Morgunblaðið - 06.06.1985, Blaðsíða 2
2__________
Hæstiréttur.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1985
Fimm dæmdir í
„dekkjamálinu"
Refsidómur undirréttar staðfestur, en skaða-
bætur skulu greiddar í íslenzkum krónum
Il/ESTIRÉXrUR hefur d»mt fimm menn í fangelsi í ,,dekkjamálinu“, sem
svo hefur verið nefnt, fyrir að hafa á árunum 1976 til 1978 svikist um að
afhenda Varnarliðinu hjólbarða, sem seldir voru á Keflavíkurflugvöll og
reynt að hylma yfir svikin með því að falsa birgðabókhald. Fjórir mannanna
voru starfsmenn varnarliðsins, en hinn fimmti hafði umboð fyrir hjólbarð-
ana. Frá 1. október 1976 fram á árið 1978 seldi umboðsmaðurinn tæplega sjö
þúsund hjólbarða, en sveikst um að afhenda um 1800 og folsuðu starfsmenn
varnarliðsins birgðabókhaldið og skiptu hagnaði á milli sín. Verðmæti hjól-
barðanna var áætlað liðlega 153 þúsund dalir, eða sem nemur rúmum 6,3
milljónum á gengi dagsins í dag.
Umboðsmaðurinn var dæmdur í
14 mánaða fangelsi, en starfsmenn-
irnir hlutu misþunga refsingu. Ginn
var dæmdur í 14 mánaða fangelsi,
annar í 10 mánaða fangelsi, sá
þriðji í sex mánaða fangelsi, þar af
3 mánaða skilorðsbundið fangelsi,
og sá fjórði í 5 mánaða fangelsi, þar
af 3 mánaða skilorðsbundið fang-
elsi.
Mönnunum var gert að greiða
dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna
skaðabætur í íslenzkum krónum
með vöxtum, en ráðuneytið hafði
uppi kröfu um greiðslu I dollurum. 1
undirrétti var mönnunum gert að
greiða skaðabætur f dollurum. 1
dómi Hæstaréttar um þetta segir
meðal annars: „Brot ákærðu leiddu
til fjártjóns fyrir ríkissjóð Banda-
ríkjanna, sem dómsmálaráðuneyti
þess ríkis er í fyrirsvari fyrir, eins
og greinir í héraðsdómi. Gjaldkerar
hjá varnarliðinu á Keflavíkurflug-
velli greiddu með tékkum f Banda-
ríkjadölum, en ákærðu seldu þá
jafnharðan í íslenzkum bönkum.
Tjón þetta varð á íslandi, þar sem
varnarliðið hefur lengi haft starf-
semi. Staða þess að lögum er að
sönnu með sérstökum hætti, en ekki
verður þó talið að lagagrundvöllur
sé til að telja það hafa sérstöðu í
bótamálum á þann veg, að þvf verði
í þessu máli dæmdar bætur f
Bandaríkjadölum, sbr. 10. gr. við-
bætis með samningnum. Ber sam-
kvæmt þessu að dæma bætur í ís-
lenzkum krónum, og verður miðað
við gengi á þeim dögum, er greiðsl-
ur voru inntar af hendi."
Hins vegar var Continental
Rubber og TBA Trading Kolding,
fyrirtækjunum sem seldu vörurnar
til Islands, dæmdar skaðabætur f
erlendri mynt eftir kröfu þeirra.
Um það sagði í dóminum: „Söluverð
var tilgreint f erlendri mynt og
þessir tjónþolar hefðu fengið kröfur
um greiðslu kaupverðs varningsins
dæmdar í erlendri mynt, ef slfkar
kröfur hefðu verið gerðar í einka-
málum.“
Dóminn kváðu upp Magnús Þ.
Torfason, Guðmundur Jónsson,
Halldór Þorbjörnsson, Sigurgeir
Jónsson og Þór Vilhjálmsson. Sig-
urgeir skilaði sératkvæði um
greiðslu skaðabóta og taldi sann-
girnisatriði að greiösla færi fram í
dollurum. Mönnunum var gert að
greiða málskostnað til verjenda og
saksóknarkostnað.
