Morgunblaðið - 09.03.1985, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
39
Minning:
Sveinn Hjálmars-
son, Svarfhóli
Fæddur 29. september 1901
Diinn 28. janúar 1985
Það var orðið kvöldsett og
dimmt i dalnum þegar við Gurrý
frænka gengum veginn áleiðis að
Svarfhóli. Mjólkurbillinn hafði
sett okkur af niður við brúna á
Laxá og ég vissi ekki hvað var
langt að Svarfhóli. Ég man að það
læddist að mér geigur og kvíði við
ókunna leið, við myrkrið og um-
hverfið. Þá allt í einu segir Gurrý
frænka: „Mér heyrist ég heyra í
dráttarvélinni hans pabba.“ Það
var orð að sönnu. Eftir smástund
sáum við ljósið og brátt var
Sveinn kominn og hlýlegar kveðj-
ur og traust handtak ráku allan
kvíða og geig á brott eins og sól-
skin. Þetta fyrsta atvik þegar ég
sá Svein lýsir manninum öllum.
Alltaf var hann boðinn og búinn
að rétta öðrum hjálparhönd. Allt-
af hugsaði hann meira um aðra en
sjálfan sig. Hugsunarháttur hans
er löngum kenndur við aldamóta-
kynslóð — það fólk sem nú sam-
einast moldinni — fólk sem „inn-
heimti ei daglaun að kveldi“. Fólk
sem sýndi ást sína í verki til
landsins. Ekki í skrumi froðu-
snakka stjórnmálanna — heldur
breytti mýrum í tún, ósléttum
þúfum 1 sléttar grundir, klæddi
mela og börð og unni öllu lifandi,
dýrum, blómum, grasi og börnum
— fólk lífsins.
Sveinn var bóndi að starfi og
einstaklega natinn og velvirkur
bóndi. Hann var mjög framfara-
sinnaður maður og keypti m.a.
fyrstu dráttarvélina 1 Svínadal því
honum skildist mjög snemma að
það þurfti tækni til þess að vinna
stórvirki.
Foreldrar hans bjuggu á
Svarfhóli frá því að hann var ung-
ur drengur og hann bjó þar áfram
eftir lát þeirra með Guðjóni bróð-
ur sfnum. Hann hlífði sér aldrei
við verk en var mjög verkséður
maður — eiginleiki sem öll börnin
hafa erft. Hann vann hörðum
höndum myrkranna á milli meðar.
hann hafði nokkra heilsu til.
Sveinn var skarpgreindur. öll
mál reifaði hann af víðsýni án
ofstopa en hélt þó alltaf fast við
skoðanir sínar. Hann var sú mesta
andstæða fjölmiðlamötunar sem
ég þekki. Skoðanir hans voru
ævinlega sjálfstæðar byggðar á
mikilli íhygli. Hann lét sér annt
um allt íslenskt — land og líf og
las mikið um þau málefni.
Það háði honum líklega a.m.k.
framan af ævi hans að hann var
fæddur með klofinn góm og
skemmda vör sem olli því að hann
gat ekki verið skýrmæltur. En
skýrar rökvísar hugsanir hans
hefðu svo sannarlega átt rétt til
þess að klæðast öðrum búningi.
En eins og Sveinn sonur minn
sagði um nafna sinn: „Þeir sem
vinna bug á erfiðleikum sínum
verða sterkari einstaklingar á eft-
ir.“
Tjáningarerfiðleikar málsins og
það sem núna heitir víst útlitslýti
komu þó ekki í veg fyrir að öll
börn löðuðust að honum. Jafnvel
þau börn sem ekki eru allra skriðu
fyrst í fangið á Sveini af öllum á
heimilinu. Hann var sá mesti faðir
sem ég nokkru sinni hef þekkt.
Hann elskaði börn og dýr. Það
gleymist aldrei að hafa komið f
fjósið á Svarfhóli, hreint og
snyrtilegt og sjá Svein strjúka
hvítu köttunum, sem eru sérstakt
kyn sem hann hafði mikið dálæti
á.
Sveinn er einn örfárra manna
sem ég hef heyrt alla tala um með
virðingu og hlýju. Hann á það allt
skilið og miklu meira til. Hann var
sönn fyrirmynd þess fólks sem lif-
ir ekki sjálfu sér heldur öðrum og
allt líferni þess einkennist af
hógværð og skynsemi — þetta fólk
sem er salt jarðar.
Hamingja lífs hans fólks í eig-
inkonunni og börnunum en hann
kvæntist Línu Arngrímsdóttur og
þau eiga átta börn, þar af þrenna
tvíbura. Öll börnin eru á lífi nema
annar af yngstu tvíburunum —
lítil telpa sem dó skömmu eftir
fæðingu. Börnin, auðæfin þeirra,
eru lík foreldrunum að mannkost-
um, samheldin fjölskylda sem
hafa launað foreldrunum gott
uppeldi.
Það segir sig sjálft að brjóta
jörð til ræktunar, ala upp stóran
barnahóp er ekki auðvelt verk. Á
því heimili var aldrei talað um
erfiði. Hjónin voru svo samhent og
samstillt um allt að sú togstreita
sem einkennir líf margra þeirra
sem hafa meiri tíma — og meiri
peninga — fyrirfannst ekki.
Sveinn var boginn af erfiði og
líkamlega útþrælaður maður en
andinn var sífrjór og vökull og
hefði ég ýjað að þvi að hann hefði
slitið sér út um of, hefði hann lík-
lega horft spurull á mig.
Hann fegraði landið skildi við
rennislétt tún, velbyggt hús og
miklar jarðabætur, þegar hann
varð að hverfa frá Svarfhóli.
