör og
framfarir í landinu lengst af.
Hin á þá auðlindina, sem
máske varðar mestu á upplýs-
ingaöld, sem nú knýr á dyr
okkar: menntun, þekking og
hugvit einstaklinganna.
Báðar eru þessar starfsstétt-
ir alls góðs maklegar, en háðar
efnahagslegum staðreyndum
þjóðarbúskaparins, eins og
aðrar. Önnur deilan er leyst.
Hin við dyr sem gagnkvæmur
velvilji getur lokið upp. Hins-
vegar verðum við sem þjóð og
heild að þoka okkur yfir í hóp
þeirra þjóða, sem tryggt hafa
sér háar þjóðartekjur á hvern
vinnandi einstakling og kjör í
samræmi við það, í skjóli
vinnufriðar, efnahagslegs
stöðugleika, blómlegs atvinnu-
lífs og gagnsamrar menntun-
ar.
I&íhíeíM omffl
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Nú verða tekin dæmi af mis-
munandi stíl og stílbrögðum í
framhaldi af því sem birtist í
næstsíðasta þætti.
Ýkjustfll (hyperbole) skýr-
ir sig sjálfur. Dæmi:
„Tröllkonurnar óðu fram
fyrir hestana og ruddu þeim
braut. Þær mokuðu fólkinu
burt með rekunum og tvístr-
uðu öllu í háa loft upp yfir hús
og hallir eins og þegar maður
mokar úr hlössum á haustdegi
og dreifir mykjunni yfir þúfur
og hóla. En með því að gatan
var krókótt, þá rann vagninn
ekki svo hart sem skyldi. Þá
hömuðust tröllkonurnar og
mokuðu húsunum á burt, svo
þar varð akbraut þráðbein, og
er það hin fyrsta gata í París-
arborg og kölluð Rue de Rivoli.
Var illt að vera í húsunum og
mannalát mikið. En með því
að meira er komið undir einum
kappa og miklum fyrirliða en
undir höfuðlausum her, þótt
mannmargur sé, þá tjáði ekki
að horfa í slíkt, og ók Napóleon
út að járnbrautinni, en tvö
þúsund riddarar teymdu
tröllkonurnar aftur heim og
gáfu þeim í staupinu."
(Benedikt Gröndal: Sagan
af Heljarslóðarorustu.)
Dæmi í bundnu máli:
Tristram snerist í sinni sæng,
so sárt hann stakk,
heyra mátti mílur fimm
hans hjartað sprakk.
(Tristramskvæði 18,
ókunnur höfundur.)
Það er dæmi um ýkjustíl úr
daglegu tali, þegar við segj-
umst vera að drepast úr leið-
indum, og allmiklar ýkjur
þótti föður mínum, þegar gam-
all bóndi sagði honum að elstu
ærnar sínar væru síðan löngu
fyrir guðs minni.
☆
Kansellístfll, stofnanamál (e.
officialese). Kansellístíllinn
heitir eftir þeirri stjórnardeild
sem æðst var í Kaupmanna-
höfn á sínum tíma. Hann er
óalþýðlegur, tilgerður, ríkur af
nafnyrðum, oft torskilinn
venjulegu fólki, enda hefur
andstæða hans verið nefnd
mannamál. Dæmi af kansellí-
stíl:
„Virðulegum herrum, lands-
ins lögmönnum, lögréttumönn-
um og öllum dánumönnum hér
við stöddum og áheyrendum,
óskar undirskrifaður náðar og
blessunar af guði fyrir Jesúm
Kristum, hér með yður, elsku-
legir vinir, auglýsandi, að mér
hefur að kónglegrar majestets
forlagi, af Kaupinhafn tilskrif-
að verið að útvega og umganga
þau antíkvítet, dókumenta og
sögubækur, sem hér í landi
væri og til fást kunna, til hans
majestets plaisir í hans kóng-
lega bibliotheca, hvað ég vildi
gjarna með skyldugri undir-
gefni, hvað mögulegt væri,
framkvæma."
(Brynjólfur Sveinsson
biskup: Opið bréf.)
Annað dæmi (nýíslenskt
stofnanamál, höfundur ókunn-
ur):
„Almenna niðurstaðan af
útreikningum Þjóðhagsstofn-
unar á kaupmætti kauptaxta,
að teknu tilliti til efnahags-
ráðstafana ríkisstjórnarinnar
eins og þær liggja nú fyrir,
virðist sú, eins og segir í
skýrslunni, að ráðstafanirnar
valdi því að kaupmáttur taxta
að teknu tilliti til mildandi
ráðstafana verði um 3% minni
á árinu 1983 en orðið hefði að
óbreyttu, en um 4% minni á
síðustu sjö mánuðum ársins að
meðaltali en stefndi í að
óbreyttu."
(Tekið hér úr kennslubók-
inni Málgerði.)
☆
Annála-, dagbókar- eóa sím-
skeytastfll. Fyrsta dæmi:
„Spilað við 10 spilaborð og
afgangs kvenfólk og karlmenn
undir 40. Lotterie við ógna-
stórt borð eitt. Trakterað fyrst
á tei með fínu brauði, svo 1
snaps romm með engelskum
osti og fínu brauði til. Svo litlu
síðar á átta slags syltetöjum.
Tvö smáborð við hvert spila-
borð sett og borðað á þeim.
Kvenfólkið hitt við það stóra
borð. Matur kaldur. Fínt brauð
smurt með margvíslegu góðu
ofan á.“
(Magnús Stephensen:
Ferðarolla.)