Austur-þýsk þingmannanefnd stödd hér á landi:
Endurgeldur heimsókn
þingmanna frá 1981
HÉR á landi er nú stödd þingmanna-
sendinefnd fri þjóðþingi Þýska al-
þýðulýdveldisins, í boði Alþingis. Er
nefndin að endurgjalda heimsókn ís-
lenskrar þingmannanefndar, sem
sótti Austur-Þýskaland heim árið
1981. Að sögn Þorvalds Garðars
Morgunblaöiö/Emilía
Fánar íslands og Austur-Þýskalands
blakta við hún á AusturveÍli í tilefni
heimsóknar austur-þýsku þingmann-
anna.
Kristjánssonar, forseta Sameinaðs
þings, er nefndin hingað komin til
þess að efla samskipti ríkjanna á sviði
viðskipta og menningar.
Formaður austur-þýsku sendi-
nefndarinnar er Gerald Götting, en
hann er varaforseti þjóðþings
Austur-Þýskalands. í för með hon-
um eru kona hans og þrír þingmenn
þjóðþingsins. Nefndin kom hingað
þann 3. þessa mánaðar og hefur
hún heimsótt Alþingi og átt viðræð-
ur við forseta þingsins, skoðað
orkuverið í Svartsengi, heimsótt
Keflavík, Akureyri og fleira.
í dag standa fyrir dyrum fundir
nefndarinnar með Steingrfmi Her-
mannssyni forsætisráðherra, Pétri
Sigurgeirssyni, biskupnum yfir ís-
landi, auk heimsókna í Árnastofn-
un og Þjóðminjasafniö. Eftir há-
degið fer nefndin til forseta íslands
að Bessastöðum. Heimsókninni lýk-
ur í kvöld með móttöku í austur-
þýska sendiráðinu og halda nefnd-
armenn áleiðis heim í bftið í fyrra-
málið.
3 skákmenn og 2
úr stjórn til Kína
ÍÞRÓTTARÁÐ Alþýðulýðveldisins Kfna hefur boðið Skáksambandi fslands að
senda fimm menn í 3 vikna heimsókn til Kína í júlímánuði nk. Að sögn
l>orsteins Þorsteinssonar forseta Skáksambandsins er búist við að sendir verði
3 skákmenn og 2 stjórnarmenn í Skáksambandinu.
Hann sagði ekki endanlega ljóst
hverjir færu. Skákmönnunum
Karli Þorsteins, Sævari Bjarna-
syni og Leifi Jósteinssyni hefði
verið boðið að fara, og hugsanlegt
er að stjórnarmennirnir Jón
Rögnvaldsson og Guðbjartur
Gunnarsson fari líka. Leifur er
einnig stjórnarmaður í Skáksam-
bandinu.
Þorsteinn sagði að vali skák-
manna í ferðina réði styrleiki
þeirra og hvort þeir væru lausir á
þeim tíma sem ferðin verður far-
in. Það hefði takmarkaö mögu-
leikana að margir sterkustu skák-
mennirnir væru bundnir í mótum
í júlí, en ferðin væri bundin við
ákveðna daga. Skáksambandið
þarf að kosta ferðir fimmmenn-
inganna til Peking og kostar far-
miðinn 50—70 þúsund krónur
fyrir manninn. Þorsteinn sagði að
ekki væri séð fyrir endann á þvf
hvernig ferðin yrði fjármögnuð,
en það kæmi að einhverju ieyti f
hlut þeirra sem færu í ferðina að
sjá um það.
Stúdentar Menntaskólans í Reykjavík, 189 talsins, setja upp hvítu kollana, hið ytra tákn stúdentsins.
189 stúdentar braut-
skráðir frá MR
MENNTASKÓUNN í Reykjavík brautskráði 189 stúdenta í gær er
skólanum var slitið í 139. skipti talið frá flutningi skólans til Reykjavíkur.
Fór athöfnin fram í Háskólabíói og hófst með því að skólakórinn söng
stúdentasöngva. Þá flutti rektor skólans, Guðni Guðmundsson, annál
skólaársins, en veturinn markaðist að þessu sinni mjög af verkföllum
kennara.
Tíundaði Guðni húsnæðis-
vandræði skólans en gerði um
leið þær fréttir kunnar aö húsiö á
Bókhlöðustig 7 hafi nú verið
keypt fyrir skólann og verði tekið
í notkun næsta vetur auk þess
sem til standi að bæta einni hæð
ofan á Casanova, kennsluhús
skólans aftan við gamla Mennta-
skólahúsið. Úr félagslífinu bar
einna hæst sýningu Herranætur
á leikritinu Náðarskotið. Tóku
40—50 nemendur þátt í upp-
færslunni en sýningar voru á
Broadway.
