Morgunblaðið - 09.03.1985, Side 29

Morgunblaðið - 09.03.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985 29 Ráðabreytni kennara flýtir ekki fyrir lausn deilunnar Rætt við Ragnhildi Helgadóttur, menntamálaráðherra, um kjaradeilu kennara og málefni framhaldsskólans RAGNHILDUR Helgadóttir, menntamálaráðherra, telur að framhaldsskólakennarar hafí tekið ranga ákvörðun, er þeir gengu út úr skólunum í fyrri viku og virtu að vettugi lögmæta framlengingu upp- sagnarfrests síns. Rúm vika er lið- in frá því að kennararnir hættu störfum og starfsemi framhalds- skólanna hefur að verulegu leyti lamast. „Ég tel þessa ráðabreytni kennara afar andstæða hags- munum þeirra sjálfra, nemenda og skólanna. Hún hlýtur að draga úr því trausti, sem kenn- arastéttin þarf á að halda i störfum sínum, og hún er ekki heldur til þess fallin að flýta á neinn hátt fyrir niðurstöðu í samningamálum, af þeirri ein- földu ástæðu, að í lögum um þessa kjarasamninga eru sett þröng tímatakmörk. Samninga- mál voru i fullum gangi þegar kennarnir gengu út,“ segir Ragnhildur Helgadóttir i sam- tali við blaðamann Morgun- blaðsins, sem einkum snýst um framvindu hinnar alvarlegu kjaradeilu framhaldsskólakenn- ara, en þar er einnig vikið að öðrum málefnum framhalds- skólans, menntun kennara og hæfni, lögverndun starfsheitis þeirra, einkaskólum, samstarfi við atvinnulífið og hvort þörf sé á heildariöggjöf um þetta skóla- stig. „Það er verið að vinna af kappi að öllum þeim þáttum, sem unnt er að afgreiða vegna sérkjara- samninga," segir Ragnhildur Helgadóttir þegar hún er spurð um stöðuna í samningamálun- um. „Af skiljanlegum ástæðum hefur verið erfitt að ræða hina endanlegu launaupphæð fram að þessu. Hið íslenska kennarafélag er eitt af 25 félögum innan Bandalags háskólamanna (BHM) og það gefur augaieið, að það verður að vera samstaða innan þess stóra félagsskapar um það hvernig félögin raðast innbyrðis. Nú er verið að greiða fyrir því að sérstaða kennara sé metin til launa. Það er verið að undirbúa, að ákvörðun um slíkt geti legið fyrir strax og aðrar kröfur liggja skýrt fyrir.“ Ekki hægt að nefna launa- tölur í síðustu viku „Sannleikurinn er sá,“ segir Ragnhildur, „að kröfur BHM-fé- laganna lágu fyrst fyrir á mið- vikudag í fyrri viku og þá aðeins í mjög stórum dráttum og ekki nægilega skýrum. Á fimmtudag var svo haldinn fundurinn, þar sem kennarar ákváðu að ganga út úr framhaldsskólunum. Mér skilst, að á þessum fundi hafi aðalrökin fyrir útgöngunni verið talin þau, að fulltrúar ríkisins hafi ekki verið búnir að nefna launatölu kennara. En þeir, sem fylgst hafa með atburðarásinni, sjá, að það var vitanlega útilok- að að hægt væri að gera slíkt, tæplega sólarhring eftir að kjarakrafa BHM lá fyrir. Aðildarfélög BHM höfðu ekki samið sín á milli um röðun í launastiga, og þennan sama dag, þ.e. fimmtudag, var svo endur- matsskýrsla menntamálaráðu- neytisins lögð fram, en því hafði áður verið lýst yfir af hálfu ríkisins, að taka ætti mið af henni þegar sérstaða kennara væri metin. Þessi atriði valda því, að það var ekki tæknilega mögulegt að nefna neina tölu af ábyrgð á þessu stigi, en hins veg- ar lá fyrir mjög eindregin vilja- yfirlýsing um að reynt yrði að greiða sérstaklega fyrir málum kennara og hér í menntamála- ráðuneytinu hefur verið lögð fram mikil vinna í þessu skyni. Yfirlýsing samninganefndar ríkisins var í tveimur liðum, annars vegar að tekið yrði tillit til launamunar sem myndast hefði og hins vegar að tekið yrði mið af niðurstöðu endurmats- skýrslunnar. Sama daginn og þetta lá fyrir ásamt skýrslunni ákváðu kennarar að ganga út og hafna þar með þessu boði.