Morgunblaðið - 09.03.1985, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
33
þeir geta grafið undan efnahagn-
um. Auk þeirra 8.000 óbreyttra
borgara sem þessir málaliðar hafa
drepið á þremur árum, var efna-
hagslegt tjón af þeirra völdum,
t.d. á árinu 1983, 128 milljónir
dollara, meira en 5 milljarðar ísl.
króna i þessu fátæka landi.
Skemmdirnar spanna allt frá
skemmdum af tundurduflunum,
sem CIA hjálpaði þeim að leggja í
hafnir landsins yfir í dagheimili
og heilsugæslustöðvar. Þetta hef-
ur neytt stjórnina í Managua til
að eyða meira en fjórðungi fjár-
laga í uppbyggingu hervarna.
Fyrirmyndir Sveins
í upphafi greinar Sveins er sagt
að í M-Ameríku hafi átt sér stað á
síðustu árum merkileg þróun í átt
til aukins stöðugleika og lýðræð-
islegri stjórnarhátta. 4 lönd eru
nefnd sem dæmi um þetta. Nefnt
er lýðræðið í bandarísku leppríkj-
unum Honduras og Costa Rica.
Væri nú fróðlegt ef Sveinn mundi
útlista fyrir okkur hinum hvernig
þetta lýðræði sé, og hvort það sé
fyrirmynd þess lýðræðis sem hann
vill fá í Nicaragua. Og dæmin
halda áfram í svörtu letri: „Með
breyttri og hófsamari stefnu hefur
tekist að einangra vinstrisinnaða
öfgamenn í Guatemala." Sérhver
er nú hófsemin. Hinn 24. febrúar
segir í Mogganum frá daglegu lífi
í Guatemala: Sendiherra vestræns
ríkis segir að búið sé að breyta um
baráttuaðferð, fórnardýrin valin
af meiri kostgæfni en áður og
vinnubrögðin „snyrtilegri". Og
áfram segir Mogginn frá al-
mannarómnum í Guatemala: Ef
þú talar of hátt á veitingastað
áttu á hættu að verða drepinn. Ef
þú talar of lágt verðurðu örugg-
lega drepinn. Og svo er síðasta
dæmi SS um stöðugleikann og lýð-
ræðið í E1 Salvador: í E1 Salvador
stefnir ekki i bili i þá allsherjar-
styrjöld sem útlit var fyrir.
í íhaldsblaðinu Economist segir
19. janúar að í E1 Salvador hafi
2.500 verið drepnir utan bardaga
árið 1984, myrtir af öryggissveit-
um stjórnarinnar og dauðasveit-
um í tengslum við þær, 200 á mán-
uði. Já, hvílíkur stöðugleiki, hví-
líkt lýðræði. í „Jane‘s Defence
Weekly", sem íhaldsmenn kalla
virt herfræðitímarit, stendur 26.
janúar sl. að þrátt fyrir 724 millj-
óna dollara bandaríska aðstoð
1984 (30 milljarða króna, 20% af
þjóðarframleiðslu E1 Salvador) og
þrátt fyrir að í her E1 Salvador
hafi fjölgað úr 6.900, 1980 í 43.000
núna, þá sé enn allt frumkvæði í
höndum skæruliðanna. I enda
sömu greinar segir að flugherinn,
sem sé mikilvægasti þátturinn í
hernaðarstuðningi Bandaríkj-
anna, hafi 1983 farið í 338
sprengjuleiðangra, einn á dag.
Ekki sýnist mér þetta nú benda til
að það sé að draga úr styrjöldinni
þarna.
í baráttunni milli
góðs og ills
Með þessari grein og með ein-
hliða fréttaflutningi í svipuðum
dúr tekur Morgunblaðið, meðvitað
eða ómeðvitað þátt í þessu stríði,
gegn lýðræði, gegn frelsi, gegn
jafnrétti. Og ég spyr í saklausri
einfeldni minni, er enginn lengur
meðal íhaldsmanna sem aðhyllist
frelsi og lýðræði?
Engin manneskja getur vikið
sér undan að taka afstöðu í þvi
sem þarna á sér stað. Átökin
standa um hvort fólkið i Nicar-
agua eigi að fá að lifa sinu eigin
lifi.
Afstaða fólks hér á landi og um
allan heim hefur úrslitaþýðingu i
því hvort Bandaríkin auka hern-
aðaríhlutun sina i Nicaragua eða
draga úr henni aftur.
íslenskum stjórnvöldum ber
skylda til að styðja fólkið í Nicar-
agua, pólitiskt og fjárhagslega, í
baráttu sinni fyrir frel&i, lýðræði
og jafnrétti, ber skylda til að hlúa
að vöggu lýðræðis Rómönsku Am-
eríku.
4. febrúar 1985.