Nám við skólann hóf 821 nem-
andi þennan vetur, 793 tóku próf
og árspróf stóðust rúmlega 80%
athugasemdalaust. Kennarar við
skólann voru 64 talsins. Stúdents-
próf þreyttu 189 og stóðust allir.
Næst voru stúdentum afhent
skírteini þeirra og þeir beðnir að
setja upp hið ytra tákn stúdents-
ins, hvítu kollana, og voru þeim
nemendum sem þóttu skara
framúr í námi og félagsstörfum
veitt verðlaun. Rektor talaði þá
næst til nýstúdenta, brýndi fyrir
þeim iðjusemi, heiðarleika og
dugnað og þakkaði samfylgdina.
Afmælisstúdentar héldu ræður
og gáfu skólanum gjafir og var
skólanum sfðan slitið.
„Þetta var argasta puö
en alltaf skemmtilegt"
„FYRIRHÖFNIN við námið var ekkert alltof mikil nema í prófunum
sjálfum. Ég hef mörg önnur áhugamál og læt skólann alls ekki sitja 1
fyrirrúmi,“ sagði dúx skólans, Þorlákur Jónsson, er blaðamaður náði af
honum tali á leið út á háskólalóð þar sem stúdentaárgangurinn er jafnan
myndaður að lokinni útskrift. Með það var Þorlákur rokinn, en hann
hlaut 9,37 í aðaleinkunn og voru veitt verðlaun fyrir hæstu einkunn auk
bókaverðlauna í einstökum greinum.
Hulda Dóra Styrmisdóttir varð
semi-dúx, með 9,32 í aðaleinkunn
en Tómas Guðbjartsson þriðji
hæstur með 9,22 í aðaleinkunn.
Blaðamaður hitti þau að máli og
spurði fyrst hver væri galdurinn
á bak við siíkan ágætisárangur.
„Ég reyndi aðallega að fylgjast
vel með í tímum því það er von-
laust að lesa upp á vorin ef maður
hefur ekki fylgst með í tírnum,"
sagði Hulda Dóra. Tómas sagðist
hafa skipulagt tíma sinn vel og
undirbúið sig jafnt og þétt. „Þetta
var mikil vinna þar sem ég var í
ár inspector eða formaður nem-
endafélagsins, formannsstarfið
var númer eitt og skólinn númer
tvö.“
Aðspurð um hvað væri eftir-
minnilegast frá menntaskólaár-
unum sögðu þau bæði að gaman
hefði verið í skólanum alla fjóra
veturna. „Einna eftirminnilegast
er ferðalag sem ég fór í með góð-
um hópi eftir að við lukum próf-
um í fjórða bekk,“ sagði Hulda
Dóra. „Þetta var argasta puð, en
alltaf skemmtilegt," sagði Tómas.
„Það að gegna starfi inspectors,
fá að starfa í félagslífi og kynnast
fólki, hefur verið viðburðaríkt og
ánægjulegt."
Að lokum voru þau spurð um
framtíðina: „Ég fékk styrk til
náms við háskóla í Bandaríkjun-
um, Brandeis-háskólann, sem er
rétt fyrir utan Boston, en MR er í
sérstökum tengslum við þennan
skóla. Ég held þangað í haust og
verð í almennu námi fyrsta árið,
en það er einmitt það besta aö ég
þarf ekki að ákveða strax hvað ég
ætla aö gera,“ sagði Hulda Dóra.
„Ég ætla í læknisfræöi en það
ákvað ég fyrir víst fyrir tveim ár-
um síðan og valdi þá á milli verk-
fræði og læknisfræði. Ég hef mik-
inn áhuga á líffræði, eðiisfræði
og efnafræði, þetta eru mfn uppá-
haldsfög og það sem mér finnst
mest spennandi," sagði Tómas.
Hulda Dóra hlaut verðlaun
fyrir næsthæstu einkunn og
fjölda bókaverðlauna fyrir ein-
stakar greinar og Tómas fékk
líffræðiverðlaun, verðlaun fyrir
ágætiseinkunn, viðurkenningu
fyrir störf sín sem inspector og
verðlaun fyrir einstakar greinar.
BHr v æBM
Morgunblaðiö/Júlíus
Þorlákur Jónsson, dúx skólans, tekur við prófskírteini sínu
úr hendi rektors, Guðna Guðmundssonar.
Tómas Guðbjartsson, þriðji hæstur, og Hulda
Dóra Styrmisdóttir, sem varð önnur, létu vel af
verunni í MR.