Morgunblaðið - 09.03.1985, Blaðsíða 56
TIL DAGLEGRA NOTA
aþcd 9.00-QZ.CC
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1985
Sovétmenn reyna að stöðva
Tarkowskí-kvikmyndahátíð
MorKunbladið/OI.K.Mag.
Hvalur og selur á borðum í Hval 9
Kristján Luftsson, forstjóri Hvals hf., bauó í gærkvöldi Grænlendingum og Kæreyingum, sem komu til íslands vegna
NorðurlandaráAsþingsins, til veizlu um borA í Hval 9 sem liggur viA /KgisgarA. A borAum var íslenskur þorramatur,
þar á meAal hvalur og aA auki selspik, verkaA á grænlenzka vísu. AA loknu borAhaldi tók Jonathan Motzfeld,
formaður grænlensku landsstjórnarinnar, fram harmonikku og hóf að leika fyrir veislugesti, svo undir tók í öllu
skipinu. Á myndinni eru nokkrir gestanna ásamt gestgjafanum: f.v. Emil Avelson, Alibah Steenholdt, Jonathan
Motzfeld, (iunhild Ipsen, Kristján Loftsson og Lars Anders.
texta og búið væri að greiða fyrir
hann. Myndirnar verða hér að-
eins í stuttan tíma eða þá viku
sem hátíðin stendur yfir.
„Við látum Rússana ekki
hræða okkur hætishót, enda telj-
um við okkur í fullum rétti. Öll-
um undirbúningi undir hátíðina
er lokið, dagskrá er frágengin og
boðskort hafa verið send út.
Kvikmyndahátíðin hefst því
stundvíslega í dag klukkan 17.00
í Háskólabíó, eins og til stóð.
Ekkert nema fógetavald fær
breytt því,“ sagði Jón Óttar.
Jón Ottar sagði að Tarkowsky-
nefndin hefði í gær gert utanrík-
isráðherra, Geir Hallgrímssyni,
grein fyrir málinu og hefði hann
hvatt nefndina til að halda
ótrauð sínu striki.
Við opnunina í dag verður
frumsýning á íslandi á fyrstu
mynd höfundar, Bernsku Ivans.
Opnunin og hátíðin er öllum opin
meðan húsrúm leyfir.
SOVÉSKA sendiráðið á íslandi hefur krafist þess að hætt verði við
kvikmyndahátíð, sem heiguð er hinum heimsfræga, landflótta, sovéska
kvikmyndahöfundi, Andrei Tarkowsky, og hefjast á í dag í Háskólabíó.
Segir sendiráðið að sovéska ríkið eigi sýningarétt á öllum kvikmyndum
Tarkowskys, sem hann hefur gert í Sovétríkjunum og hótar málsókn verði
ekki þegar í stað hætt við sýningu myndanna.
„Það er vitað að Rússar hafa
reynt að leggja nokkra steina í
götu Tarkowskys og gera honum
erfitt fyrir með ýmsum hætti.
Þeir hafa til dæmis neitað þrem-
ur börnum þeirra hjóna um
brottfararleyfi frá Sovétríkjun-
um,“ sagði Jón Óttar Ragnarsson
i samtali við Morgunblaðið, en
hann á sæti í Tarkowsky-nefnd-
inni, sem stendur fyrir kvik-
myndahátíðinni. Sams konar
nefndir starfa einnig í öðrum
löndum. Tarkowsky er væntan-
legur hingað til lands á föstudag-
inn, kemur í tilefni kvikmynda-
hátíðarinnar og mun dveljast hér
á landi yfir helgina.
Fyrirhugað er að sýna allar
þær kvikmyndir, sem Tarkowsky
hefur gert í fullri lengd á kvik-
myndahátíðinni, en þær eru sex
að tölu. Þar af gerði hann fimm í
Sovétríkjunum áður en hann
gerðist landflótta ásamt konu
sinni árið 1982, en sjöttu kvik-
myndina og þá nýjustu gerði
hann á Ítalíu.
„Það er einkennandi fyrir
þetta mál að Sovétmenn segjast
eiga sýningarétt á myndunum,
en gefa okkur samt engan kost á
því að kaupa hann. Það er því
augljóst mál að þeir vilja þessa
hátíð feiga og styrkir það mig í
þeirri trú að þetta sé pólitísk
ákvörðun," sagði Jón Óttar
ennfremur.
Jón sagði að Hákólabíó hefði
með góðum fyrirvara tryggt sér
sýningarétt að fjórum myndanna
sem Tarkowsky gerði í Sovétríkj-
unum og Regnboginn að einni.
Skreiðin
að seljast?
NOKKKIR aðilar hér á landi hafa
nú gert samning um umboðs- og
útflutningslaun fyrir skreið lil
Nígeríu að verðmæti 60 milljónir
dollara (2,4 milljarða króna). Inn-
flutningsleyfi lágu ekki fyrir í
gærkvöldi, en þeirra var vænzt
fyrir helgina.
Verði að því, að innflutnings-
og gjaldeyrisleyfi fáist fyrir
skreiðina, verður um að ræða
allt það magn, sem til er af
henni í landinu. Fyrirhugað að
innflutningsleyfin verið tvö,
annaö fyrir skreið að verðma’ti
42.5 milljónir dollara, hitt upp á
17.5 milljónir dollara.