Ragnar Stefánssoa er jardskjálfta-
fræðingur og starfar m.a. í El
Salrador-nefadinni.
Athugasemd
blaðamanns
Ragnar Stefánsson, jarðskjálfta-
fræðingur, hefur ýmislegt að athuga
við grein, sem undirritaður skrifaði
um þróun mála ( Nicaragua, og hef-
ur um það stór orð. Það er mér alveg
að meinalausu en vegna þess, að
skoðanir okkar á framvindunni í
landinu eru dálítið ólíkar, þykir mér
rétt að svara honum í nokkru. Ragn-
ar bendir réttilega á, að meginefnið
hafi verið sótt í Economist, það var
handvömm að láta þess ekki getið
þétt að stuðst hafi verið Observer
Iflta.
Byltingin i Nicaragua er um
margt hliðstæð byltingunni á
Kúbu. í báðum löndum var spilltri
einræðisstjórn steypt af stóli og
miklar vonir bundnar við, að lýð-
ræðislegir stjórnarhættir yrðu
teknir upp. Öllum er kunnugt um
hver þróunin varð á Kúbu. Þar er
alræði eins flokks, kommúnista-
flokksins, ekkert lýðræði og frjáls
samtök fólks bönnuð. Gott dæmi
um það er, að i fyrra voru fimm
verkamenn dæmdir til dauða fyrir
að hafa gengist fyrir stofnun
óháðra verkalýðsfélaga. Var þeim
dómi raunar siðar breytt i langa
fangavist vegna utanaðkomandi
þrýstings. Efnahagslega væru Kú-
bumenn gjaldþrota ef ekki kæmu
til stórkostlegar meðgjafir frá
Sovétríkjunum.
Það er því ekki að undra þótt
menn hafi nokkrar áhyggjur af
framvindu mála i Nicaragua og
ekki sist fyrir þá sök, að landinu
ráða marxistar, sem sækja fyrir-
mynd sina til Kúbu og annarra
kommúnistarikja. Um það er held-
ur ekki eitt einasta dæmi, að
kommúnistar hafi beitt sér fyrir
lýðræði þar sem þeir eru komnir
til valda, hvað þá afsalað sér völd-
unum. Ragnar St. segir, að ástseð-
an fyrir „óhróðursherferðinni”,
sem hann kallar svo, sé sú, að
Bandaríkin óttist það aðdráttar-
afl, sem skoðana- og ritfrelsið í
landinu hafi fyrir fólk í öðrum
ríkjum á þessum slóðum. Vitnar
hann líka í orð Daniels Ortega um
að fjölflokkalýðræði eigi að þróast
í landinu, sem birtust í því víð-
lesna stjórnarandstöðublaði La
Prensa.
Það er rétt hjá Ragnari, að La
Prensa er víðlesið, a.m.k. það sem
í því stendur, því að það er nefni-
lega ritskoðað daglega af embætt-
ismönnum sandinista. Algengt er,
að heilu eða hálfu síðurnar séu
auðar af þessum sökum og oft hef-
ur blaðið ekki komist út vegna
þess, að ritskoðararnir hafa ekki
skilað efninu í tíma. Fyrir
skömmu var sagt frá því í fréttum,
að einn af ritstjórum blaðsins
væri sestur að í Costa Rica og ætl-
aði ekki að snúa heim fyrr en rit-
skoðuninni hefði verið aflétt. Þeg-
ar Ragnar Stefánsson og skoðana-
bræður hans tala um lýðræði og
frelsi leggja þeir dálítið annan
skilning i það en venjulegast er.
Ragnar getur kallað ritskoðunina
ritfrelsi en ólíklegt þykir mér, að
hún hafi mikið aðdráttarafl fyrir
aðra.
Ragnar gerir efnahagsmálin að
umræðuefni og nefnir nokkur
dæmi um aukna framleiðslu.
Flestar fréttir frá Nicaragua segja
hins vegar frá efnahagslegu öng-
þveiti, mikilli verðbólgu og vöru-
skorti. Fyrir skömmu sagði
Ortega, að efnahagsástandið væri
„djöfullegt" og greindi frá því, að
gengi gjaldmiðilsins hefði verið
fellt um 78%. Jafnframt var skýrt
frá herferð á hendur smákaup-
mönnum, sem sakaðir voru um
spákaupmennsku. Ástæðurnar eru
að sjálfsögðu margvíslegar en þó
aðallega þau gífurlegu útgjöld,
sem fara til hersins, 40—50% af
þjóðarútgjöldum. Réttlætinguna
vantar ekki, yfirvofandi innrás
Bandaríkjamanna á nokkurra
mánaða fresti, en sannleikurinn er
sá að strax með byltingunni komu
sandinistar sér upp öflugasta her í
Mið-Ameríku og hófu gifurleg
vopnakaup frá kommúnistaríkj-
unum.