Annað dæmi:
„Vetur góður til vordaga,
vorið kalt, sumarið þurrt.
278. þáttur
Fiskur nógur víðast kringum
landið. Víða lestarhlutur. Kom
mikið regn sunnudaginn fyrst-
an í vetri, svo fáir máttu tíðir
sækja. Hlupu þá skriður víða
úr fjöllum. Varð úti kona í
Borgarfirði, önnur í Hrúta-
firði. Skiptapi undir Jökli,
voru á tveir menn.“
(Setbergsannáll.)
Þriðja dæmi:
„Sumir þekja neti, segja
verji regni, ég vantrúa. Aðrir
segli. Gott.“
(Páll Zóhoníasson: Úr
fyrirlestri á Hólum.)
Stflbrot má það kalla, þegar
skyndilega er skipt um stílteg-
und, og verður jafnan til lýta.
Þó geta menn gert af því gam-
an og jafnvel stuggað við les-
endum eða áheyrendum með
þeim hætti. Hér fara á eftir
þrjú heimagerð dæmi um
stílbrot sem þá er hverju sinni
auðkennt með breyttu letri:
Fyrsta dæmi:
„Eyru mín fýsir að hlýða á
mjúka og blæfagra rödd þína,
augu mín girnast að virða
fyrir mér fegurð þína og tign,
og kjaftinn á ipér langar til að
tilbiðja þig í orðum."
Annað dæmi:
„Vér íslendingar strengjum
þess heit á þessum hátíðisdegi,
að klífa skulum vér þrítugan
hamarinn til þess að land vort
verði aldrei fært í fjötra
áþjánar og ófrelsis. Það er
stefna okkar.
Þriðja dæmi:
„Ég er staurblankur. Hvern
eigum við að slá? Ég meina,
þessi andskotans vibbi er óþol-
andi. En nú veit ég það! Við
hjólum í Sigga salt. Jafnan er
hann féríkur. Látum hann
blæða.
Ljúkum svo þættinum með
skopstælingu (paródíu). Stein-
grímur Thorsteinsson kvað:
Stormur lægir stríður,
stillist æstur sær.
Yfir landið líður
léttur hægur blær.
Þórbergur Þórðarson kvað
(og má það þá líka vera dæmi
um andstæður):
Stomur æðir stríður
steypist Akrafjall.
Yfir landið líður
lítill piparkall.
bát rak upp í fjöru
Morgunbla#ið/RAX
STORSTRAUMSFLOÐ í höfninni í Þórlákshöfn í birtingu í gærmorgun, en þá
var áttin orðin það vestanstæð að svo til lygnt var í höfninni, þrátt fyrir
hvassviðrið. Flóðið í gærmorgun var mesta flóð þessa árs.
Brjánslækur:
70 tonna
SKEMMDIR vegna veðursins sem
gekk yfir landið í gær og í nótt voru
hverfandi, en saman fór stærsti
straumur ársins og allmikið hvass-
viðri, fyrst af suðaustan, en síðan af
sunnan og suðvestan. Flóðhæð I
Reykjavík miðað við meðal stór-
straumsfjöru var 4,57 metrar.
Báturinn Gissur Sl 55, sem er um
70 tonn, dró með sér legufærin og
rak upp í fjöru á Brjánslæk. Ekki
var kunnugt um skemmdir í gær.
Þá komst vatn í frystiklefa frysti-
hússins á Flateyri og vatn flæddi
um öll gólf í vinnslusal, auk þess
sem lítilsháttar fiskimjöl skemmd-
ist þar í geymslum. Ekki er þó talið
að tjónið hafi orðið mikið, en sam-
kvæmt upplýsingum fréttaritara
Mbl., hefði getað farið verr, ef veð-
urhæð hefði verið meiri, en hún var
lítil. Neðrihluta eyrarinnar flæddi
allan.
í höfnum sunnan-. og suðvestanl-
ands urðu ekki skemmdir sam-
kvæmt upplýsingum Mbl., þrátt
fyrir mikla flóðhæð og talsvert
hva8sviðri. Vakt var hins vegar víð-
ast hvar í bátum og voru sumir
þeirra fluttir í tryggari hafnir til að
gæta fyllsta öryggis, þvf mönnum
er í fersku minni óveðrið samfara
mikilli flóðhæð, sem gekk yfir land-
ið snemma í janúar á síðasta ári og
olli miklum skemmdum á bátum og
mannvirkjum.
„Mér virðist sem þetta hafi farið
furðuvel, og hefði auðveldlega geta
farið mikið verr,“ sagði Markús Á.
Einarsson, veðurfræðingur á Veð-
urstofunni f samtali við Morgun-
blaðið. „Hefði áttin verið eilftið suð-
lægari og hefði ekki veðrið heldur
lægt meðan mesta flóðið var, þó það
herti aftur skömmu sfðar, hefði
auðveldlega getað farið mun verr,“
sagði Markús.
Markús sagði að aftur á morgun
væri stórstraumur, en hættan væri
minni bæði vegna hærri loftþrýst-
ings og breyttrar vindáttar.
Markús sagði að það spáði sam-
skonar veðri f dag og var í gær eða
suðvestan átt með slyddu- og
snjóéljum sunnanlands, en þurrt og
bjart verður narðaustan lands. Þeg-
ar á dagin lýður er búsit við að
hann snúi sér meira til vesturs og
það dragi úr vindi. Búist er við suð-
vestlægri átt og éljaveðri á sunnu-
dag, en á mánudag er jafnvel búist
við nýrri lægð.