Sölutilraun þessi er hvorki
gerð að frumkvæði Skreiðar-
samlagsins né Skreiðardeildar
Sambandsins, en sumir þeirra,
sem að henni standa, haf;i selt
skreið sína í gegnum þessa að-
ila.
Tarkowskí
Sýningarétturinn væri fenginn
frá dönskum dreifingaraðila,
enda myndirnar með dönskum
Idnaöarbanki íslands: Kr. 100.000,.
Gefur út skuldabréf S
á frjálsum markaði
H’>' VDAKHANKI íslands hf. hefur gefið út flokk verötryggðra skuldabréfa,
r, .ölu á frjálsum markaAi. Ilvert skuldabréf er aA verAgildi 100 þúsund
kr ,nur og nemur útboAiA 50 milljónum króna alls á nafnverAi. Skuldahréfin
etu til 10 ára, með árlegum afborgunum, 2%ársvöxtum og verðtryggð miðað
við lánskjaravísitölu. Kaunvextir bréfanna ráAast hins vegar af framboAi og
• ftirspurn á markaAnum, líklega á bilinu 10—12% samkvæmt því sem
kemur fram í frélt lAnaAarbankans um þetta efni.
I frétt hankans um ástteður
þessa útlioðs á skuldabréfum segir
að armars vegar sé það sú stað-
reynd að meðal viðskiptamanna
liankans séu flestir umsvifameslu
!,\ ggingaverktakar íbúðarhús-
naðis i landinu, en á fasteigna-
markaðnum sé nú afar brýn þörf
fyrir lengingu lánstíma og hækk-
að lánshlutfall. Telur bankinn að
hin háa ávöxtunarkrafa sem nú
þekkist í viðskiptum með skulda-
bréf á hendur kaupendum fast-
eigna, eigi rætur aö rekja til
óvissu um greiðslugetu skuldar-
ans, og vonast bankinn til þess að
með milligöngu sinni ýti hann
undir þróun, sem komi kaupend-
um íbúðarhúsnæðis til góða.
Hins vegar tilgreinir bankinn
þá ástæðu að nýlega hafi íslenskt
stórfyrirtæki staðið að skulda-
bréfaútboði á innlendum markaði.
Þetta telur bankinn að hafi verið
tímabær nýjung, til þess fallin að
efla samkeppni á markaði, sem
ríkissjóður hafi hingað til setið
einn að. Hins vegar sé nauðsynlegt
að smærri fvrirtæki njóti jafn-
ræðis á við þau stærstu með að-
gang að skuldabréfamarkaði og
því sé milliganga Iðnaðarbankans
í boði.
Verðbréfamarkaður Fjárfest-
ingarfélags íslands hf. og Kaup-
þing hf. munu annast sölu skulda-
bréfanna.
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
MorKunblaðHVGuðfínnur
Nýrekinn þorskur í fjörunni við
ísólfsskála.
40 til 50
stórþorska
rak á land
Grindavík, 8. mars.
Á FLÓÐINU í dag bættist ísólfí
Guðmundssyni og Hertu Guð-
mundsson, sem búa að fsólfs-
skáL, austan við Grindavík, björg
í bú. Rekið haföi 40 til 50 stór-
þorska og ufsa á fjörur neðan við
lsólfsskála. Auðséð var að fískur-
inn hafði rotast í briminu, en var
alveg nýr.
Þau hjónin báru aflann upp,
gerðu að honum og söltuðu
hann. Er fréttaritari kom þar
að, var aðgerð lokið og fsólfur
við gegningar. Frú Herta var
hins vegar að sjóða lifur og
hrogn fyrir búfénaðinn. f fjör-
unni fann fréttaritari einn
þersk, nýrekinn. Guðfínnur
68 % hækkun ábyrgð-
artrygginga:
Meðaliðgjald
bifreiða
hækkar um
4.000 krónur
í GÆR var ákveðið að iðgjöld
ábyrgðartrygginga bifreiða hækki
um 68% frá gjalddaga sem var 1.
þ.m. Bifreiðatryggingafélögin höfðu
lagt fram beiðni um 78,4% hækkun
en að lokinni athugun Tryggingaeft-
irlitsins, sem taldi að nokkur atriði í
forsendum félaganna þyrfti að at-
huga nánar, tilkynntu tryggingafé-
lögin 68% hækkun iðgjaldanna í gær
og gerði Tryggingaeftirlitið ekki at-
hugasemdir við þá hækkun.
Bruno Hjaltested, formaður
samstarfsnefndar bifreiðatrygg-
ingafélaganna, sagði að lækkun
félaganna frá því sem þau upp-
haflega töldu sig þurfa fælist í því
að tryggingafélögin væru með
mismunandi háar slysakröfur á
sér og hefði verið reynt að skera
hækkunina eins mikið niður og
frekast hefði verið unnt. Sagði
hann að bifreiðatryggingafélögin
hefðu verið rekin með miklu tapi á
sl. ári. Iðgjöldin voru þá hækkuð
um 10% sem reyndist vera allt of
lítið miðað við verðbólguþróun og
kostnað við tjón og slys.
Á síðasta iðgjaldatímabili mun
meðaliðgjald fólksbifreiða hafa
verið nálægt 6.000 kr. með sölu-
skatti. Iðgjaldið hækkar nú um
rúmar 4.000 kr. og verður meðalið-
gjaldið því á nýbyrjuðu iðgjalda-
ári rúmar 10.000 krónur.