Morgunblaðið - 06.06.1985, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. JÚNl 1985
fltov$pititlrIafeU>
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 360 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 30 kr. eintakiö.
Ný þingsköp
Vinnubrögð Alþingis hafa
sætt vaxandi gagnrýni á
næstliðnum árum. Þingmenn
hafa viðurkennt réttmæti
þessarar gagnrýni í verki, m.a.
með því að setja ný þingskap-
arlög, þar sem starfsreglum
þingsins er verulega breytt.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, forseti sameinaðs þings,
sem ásamt fleirum stóð fyrir
þessum breytingum, komst
svo að orði í þingræðu, að hér
væri um að ræða „gagngerðar
breytingar í veigamiklum at-
riðum“ og „algjör nýmæli“.
Minna þótti ekki gagn gera.
Á þingi því, sem senn lýkur,
og næstliðnum þingum, hafa
þingmál gengið hægt fram,
bæði í þingnefndum og þing-
deildum, lungann úr þingtím-
anum, en hrannast upp til af-
greiðslu í skammtíma, rétt
fyrir jól og rétt fyrir þing-
lausnir að vori. Að þessu leyti
var vinnulag þingsins ámæl-
isvert. Hyggilegra hefði verið
að dreifa málum betur á
starfstíma þess.
Fyrirspurnir til ráðherra,
umræður utan dagskrár og til-
lögur til þingsályktunar, sem
fyrr á tíð vóru ekki miklar að
fyrirferð í þingstörfum, hafa
vaxið ótrúlega að tölunni til
hin síðari þingin og þrengt að
meginverkefni Alþingis, lög-
gjafarstarfinu. Stundum virð-
ist sem fyrirspurnir og um-
ræður utan dagskrár séu svið-
settar af einstökum þing-
mönnum fyrir fjölmiðla, til að
fá auglýsingu út í þjóðfélagið.
Það kemur því úr hörðustu átt
þegar þingmenn átelja fjöl-
miðla sem farveg fyrir þessar
„uppákomur". Það er ekki
karlmannlegt að kenna spegl-
inum um þegar mönnum líkar
ekki eigið útlit.
Ný þingskaparlög, sem efla
stjórn þingsins og miða að
skipulegri og markvissari
vinnubrögðum, setja fyrir-
spurnum, umræðum utan dag-
skrár og meðferð þings-
ályktunartillagna þrengri
skorður. Raunar vóru engin
ákvæði í eldri þingsköpum um
umræður utan dagskrár. Hin
nýju þingssköp kveða m.a. á
um:
• að forsetar þingsins hafi
umsjón með starfi þingnefnda
„svo sem nauðsynlegt kann að
vera til þess að geta skipað
málum niður á dagskrá þing-
funda í hagkvæmari tímaröð",
eins og forseti sameinaðs
þings komst að orði.
• þingnefndum er og gert að
skipa afgreiðslu þingmála í
tímaröð.
• lagafrumvörp, sem útbýtt
er sex mánuðum eftir þing-
setningu, hafa ekki jafn greiða
meðferðarleið og önnur. „Með
þessu er stefnt að því,“ sagði
þingforseti, „að lagafrumvörp
komi svo tímanlega fyrir þing-
ið að því gefist færi á að fjalla
um þau með eðlilegum hætti."
• umræða um fyrirspurn er
bundin við fyrirspyrjanda og
viðkomandi ráðherra og ræðu-
tími styttur.
• umræða utan dagskrár er í
flestum tilfellum bundin við
hálftíma og fundi í sameinuðu
þingi.
Öll þessi atriði og mörg
fleiri, sem hin nýju þingsköp
geyma, standa til bóta um
starfsemi þingsins. í stöku at-
riði mátti lengra ganga en
gert var. Höfuðatriði er þó, að
þingheimur gerði sér grein
fyrir vanköntum í vinnulagi
Alþingis og hefur nú í nýjum
þingsköpum gert heiðarlega
tilraun til úrbóta.
Bjór — eða
ekki bjór
Heimild til bruggunar og
sölu meðalsterks öls er
nú til meðferðar í síðari þing-
deild eftir samþykki í þeirri
fyrri. Ekki er útséð um hvort
þingmenn taka afstöðu til
málsins eða koma sér hjá því
sem jafnan áður.
