Morgunblaðið - 06.06.1985, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 1985
Birmingham:
45 manns lesa íslenzku
til háskólaprófs
Rætt vid Anthony Faulkes, sem er doktor í
íslenzku og kennir við háskólann í Birmingham
Birmingham, iðnaðarborgin í
hjarta Knglands, er ckki mikið heim-
sótt af Islendingum. Áhugi ferða-
mannsins beinist frekar að stórborg-
inni London eða enskri sveitasælu.
Birmingham er næst stærsta borg
Knglands með tæpar tvær milljónir
íbúa. Mannlíf er þar margbrotið og
menning blómleg. Mikið er um tón-
leika, leiksýningar og alls kyns ráð-
stefnur. Kn hvern skyldi gruna að
menn legðu stund á íslenskunám
þar?
Við Háskólann í Birmingham
eru nú 45 manns að lesa íslensku
til háskólaprófs. Til að forvitnast
um þetta hélt undirrituð á fund
Anthony Faulkes, doktors í ís-
lensku og helsta forvígismanns ís-
lenskukennslu í Háskólanum í
Birmingham. Við ræddum saman
á íslensku.
— Hversu lengi hefur verið
kennd íslenska við Háskólann í
Birmingham?
„í tólf ár. Islenskan er kennd
sem aukagrein í hugvísindadeild.
Það er hægt að taka hana með
flest öllum greinum innan deildar-
innar."
— Af hverju velur fólk ís-
lensku?
„íslenskan tengist fornensku
eða engilsaxnesku. Nemendur
læra forníslensku og þeir læra að
lesa, ekki tala. Við lesum fslend-
ingasögurnar, eddukvæði og
dróttkvæði."
— Eru nemendur áhugasamir?
„Já, já, fyrsta árið er erfitt, en
þegar þeir fara að lesa sögurnar
verður þetta skemmtilegt."
— Þú lærðir á fslandi...
„Já, ég var eitt ár við Háskóla
fslands, 1960, en lærði ekki að tala
íslensku fyrr en ég fór í sveit. Við
hjónin dvöldum nokkrar vikur á
Sámsstöðum í Fljótshlíð og síðan
"22sssy
UOPELKAD
Dr. Anthony Faulkes
á bæ undir Eyjafjöllum. Eg lærði
mest á því að tala við börnin."
— Hefurðu farið til íslands síð-
an?
„Já, ég fer alltaf annað hvert ár,
með alla fjölskylduna. Við höfum
ferðast á jeppa um hálendið. Ég
held ég hafi ferðast meira um ís-
land en margir íslendingar."
— Hvernig beindist athygli þín
að fslandi og fslendingum?
„Ég var við nám í Oxford og mér
fannst aldrei gaman að lesa nú-
tímabókmenntir. Ég las heldur
fornbókmenntir á ensku. Svo kom
að því að ég átti að velja annað
mál og af löngum lista valdi ég
íslensku. Þetta var hálfgerð til-
viljun. Þegar þú ert svo einu sinni
byrjaður að lesa íslendingasög-
urnar er ekki hægt að hætta."
— Heldur þú að almennur
áhugi á fslandi sé að aukast?
„Já, það held ég, það eru fleiri
sem vita eitthvað um fsland núna.
Það eru ekki eins margir, sem
spyrja hvort fslendingar búi í
snjóhúsum og séu eskimóar. Vík-
ingasýningin hér um árið vakti at-
hygli, margar bækur hafa verið
skrifaðar og þýðingar eru að
aukast. Áhugi á samanburðarbók-
menntum hefur einnig beint at-
hyglinni að íslenskum bókmennt-
um.“
Anthony Faulkes var fyrstur
Englendinga til að verja doktors-
ritgerð á fslandi og j>essi viðkunn-
anlegi, veðurbarni Islandsvinur á
þakklæti skilið fyrir að útbreiða
áhuga á fslandi og íslenskri tungu.
Þó að íslenska sé kennd við aðra
breska háskóla, er það yfirleitt á
stuttum námskeiðum en ekki sem
þriggja ára nám og hvergi eru jafn
margir nemendur í íslensku eins
og í háskólanum í Birmingham.
Allt er þetta fyrir áhrif hans. En
starfið heldur áfram. Anthony
Faulkes vinnur nú að enskri þýð-
ingu á Snorra-Eddu samfara
kennslunni og nokkrir áhugasam-
ir nemendur hans hyggja á ís-
landsferð í sumar.
Ingunn Olafsdóttir
Stykkishólmur:
Flutt í nýtt skóla-
hús í haust
Stvkkisholmi, 23. maí.
GRUNNSKÓLANUM í Stykkis-
hólmi var slitið við hátíðlega athöfn í
Fclagsheimilinu í Stykkishólmi 14.
þessa mánaðar. Athöfnin hófst með
leik Lúðrasveitar Stykkishólms.
Margir foreldrar voru mættir með
börnum sínum.
Skólastjórinn, Lúðvíg Hall-
dórsson, gerði eins og undanfarin
ár grein fyrir störfum skólans og
árangri. 16 kennarar voru við
skólann og gekk allt skólastarf vel
í vetur þrátt fyrir töfina í haust. í
11. deildum skólans voru um 270
nemendur. Framhaldsdeild var í
skólanum. Fram kom að skólinn
fær væntanlega í haust, ef ekkert
sérstakt kemur fyrir, nýtt skóla-
húsnæði og er það fagnaöarefni
eftir þröngan kost áður. Gunnar
Svanlaugsson yfirkennari tók
einnig til máls og gerði grein fyrir
gangi þeirra deilda er hann sér
um. Einhver kennaraskipti verða í
haust og hafa stöður við skólann
verið auglýstar.
Félagsstarf í skólanum var með
líku sniði og áður, árshátíðir bæði
gagnfræða- og barnaskólans í lok-
in og þess má og geta að farnar
voru undir stjórn kennara kynnis-
ferðir og leikhúsferðir til höfuð-
borgarinnar.
Loks skal þess getið að barna-
stúkan Björk starfaði vel í vetur
eins og undanfarin ár og var í
tengslum við skólann og studdu
þau hvort annað. Kennaralið skól-
ans stóð vel að barnastúkunni og
hjálpaði til með fundi.
Árni
Gamla og nýja skólahúsið i Mtykkishólmi.
MorKunblaðið/Árni