“ — Hvað er að gerast í samn- ingamálunum á þessari stundu? „Ég get ekki sagt hvað gerist í samninganefndinni, því hún starfar á vegum fjármálaráðu- neytisins, og við verðum að virða verkaskiptingu milli ráðuneyta," Um hitt, hvort ég sé bjartsýa á lausn deilunnar," segir Ragn- hildur, „þá er ég það að vísu, en held samt að það sé afar ótrúlegt að endanleg niðurstaða fáist í kjarasamningunum á næstu dögum. Það er eftir að semja við mörg félög, en hins vegar hljóta að liggja mjög fljótlega fyrir lík- ur, sem benda kennurum á hvers sé að vænta." — Fá kennarar á endanum greitt fyrir fjarvistir sínar und- anfarna daga? „Nei. Að sjálfsögðu ekki.“ — Nú hafa kennarar, sem eru hættir störfum, þegið laun sín fyrir marsmánuð. Er þeim það heimilt? Viötal: GUÐMUNDUR MAGNÚSSON lagi að útvega þá kennslu, sem vantar. Þar á meðal er heimilt að ráða stundakennara. Ég geng út frá því, að það sé unnt að útvega kennara í mörgum náms- greinum, ef á þarf að halda. Sem betur fer hefur furðu lítil trufl- un orðið í sumum skólum. Auðvitað er það oft svo, að stundakennarar eru ráðnir að skólum án auglýsinga. Hverjum og einum skóla er heimilt að ráða í eins konar forfalla- kennslu, þegar svona stendur á,“ segir Ragnhildur. Ríkiö leysir ekki kjara- málin einhliða „Annars hefur mér virst,“ seg- ir Ragnhildur Helgadóttir, „að fjölmiðlar hafi ekki gert fólki nægilega grein fyrir að kjara- Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra. segir Ragnhildur. „Þessar við- ræður eru í höndum samninga- nefndar ríkisins og svo vitanlega samninganefndar kennaranna sjálfra. Hið eina sem ég get sagt, er, að viðræður og vinna í samn- ingum eru í fullum gangi og svo væri tæpast ef ekki væri að vænta jákvæðrar niðurstöðu fljótlega." Endanleg niöurstaöa fæst ekki á næstu dögum — Ertu bjartsýn á, að þessi deila leysist á allra næstu dög- um, þannig að kennarar geti jafnvel snúið til vinnu í næstu viku? „Ég tel að kennarar geti snúið til vinnu strax, og þeir hefðu átt að gera það þegar á föstudags- morgni,“ segir menntamálaráð- herra. „Ég tel engin rök fyrir þessari ráðstöfun kennara. Það var þegar búið að framlengja uppsagnarfrestinn lögum sam- kvæmt og fjarvist þeirra er auð- vitað gersamlega óheimil, hvern- ig sem á mál þetta er litið. „Samkvæmt kjarasamningum dreifast laun kennara, sem eru í föstum stöðum, yfír árið. Kenn- ari, sem hættir störfum 1. mars, á þá inni upphæð, sem svarar einum mánaðarlaunum. Það er þess vegna, sem þeir fengu laun sín greidd núna. Stundakennar- ar fá hins vegar laun sín eftirá.“ — Hefur verið kannað hvort einhverjir geta tekið að sér þá kennslu, sem nú liggur niðri í framhaldsskólunum, ef ekki tak- ast samningar fljótlega? „Hér í ráðuneytinu höfum við enn ekki fengið alveg nákvæmar upplýsingar um það I hvaða ein- stökum greinum kennara vant- ar,“ segir Ragnhildur. „Ýmsir hafa mætt til vinnu sinnar og virt framlengingarfrestinn. Þess vegna hafa skólarnir þurft nokkra daga til að gera sér grein fyrir stöðunni, sem er mjög mis- munandi eftir skólum. Skóla- meisturum og rektorum hefur verið falið að halda skólunum opnum og reyna með samkomu- samningar ríkistarfsmanna fara eftir sérstökum lögum og ganga tiltekinn gang, m.a. hjá þeim sem ekki hafa verkfallsrétt. Þessir kjarasamningar og öll vinnan að þeim þarf tiltekinn tíma, en í lögunum eru settir ákveðnir tímafrestir. í umræð- um um þessi mál