Hann dvaldi oft hjá Guðfinnu
Soffíu dóttur sinni á Katanesi eft-
ir að hann brá búi og fluttist til
Reykjavíkur. Tengsl hans við
sveitina rofnuðu aldrei.
Það var mikil miskunnsemi að
hann þurfti ekki að liggja langa
sjúkralegu heldur kom hvíldin
snöggt og fyrirvaralítið. 1 dag þeg-
ar moldin geymir líkama bóndans
og erfiðismannsins fylgja honum
miklar þakkir fyrir þá fyrirmynd
sem hann skildi eftir. Minningin
um skarpgreindan mann sem lik-
lega fékk ekki að njóta gáfna
sinna vegna líkamlegrar hömlun-
ar, mannkostmannsins sem var
öllum heill, bóndans sem var prýði
stéttar sinnar.
Bóndi er bústólpi,
bú er landstólpi,
því skal hann viröur vel.
Það ætti að hafa þessi orð Jón-
asar oftar i huga.
Moldin verður Sveini Hjálmars-
syni frá Svarfhóli létt sem lauf því
óbugaður andi hans fylgir okkur.
Ef eitthvað réttlæti er til held ég
að það hafi verið tekið á móti hon-
um með ljósi á því landi sem sum-
ir nefna óvissu- og rökkurland, því
hann bar alltaf ljós skynsemi og
hjálpsemi.
Innilegar samúðarkveðjur elsku
Lína mín til þin og barnanna,
barnabarnanna og annarra ætt-
ingja.
Eftir lifir minning um „vamm-
lausan hal og vítalausan".
Erna Arngrímsdóttir
Minning:
Sigrún Jónasdótt-
ir frá Húsavík
Hún Sigrún Jónasdóttir vinkona
mín er dáin. Hún er ekki bara
vinkona mín heldur amma manns-
ins mins.
Sigrún Jónasdóttir fæddist á
Þóroddsstað i Köldukinn árið
1894. Hún giftist Jóni Guðmunds-
syni árið 1914, en manns sinn
missti hún árið 1975.
Þau eignuðust þrjú börn, Helgu,
Jónas og Guðfinnu, en Jónas dó
ungur, aðeins 25 ára gamall.
Eg kynntist Sigrúnu fyrir 20 ár-
um og fyrstu kynnin eru ógleym-
anleg, svo vel tók hún á móti mér
og ætíð eftir það.
Hún var hafsjór af fróðleik og
kunni að koma orðum að hlutun-
um, frásagnir hennar voru svo lif-
andi að maður gleymdi bæði stund
og staö. Já, það var oft glatt á
hjalla í návist hennar.
Sigrún var trúuð kona og efaðist
aldrei um, að einhvern tima myndi
hún hitta Jón sinn og soninn Jón-
as aftur eftir lífið á þessari jörð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(Vald. Brem.)
Bryndís Sigurðardóttir
TOLVUSYTHNG
IAUGAHT1ATJ=möLL
Nú stendur yfir í anddyri Laugardalshallar ein stærsta
tölvusýning á íslandi til þessa. Sýningarsvæðið er á
yfir 1000 fermetrum á tveimur hæðum. Sýndar eru allar
helstu nýjungar í tölvuheiminum frá fjölda fyrirtækja.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 10. mars klukkan 22.00.
★ Fjöldi glænýrra tölva
★ Laser-prentarar
★ Snertiskjáir
★ Viðskiptakerfi
★ Sérhannaður tölvubúnaður fyrir
hreyfihamlaða
★ 20 mism. forritunarmál
★ Bókhaldsforrit
★ Kennsluforrit
★ Ritvinnsla
★ Flugforrit
★ íslenskt getraunaforrit
Mikið af hugbúnaðinum er íslenskur og sýnir vel gróskuna í hugbúnaðargerð hér á landi.
Fyrirtestrar
Kunnáttumenn fjalla á almennan hátt um
málefni tengd tölvum og notkun þeirra.
Á eftir eru almennar umræður og fyrirspumir.
Laugardagur 9. mars
kl. 14.00 Islenskur hugbúnaðariðnaður
kl. 17.00 Einkatölvan
Sunnudagur 10. mars
kl. 14.00 Staða tölvufræðslu á Islandi
r\n\ð í
°Pámorgun,
w.1-'10
Ortölvuver
Tölvuverið er stofa með um 15 tölvum eingöngu til afnota
fyrir áhorfendur. Þetta er nýjung á tölvusýningum, sem gefur
áhorfendum tækifæri til að kynnast af eigin raun tölvum og
hugbúnaði af ýmsum tegundum. Þjálfaðir leiðbeinendur veita
aðstoð eftir því sem þörf krefur.
Skákmót
Hvað er besta skákforritið?
8 öflug skákforrit munu keppa sín á milli um það hvert þeirra
sé best. Keppt verður um titilinn Tölvuskákmeistari islands.
Skák og mát
Ef þú getur sagt þetta við White Knight skákforritið þá áttu
möguleika á að fá Electron-tölvu í verðlaun. Dregið verður
úr nöfnum vinningshafa seinni partinn á sunnudag.
Nýbakaðar vöfflur
Á sunnudeginum er ætlunin að bjóða fólki upp á nýbakaðar
vöfflur í veitingabúðinni á efri hæðinni. Þar er hægt að setjast
niður og ræða um sýninguna í rólegheitum.
Myndlistarsýning
I veitingabúðinni er myndlistarsýning á vegum
Listamiðstöðvarinnar. Sýndar eru myndir eftir ýmsa þekkta
höfunda.
„ Sýning- fyrir alla ^ölskylduna”
TÍMABÆR