Rök eru til bæði með og
móti þessari heimild.
Andstæðingar bjórs stað-
hæfa að hann verði aðeins
viðbót við aðra áfengisneyzlu
og þann vanda, margs konar,
sem vínnautn er samfara og
enginn getur lokað augum
fyrir.
Stuðningsmenn bjórfrum-
varpsins telja bjórinn þegar
til staðar í landinu, bæði lög-
lega og ólöglega inn fluttan,
efni til bjórgerðar selt í verzl-
unum og bjórlíki í veitinga-
húsum. Þeir telja eðlilegt að
þessi veikasta tegund áfengis
fáist keypt í verzlunum ÁTVR,
sem falbjóða flestar aðrar teg-
undir áfengis, og lúti sömu
sölureglum og sterkari drykk-
ir.
Morgunblaðið hefur talið
eðlilegt að þjóðaratkvæði
verði viðhaft um heimild sem
þessa, m.a. í ljósi hefðar um
almennar atkvæðagreiðslur
um áfengismál. Neðri deild al-
þingis hafnaði þessari leið á
afgerandi hátt. Úr því sem
komið er verður því að telja
eðlilegt að þingmenn taki af-
stöðu til þessa frumvarps í at-
kvæðagreiðslu, felli það eða
samþykki, eftir því sem sann-
færing þeirra stendur til.
Þingmenn eru ekki kjörnir til
þess að hliðra sér hjá því að
taka afstöðu í málum, sem
skiptar skoðanir eru um.
ísafjörður:
Fyrsta skóflustunga
að nýju tónlistarhúsi
Isafirói, 4. júni. ^
RAGNAR H. Ragnars, fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans og heidurs-
borgari ísafjarðar, tók í kvöld fyrstu skóflustunguna að byggingu tónlistar-
skólahúss á ísafirði. Þar með er að byrja að rætast áratugadraumur fjölda
tónelskra manna hér vestra og víðar
kennslu og starfs við tónmennt.
Þó að einn stærsti og þekktasi
tónlistarskóli landsins hafi verið
starfandi á ísafirði síðan 1947,
hefur hann aldrei haft yfir öðru
húsnæði að ráða en heimili skóla-
stjórahjónanna Ragnars H. Ragn-
ar og Sigríðar Jónsdóttur Ragnar
og einstök herbergi víðsvegar um
bæinn.
Ragnar H. Ragnar lét af skóla-
stjórastörfum vorið 1984, en tveim
árum áður, eða vorið 1982, skoraði
hann á ísfirskar konur að koma
byggingarmálum skólans i höfn.
um land, um sérhannað skólahús til
Um sumarið komu svo 10 konur
saman og ákváðu að vinna að
stofnun samtaka áhugamanna til
styrktar Tónlistarfélagi ísa-
fjarðar að byggingu skólahúss.
21. nóvember um haustið var
stofnaður styrktarsjóður vegna
byggingarinnar. Geirþrúður
Charlesdóttir hefur verið formað-
ur styrktarsjóðsins frá upphafi. í
ræðu, sem hún flutti í kvöld, gat
hún um ýmsar fjáröflunarleiðir,
sem farnar hafa verið, en margar
þeirra hafa lífgað upp á bæjarlíf-
Högni Þórðarson formaður Tónlistarfélags ísafjarðar tekur við söfnunarfénu
úr hendi Geirþrúðar Charlesdóttur formanns styrktarfélagsins.
ið, s.s. kabarettsýningar, torgsölur
o.fl., auk þess sem leitað hefur
verið til brottfluttra ísfirðinga
með stuðning. Fjöldi einstaklinga
og félaga hefur lagt málefninu lið,
enda hefur tónmennt verið snar
þáttur í menningarlifi bæjarins í
áratugi. Um leið og hún afhenti
Högna Þórðarsyni, formanni
Tónlistarfélags ísafjarðar, tæpar
2 milljónir króna, gat hún þess, að
áfram yrði haldið að afla fjár, þar
til húsið væri fullbyggt. Högni
Þórðarson ræddi um stöðu bygg-
ingarmála en samið var við teikn-
istofuna Óðinstorgi í Reykjavík
um hönnun hússins og var sú
vinna í höndum Vilhjálms Hjálm-
arssonar arkitekts. Húsið verður
773 fm á tveim hæðum og mun
rísa á Torfnesi milli nýja sjúkra-
hússins og Menntaskólans.
