Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
45
SNORRABRAUT 56 SÍMI 1 35 05 GLÆSIÐÆ SiMI 3 43 50
|l I i. , II I I ............ ...II . ■ -A
esió
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
reynslan hefur sýnt að fisk-
vinnslustöðvar hafa þurft að
stöðva framleiðslu sína vegna
skorts á vatni. 1 götur og holræsi
er áætlað að verja kr. 7.293 þús.
Gert er ráð fyrir að bundið slitlag
verði lagt á Urðarveg, Hjallaveg
og nýtt slitlag á Seljalandsveg.
Holræsi verði lagt í Hnífsdal,
áætlaður kostnaður kr. 780 þús.
Um er að ræða holræsi frá Árvöll-
um og byggðinni þar i kring og út
í sjó.
Á yfirliti yfir fjármagnsstreymi
er gert ráð fyrir að greiða niður
lán fyrir kr. 14.493 þús. og hluta-
bréfakaupum í Hótel ísafirði fyrir
kr. 3.500 þús. Ætlunin er að verja
því fé til að bæta fjárhagsstöðu
fyrirtækisins.
Ýmislegt fleira er á döfinni
vegna kaupstaðarins."
Fjárhagsáætlun ísafjarðar:
Rekstrartekjur áætlaðar
32 % hærri en á síðasta ári
- útsvarsálagning verður 11%
Á fundi bejarstjórnar ísafjarðar-
kaupstaðar 16. febrúar sl. var fjár-
hagsáætlun kaupstaöarins fyrir árið
1985 samþykkt
í frétt frá bæjarstjóranum á
fsafirði segir: „Heildar rekstrar-
tekjur bæjarsjóðs ísafjarðar eru
áætlaðar kr. 152.300 þús. sem er
um 32% hækkun frá sömu áætluð-
um tekjuliðum fyrir árið 1984.
Sameiginlegar tekjur, þ.e.a.s.
skattgjaldstekjur og vaxtatekjur,
eru þar af alls kr. 112.686 þús.
Helsti tekjustofn bæjarsjóðs er
útsvör, en þau eru áætluð kr.
65.000 þús. Gert er ráð fyrir að
útsvarsálagning verði sú sama og
á sl. ári, þ.e. 11%. Tekjur af að-
stöðugjöldum eru áætlaðar kr.
17.400 þús. og af fasteignaskatti
kr. 11.600 þús., þar af er áætlaður
afsláttur vegna elli- og örorkulíf-
eyrisþega að fjárhæð kr. 830 þús.
Af öðrum tekjuliðum má nefna
framlag úr jöfnunarsjóði og
landsútsvar að fjárhæð kr. 11.300
þús. Gert er ráð fyrir að álagning
aðstöðugjalda og fasteignaskatts
verði óbreytt frá síðasta ári.
Til ráðstöfunar eru einnig fram-
lög frá ríkissjóði til sameiginlegra
framkvæmda ríkisins og bæjarfé-
lagsins að fjárhæð kr. 2.635 þús.
Gert er ráð fyrir að selja fasteign-
ir fyrir kr. 3.429 þús. og áætlað að
taka að láni kr. 9.051 þús.
Útgjöld bæjarsjóðs eru flokkuð í
þrennt: Til rekstrar og gjald-
færðrar fjárfestingar, til eign-
færðrar fjárfestingar og fjárráð-
stöfunar. Þá er útgjöldum skipt
eftir málaflokkum.
Heildarútgjöld bæjarsjóðs skv.
rekstraryfirliti eru áætluð kr.
127.249 þús., sem er 24,3% hækkun
frá áætlun 1984.
í rekstraryfirliti er mestu fé
varið til almannatrygginga og fé-
lagshjálpar eða um 17,5% af sam-
eiginlegum tekjum og tekjum af
málaflokkum samtals. Þá er áætl-
að að verja nettó til fjárfestingar
og rekstrar verklegra fram-
kvæmda um 14%, vegna fræðslu-
mála 12%, vegna fjármagns-
kostnaðar 10%, 10% fara til yfir-
stjórnar kaupstaðarins, 7% til
æskulýðs- og íþróttamála og 5%
til hreinlætismála. Til annarra
málaflokka er áætlað að verja
lægra hlutfalli.
Helstu framkvæmdir skv. fjár-
hagsáætluninni eru framlag vegna
byggingar stjórnsýsluhúss kr.
8.000 þús., en stefnt er að því að
hefja byggingarframkvæmdir við
húsið nú í vor. Aðrir eignaraðilar
að stjórnsýsluhúsinu eru auk bæj-
arsjóðs Útvegsbanki íslands, rík-
issjóður, Fjórðungssamband Vest-
firðinga, Brunabótafélag íslands,
Ferðaskrifstofa Vestfjarða, Líf-
eyrissjóður Vestfirðinga, Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen,
Endurskoðunarskrifstofa Guð-
mundar E. Kjartanssonar og
Tryggvi Guðmundsson, Iögfræð-
ingur.
Áætlað er að verja kr. 4.807 þús.
vegna dagheimilis og leikskóla við
Eyrargötu og gert er ráð fyrir að
Ijúka framkvæmdum við skólann
og þá væntanlega opna hann um
miðjan ágústmánuð nk. Framlag
til nýbyggingar sjúkrahúss er
áætlað kr. 2.050 þús. Gert er ráð
fyrir kr. 1.300 þús. til hönnunar
nýs íþróttahúss og kr. 612 þús. til
að ljúka framkvæmdum við mal-
arvöll á Torfnesi. Kr. 600 þús.
framlag til byggingar tónlistar-
skóla. Gert er ráð fyrir nýfram-
kvæmdum við vatnsveitu fyrir kr.
5.160 þús. Stefnt er að því að auka
vatnsrennsli til bæjarins, þar sem
J