hafa menn stundum einfaldað hlutina afar mikið. Menn spyrja hvers vegna sé ekki búið að leysa þessi samn- ingamál fyrir löngu. En það er ekki einungis hlutverk ríkisins að leysa þessi mál, heldur er þarna um að ræða samninga, þar sem báðir aðilar þurfa að leggja vinnu í kröfugerð og viðræður. Ef sú staða kemur upp, að samningar takist ekki,“ heldur Ragnhildur áfram, „og mál fara fyrir kjaradóm, þá er þar líka um að ræða tiltekna tímafresti. Kjaradómur sá, sem féll í miðj- um febrúar, var með allt öðrum hætti en venjan er, því hann opnaði allt málið miklu meira fyrir hugmyndum sjálfra hags- munasamtakanna, sem í hlut áttu. Launakerfið var allt brotið upp og ætlast til að mönnum væri raðað í launastiga á nýjan leik. 1 þessu sambandi er á það að líta, að kjaradómur var að þessu sinni felldur viku fyrr en menn höfðu búist við mánuðum saman. Ætla mátti, að það væri kennurum mjög hagstætt að dómurinn féll svo snemma og þeim væri ljóst að með því legði ríkisvaldið þeim meiri mögu- leika upp í hendurnar. Engu að síður lá það líka fyrir að þessi mikla opnun á öllu málinu var mun tímafrekari til úrlausnar en ella hefði verið. Þegar af þessari ástæðu var ljóst að forsendan fyrir uppsagnardeginum 1. mars var löngu brostin." Versti tími valinn „Raunar var hún líka brostin siðferðilega strax í upphafi," bætir Ragnhildur við, „því það er með ólíkindum að tími til slíks sé valinn þegar það kemur nem- endum verst. Og það er líka ljóst, að þeir sem réðu sig til kennslu- starfa í haust vissu um kjörin og vissu líka að kjarasamningar yrðu lausir 1. mars og málið yrði skoðað að nýju með það fyrir augum að bæta kjör þeirra, sem dregist hafa aftur úr, þar á með- al kennara. Með allt þetta f huga lét menntamálaráðuneytið það strax koma fram opinberlega i desember og ítrekaði síðan oft, að lagaákvæði til að framlengja uppsagnarfrest kennara yrði notað ef málin hefðu ekki verið leyst áður eða kennarar hefðu dregið uppsagnir sínar til baka. Það leikur enginn vafi á því,“ segir Ragnhildur, „að framleng- ing uppsagnarfrestsins er lög- mæt. Þessu lagaákvæði hefur áður verið beitt, en aldrei fyrr með jafnlöngum fyrirvara og nú. Að auki var hverjum og einum kennara sent bréf um framleng- inguna.“ Verkfall eða uppsögn? — Formaður kennarafélags- ins segir í sjónvarpsviðtali, að hann hafi hvatt kennara, sem hættu 1. mars, að ráða sig ekki i önnur störf meðan verið er að reyna að ná samningum. „Já, núna eru menn hættir að tala um að þeir séu að fara f aðra vinnu. Nú er ekki lengur málið að komast sem fyrst úr kennslu- starfinu, heldur er talað um hlé eða „stopp“ í einhvern tfma. Þá eru menn farnir að tala um þetta eins og eitthvert verkfall í tiltek- inn tíma. Röksemdin fyrir því, að það hafi ekki mátt fram- lengja uppsagnarfrestinn, er heldur betur fallin. Því var nefnilega haldið fram, að fram- lengingin hindraði kennarana f að ráða sig í önnur störf. Fyrir þeirri röksemd virðist ekki grundvöllur lengur.“ — Nú hefur verið lögð fram skýrsla nefndar, sem vann að endurmati á störfum kennara. „Þetta verk var unnið í mjög góðu samstarfi við fulltrúa sem Bandalag kennarafélaga valdi f þessa nefnd. Hér í ráðuneytinu höfum við haft meiri trú á þvi að leysa vandamálin f samstarfi við aðila en í strfði við þá. Þess vegna var þetta verk unnið. Við komumst lfka að raun um að þetta var verk sem var mjög nauðsynlegt að vinna og sumt af þvf þess eðlis að í það þarf að eyða nokkuð löngum tíma. Þór- SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.