Kostnaðaráætlun hljóðar upp á
21 milljón króna. Fyrsti áfangi,
þ.e. sökklar, grunnplata og jöfnun
lóðar, var boðinn út í vetur. Var
tekið tilboði lægstbjóðenda Bygg-
ingarfélagsins Forms sf. á ísafirði
upp á 1,8 milljónir.
1 núverandi fræðslulögum eru
engin ákvæði um fjárframlög ríkis
eða bæjarfélaga til byggingar
tónlistarskóla, þannig að öll fjár-
mögnun verður að koma í formi
frjálsra framlaga. Að lokum sagði
Högni: Þrátt fyrir óvissu verðum
við að vera bjartsýn og berjast
áfram. Með öflugum stuðningi
fólksins má lyfta Grettistaki.
Framtíð þessa skóla veltur á því,
Hjartaskurðlækningar hérlendis:
Samið við Háskólasjúkra
Uppsölum um þjálfun stai
SAMNINGAR hafa verið gerðir við Háskólasjúkrahúsið í llppsölum í Svíþjóð
um að það annist þjálfun starfsfólks, sem starfa mun við hjartaskurðlækn-
ingar hér. Ákveðið hefur verið að þær hefjist í Landspítalanum á fyrri hluta
næsta árs. Þetta kom fram á blaðamannafundi, sem Matthías Bjarnason,
heilbrigðis- og tryggingaráðherra boðaði til í gær. Þegar hafa verið ráðnir til
starfa tveir íslenskir læknar, sem starfað hafa við hjartaskurðlækningar
erlendis. Stöður hjúkrunarfólks hafa verið auglýstar og mun þjálfun þess
befjast strax að loknum sumarleyfum í haust. Aætlað er að flestir hafi lokið
þjálfun snemma á næsta ári.
Að sögn ráðherra eru samning-
arnir mjög hagstæðir. Sjúkrahús-
ið veitir þjálfunina án endur-
gjalds, auk þess sem a.m.k. sumt
af fólkinu verður þar á launum
meðan á henni stendur. íslensk
heilbrigðisyfirvöld munu því að-
eins þurfa að greiða laun þess að
hluta, auk ferðakostnaðar.
Á fundinum kom fram að hug-
myndin um að hefja hjartaskurð-
lækningar hér á landi mun fyrst
hafa komið fram í grein sem
Hjalti Þórarinsson prófessor
skrifaði í Læknablaðið árið 1968.
Síðan hefur nær samfellt verið
unnið að undirbúningi þess að svo
geti orðið. í framhaldi af starfi
nefndar, sem Matthías Bjarnason
skipaði árið 1983, ákvað hann {
samráði við stjórnarnefnd ríkis-
spítalanna, að þessar aðgerðir
skyldu hefjast í Landspítalanum
árið 1986. Var þegar farið að leita
eftir samningum við erlend
sjúkrahús um þjálfun starfsfólks,
sem nú hafa náðst, eins og áður
sagði. Einnig hefur verið aflað til-
boða í meirihluta tækjabúnaðar
Frá blaðamannafundi heilbrigðisráðherra. Matthías Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra og Davíð Á. Gunnarsson aðstoðarmaður ráðherra.
Frumvarp dl nýrra framl
Breytinj
- segir í umsögn Verz
VERZLUNARRÁð íslands leggst
gegn samþykkt frumvarps landbún-
aðarráðherra til laga um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á bú-
vörum og telur að það hafi í för með
sér breytingar til hins verra miðað
við gildandi lög. Það sem skiptir þó
mestu um andstöðu ráðsins er áætl-
unarbúskapurinn, er frumvarpið
býður heim. Varanleg lausn fæst
ekki, að mati ráðsins, nema að fram-
leiðsla búvara lúti svipuðum lögmál-
um og önnur framleiðsla í landinu.
í áliti Verzlunarráðs, sem sent
var landbúnaðarnefnd neðri deild-
ar, er lagt til að afgreiðslu frum-
varpsins verði frestað til næsta
þings, þar sem ekki hefur farið
fram fræðileg úttekt á afleiðing-
um mismunandi leiða til lausnar
vandamálum, er frumvarpinu er
ætlað að leysa, né afleiðingum