Ragnar segist hafa spurst víða
fyrir og ekki fengið neinar upplýs-
ingar um annað en eðlilega fram-
kvæmd kosninganna í Nicaragua.
Af öðru fóru þó fréttir á sínum
tíma og varð það m.a. til þess, að
ýmsir flokkar hættu við að taka
þátt I þeim. Af því birtust líka
myndir í fjölmiðlum þegar sandin-
istar gerðu aðsúg að fulltrúum á
þingi Ihaldsflokksins og ef ég man
rétt einnig í fréttatíma íslenska
sjónvarpsins. Um þetta væri hægt
að hafa langt mál, sem ekki gefst
tækifæri til hér, og um fjölda póli-
tískra fanga í landinu og fram-
komu stjórnvalda við miskító-
indíána, sem skipulega hafa verið
fluttir burt úr heimkynnum sínum
vegna andstöðu sinnar við sandin-
ista.
Ragnar spyr að lokum í for-
undran hvort enginn íhaldsmaður
fyrirfinnist lengur sem aðhyllist
frelsi og lýðræði. í augum Ragn-
ars og sálufélaga hans eru allir
íhaldsmenn, sem ekki játast
kommúnismanum skilyrðislaust,
og ætla ég að vona, að sem fæstir
aðhyllist frelsi og lýðræði í skiln-
ingi kommúnista. Af þessu tilefni
og til frekari skilnings á frelsis-
Myntsafnarafélag íslands heldur
fund í dag, 9. mars, í Templarahöll-
inni. Þar mun Pétur Thorsteinsson
sendiherra flytja eríndi um afa sinn
Pétur J. Thorsteinsson á Bfldudal.
Hann lét slá peninga, svonefnda
Bfldudalshlunka og verða þeir til
sýnis á fundinum.
í síðasta tölublaði Myntar, sem
er blað Myntsafnarafélags ís-
lands, getur Ragnar Borg þess að
árið 1979 hafi félagið keypt 390
peninga sem ólympíunefndin lét
slá 1972 og 13 peninga ólymp-
íunefndar frá 1976 og voru þeir
hugmyndum Ragnars get ég ekki
stillt mig um að vitna í grein, sem
Ragnar skrifaði í Þjóðviljann
snemma í febrúar um afstöðu sina
til hörmunganna í Afganistan.
„í Afganistan er myndin ekki
svona skýr. Uppreisnin i Afganist-
an gegn Kabúlstjórninni var upp-
reisn lénsks klerkveldis gegn
framförum, gegn þvi að konur
lærðu að lesa svo eitt lýsandi
dæmi sé nefnt“
„Lestrarkennsla" Sovétmanna
og leppa þeirra i Kabúl hefur nú
að margra mati kostað allt að
milljón mannslif, tugþúsundir búa
við ævilöng örkuml og 4—5 millj-
ónir manna hafa flúið land sitt.
Nú mætti ætla, að þessi ósköp
hrærðu Ragnar til meðaumkunar
með hlutskipti afgönsku þjóðar-
innar en þau hrökkva ekki til. Sið-
ar i sömu grein segir hann:
„Ætti ég krafta aflögu frá því
alþjóðlega stuðningsstarfi, sem ég
tek þátt i nú og tel mikilvægast,
mundi ég fremur beina þeim til
stuðnings uppbyggingunni i Viet-
nam heldur en til Afganistan."
Þessar tilvitnanir eru nauðsyn-
legar til að skilja hvað Ragnar á
við með frelsi og lýðræði. Hans
hugsjón er „frelsið og lýðræðið* á
Kúbu og i Vietnam og hann bindur
greinilega vonir við, að sama verði
upp á teningnum i Nicaragua.
Sveinn Sigurdeson
bræddir. Þessir peningar voru úr
sterlingsilfri og vógu samtals 11
kiló.
Ragnar Borg var inntur eftir þvi
hvers vegna peningarnir voru
bræddir. Hann sagði að það hafi
verið gert í þeim tilgangi að slá
minnispening Myntsafnarafélags-
ins í tilefni af 10 ára afmæli fé-
lagsins 1979. Slegnir voru 150 pen-
ingar hjá Isspori i Kópavogi eftir
teikningu Sveins ólafssonar
myndskera. Að sögn Ragnars eru
enn til nokkrir peningar hjá
Myntsafnarafélaginu.
Við erum í Grófinni
W
Tryggvagötu 22
Fundur Myntsafnarafélags íslands í dag:
Erindi um Pétur J. Thorsteins-
son og Bfldudalshlunkana
RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA VEITA YLINN.
OFNASMÐJA NORÐURLANDS
FUNAHÖFÐA 17 - v/ÁRTÚNSHÖFÐA
SÍMI82477 - 82980 -110 REYKJAVÍI^A